Börn og menning - 01.09.2005, Síða 9

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 9
[ göngu með Línu 7 í göngu með Línu og IBBY á Kvennafrídaginn / fljótu bragði er það kannski ekki margt sem IBBY á íslandi, Lína langsokkur og Kvennafrídagurinn eiga sameiginlegt - annað en það að eiga stórafmæli á þessu ári. Og þó - þegar nánar er að gáð er ýmislegt sem tengir þetta þrennt saman eða það fannst mér að minnsta kosti undir mögnuðum áhrifum frá samferðafólki mínu niður Skólavörðustíginn 24. október síðastliðinn. Það flaug margt í gegnum hugann á þeim langa tíma sem tók að komast alla leið niður á Lækjartorg og ósjálfrátt varð mér hugsað til þeirra sem deila þessu stórafmælisári með Kvennafrídeginum. Það er staðreynd að sumir eldast betur en aðrir og það á jafnt við um bókmenntapersónur og lifandi manneskjur. Lína langsokkur varð sextug á þessu ári en er síung og vinsældir hennar alltaf jafn miklar. Lína hefði áreiðanlega haft gaman af þvf að sletta úr klaufunum á Kvennafrídaginn. Öll hennar hegðun segir okkur nefnilega hvað henni fannst um jafnrétti kynjanna. Eigi jafnrétti að ná fram að ganga er að margra mati nauðsynlegt að hvetja stúlkur til að vera sterkar, hugrakkar, óheftar, skemmtilegar, uppreisnargjarnar og að trúa á eigin getu eins og Lína. Hún þorir án efa, getur og vill eins og sungið var í fyrsta sinn í útvarpinu kl. 7 að morgni 24. október 1975. Ekki er því að undra að Línu skuli hafa verið hampað sem fyrirmynd kvennahreyfinga í gegnum tíðina. Astrid Lindgren, höfundur Línu, á einhvern tímann að hafa sagt að margar konur hafi þakkað henni fyrir að hafa skapað þessa hugumstóru persónu því til hennar hafi þær sótt styrk og hvatningu. Þetta sannar enn einu sinni hvað góðar barnabækur fá miklu áorkað. IBBY-deildin á íslandi var stofnuð 11. júní 1985 og varð félagið því tuttugu ára gamalt á þessu ári. Tengsl IBBY við Línu eru augljós að því leytinu til að hlutverk félagsins er að stuðla að framgangi góðra barnabóka en þar að auki má nefna að Astrid Lindgren var einn af stofnendum IBBY-samtakanna á sínum tíma. IBBY á íslandi hefur dafnað vel líkt og Lína en fjöldi félaga er nú kominn upp í 256. Því til samanburðar má geta þess að á stofnfundinum fyrir 20 árum er talið að 50-60 manns hafi mætt. Á fundinum sagði Sigrún Klara Hannesdóttir, fyrsti formaður félagsins, að sorglega langur tími færi í vídeó og tölvuleiki hjá börnum og unglingum. Slík afþreying væri það sem bókin og bókmenntir yrðu að keppa við. Ekki hefur bókin haft betur í þessari keppni á þeim 20 árum sem liðin eru, börnin eyða nú sjálfsagt enn lengri tíma fyrir framan skjáina. En bókin hefur heldur ekki orðið undir í keppninni og nú er orðið nokkuð Ijóst að hún verður að lifa í sátt og samlyndi við afþreyingariðnaðinn. Til þess að það megi takast þarf bókin á öflugu stuðningsliði að halda og þess vegna er þörfin fyrir IBBY jafnmikil ef ekki meiri en hún var fyrir 20 árum. Nú væri kjörið tækifæri að tíunda afrek IBBY á (slandi í tilefni afmælisins en ég ætla að láta það ógert. Þess í stað læt ég nægja að segja að við getum verið ánægðar með það sem við höfum áorkað gegnum tíðina. Ánægðar? Já, nú kem ég nefnilega að annarri ástæðunni fyrir því að IBBY var mér hugstætt á Kvennafrídaginn þegar jafnrétti var á allra vörum. ( fundarbókum félagsins má lesa að einungis einn karlmaður hafi setið í stjórn félagsins allt frá stofnun þess. Hvernig skyldi standa á því? Cuðlaug Richter www.ibby.org Athygli er vakin á þvf að vefur IBBY-samtakanna, ibby.org, hefur verið endurskipulagður í því skyni að þjóna betur þeim sem heimsækja hann. Þar má lesa nýjustu fréttir af vettvangi samtakanna auk þess sem gerð er grein fyrir starfseminni, bæði á alþjóðavísu sem og á heimavöllum margra landsfélaga. Við hvetjum lesendur til að skoða vefinn í góðu tómi. Einnig er vert að benda á að á slóðinni http://www.ewinner.con/www/cbby/english/reftable.htm má nálgast upplýsingar um næsta heimsþing IBBY sem haldið verður í Peking í september 2006 og skrá sig til þátttöku.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.