Börn og menning - 01.09.2005, Side 7

Börn og menning - 01.09.2005, Side 7
Líf með brúðunum 5 Höfðar þá brúðuleikhús meira til barna en fullorðinna? vinnustofu hennar og spjölluðum við saman undir árvökulum augum brúðanna allt í kring. Helga: Menn hafa heillast af brúðuleik- húslistgreininni í gegnum aldirnar og það er ekki að ástæðulausu að hún er ein af elstu listgreinum sögunnar. Brúðuleikhúslistgreinin á sér þó ekki langa sögu hér á landi en hún mun án efa fylgja okkur um ókomna tíð. Sýningarnar sem ég set upp með Brúðubílnum miðast fyrst og fremst við börnin. Ég reyni að taka mið af því sem þeim finnst skemmtilegt en um leið bitastætt og nota m.a. til þess gömlu þjóðsögurnar. Ég vil að sýningar Brúðubílsins hafi einhvern boðskap, til dæmis að maður eigi að vera góður eða kærleiksríkur. í raun er boðskapurinn alltaf einfaldur og til að koma honum til skila þarf andstæða hinna göfugu gilda að vera til staðar eins og refurinn eða úlfurinn. Þeir búa til spennuna í sögunni sem endar þó alltaf vel. Refurinn og úlfurinn læra af reynslunni, þeim er kennt og þeir þroskast í verkinu. Ég læt því fara saman lífsins fræðslu í bland við skemmtunina. Ég forðast þó að prédika yfir börnunum heldur reyni ég að leiðbeina þeim á skemmtilegan máta. Frá upphafi hef ég haft það að leiðarljósi að ég sé að vinna fyrir börnin og geri það af einlægni. Það er misskilningur margra hér á landi að brúðuleikhús sé aðeins fyrir börn. Brúðuleikhúslistgreinin er í raun mjög öguð og þróuð listgrein og við kynnumst henni fyrst sem börn. Þessu er í raun alveg eins farið með tónlistina, börn byrja að syngja Gamla Nóa, svo þróast þau í söngnum. Eins er með brúðuleikhús sem listgrein. Víða erlendis má sjá að brúðuleikhúslistgreinin er ekki síður fyrir fullorðna en börn. í Japan og Kína, Indónesíu og víðar stendur brúðuleikhús jafnfætis dansinum og tónlistinni. í Salzburg er einnig stöðugt verið að sýna Mozart óperur með brúðum og fólk hópast að til að sjá þær. í Tékklandi og fyrrum austantjaldslöndunum er brúðuhefðin auk þess á mjög háu listrænu stigi hvort sem um börn eða fullorðna er að ræða. Brúðan er svo góður miðill því hún höfðar svo til barnanna. Það sést best á því að ef ég sit fyrir framan börn með brúðu þá tala börnin við brúðuna en ekki mig. Þannig geta brúður verið mjög gott kennslutæki. Ég kenni sjálf ýmislegt með brúðunum, til dæmis kenni ég börnunum að þekkja litina og tölustafinu; og ég kenni þeim að virða náttúruna m.a. með því að birta þeim myndir af tröllum í fjöllunum. Það er líka gaman að leika þjóðsögurnar okkar í leikhúsinu, en það er eins og að sá fræjum til framtíðar. Hvers vegna ákvaðst þú að fara af stað með brúðuleikhús? Ég fór á námskeið hjá brúðuleikhúslista- manninum og Þjóðverjanum Kurt Zier í Handíða- og myndlistarskólanum árið 1968 og þar kviknaði áhuginn. Hann bar svo mikla virðingu fyrir brúðunum og kenndi mér að meðhöndla þær eins og listaverk. Þetta sama ár var svo Leikbrúðuland stofnað og síðan hefur ekki verið aftur snúið. Hvað ertu lengi að setja upp sýningu fyrir Brúðubílinn? Yfirleitt byrja ég strax eftir áramót að velta því fyrir mér hvaða sögu ég ætli „Lilli er ein af fyrstu brúðunum. Ég byrjaði að nota hann þannig að hann vissi ekkert, kunni ekki litina, var bara með snuðið sitt. Krakkarnir gátu sagt Lilla til, varað hann við hættunum o.s.frv. Nú hefur Lilli aðeins vitkast. Ef ég reyni að hætta að nota hann þá spyrja menn. Hvar er Lilli? Hann er ómissandi partur af sýningunum." Er einhver munur á almennri barnasýningu og brúðuleikhúsi?

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.