Börn og menning - 01.09.2005, Síða 11

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 11
Bernd og brúðurnar 9 einfaldleiki, engin tónlist eða truflun af neinu tagi. Það hafi á vissan hátt verið áhætta í sýningunni því í öðrum þáttum hennar ríki mikil litagleði og lífleg tónlist. En Bernd gerir meira en að starfa í Þjóðleikhúsinu við þetta barnaleikrit því hann er með fjölmörg önnur verkefni í takinu. í byrjun október lauk tökum á jóladagatali Stöðvar tvö sem ber heitið Galdrabókin. Þar bjó hann til leikbrúðurnar og var yfirstjórnandi því auk hans komu fimm aðrir brúðuleikarar að gerð þáttanna sem voru í leikstjórn Ingu Lísu Middleton. Áhugamenn um kvikmyndir hafa eflaust heyrt minnst á Strings, danska mynd eftir danska leikstjórann Anders Ronnow-Klarlund en þar smíðaði Bernd brúðurnar og hafði yfirumsjón með 16 öðrum brúðuleikurunum. Hann segir þetta hafa verið gríðarmikla vinnu sem kostaði hann heil tvö ár og á þeim tíma hafi hann bæði orðið gráhærður og þurft að fá sér gleraugu. Strings hefur þegar vakið mikla athygli og unnið til fjölmargra verðlauna en nánari upplýsingar um kvikmyndina má finna á vefsíðunni www.stringsthemovie.com Vorið 2006 er áætluð frumsýning í Þjóðleikhúsinu á Metamorhposis eftir Bernd og er brúðugerð og stjórnun á þeim alfarið í höndum hans. í sýningunni mun hann nota strengjabrúður, stafbrúður og japanskar bunraku brúður en þetta eru eins konar sögur án orða sem lýsa léttvægum og gamansömum aðstæðum hvunndagsins en kafa um leið í djúp mannssálarinnar. Ánægður með aðstöðuna Bernd kveðst mjög ánægður með þá aðstöðu og tækifæri sem hann hefur fengið á fslandi. Segir hann leikhúsin hér standa betur að vígi en til að mynda í Bandaríkjunum þar sem starfsbræður hans finna sífellt fyrir meiri niðurskurði í allri menningarstarfsemi, sérstaklega þeirri sem fram fer í leikskólum. Bernd hefur heimsótt flest alla leikskóla á íslandi með sýningar og lætur vel af því starfi enda segir hann það ef til vill mikilvægast fyrir alla menningu að byrja að sá fræjunum nógu snemma. „Við sem fáum tækifæri til að kynna listina fyrir börnum berum mikla ábyrgð. Það sem mestu máli skiptir er að sá þessum fræjum nógu snemma svo þau falli ekki í grýttan jarðveg. Börnin í dag stjórna heiminum í framtíðinni." Oddný S. Jónsdóttir

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.