Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 23

Börn og menning - 01.09.2005, Qupperneq 23
BIB á bökkum Dónár 21 BIB á bökkum Dónár Verk eftir Ali Reza Goidouzian Verk eftir Lilian Brögger Annað hvert ár er haldin geysistór yfirlits- sýning á myndskreytingum barnabóka í Bratisiava, höfuðborg Sióvakiu, á bökkum Dónár. Biennial of lllustrations Bratislava (BIB) á sér djúpar rætur því fyrsta sýningin var 1967 og í ár var því haldið upp á tuttugasta tvíæringinn með sérstakri viðhöfn. Myndir streymdu inn frá öllum heimshornum, og á endanum urðu þær 2966 talsins frá 48 löndum og fylltu margra hæða hús. í flestum tilvikum eru myndir valdar af opinberum aðilum í viðkomandi landi eða af félögum á borð við IBBY. Langt er síðan ísland hefur átt fulltrúa á sýningunni en Norðurlöndin hafa oft tekið þátt í henni og í ár voru danskir myndhöfundar fjölmennastir í þeirra hópi eða fjórtán talsins. Ekki var áhlaupaverk að skoða sýninguna en stórskemmtilegt og fyrirhafnarinnar virði. Slóvakar eru formfastir menn og sýna þessum þætti menningarinnar gamalgróna virðingu, enda bar opnunarhátíð í Óperuhúsinu og vinnubrögð öll við sýninguna þess glöggt vitni. Dómnefnd með fulltrúum tólf þjóðlanda úthlutaði verðlaunum og viðurkenningum. Heiðursverðlaun að þessu sinni hlaut Ali Reza Goldouzian frá (ran, einnig voru 5 Gullepli afhent og féll eitt þeirra í skaut Lillian Brögger frá Danmörku (fyrir myndskreytingu bókarinnar Hundrede meget firkantede historier) auk þess sem úthlutað var heiðursskjölum og viðurkenningum til myndskreyta og framúrskarandi forlaga. Það er sjaldgæf reynsla að eiga þess kost að skoða barnabókamyndir frá svo mörgum og fjarlægum löndum samankomnar á einum stað og illmögulegt að lýsa f stuttu máli því sem fyrir augu bar, en þó var auðvelt að greina stefnur og strauma í ýmsar áttir og skynja sérkenni myndskreytinga ólíkra landa. Vegleg og þykk sýningarskrá gefur örlitla nasasjón af því sem þarna var í boði. Víðsvegar um miðborg Bratislava voru einnig „auka"sýningar á myndskreytingum af ýmsu tagi, fyrirlestrar, málstofur og vinnubúðir fyrir unga myndskreyta. (Bibiana, Alþjóðlegu listahúsi barnanna, gaf að líta undurfagra gagnvirka sýningu byggða á ævintýrum H.C. Andersens sem hönnuð var af leikhúsfólki og leikmyndasmiðum úr efstu skúffu, og hugurinn reikaði óneitanlega til skýjaborganna um þvílíkt hús til handa íslenskum börnum. Bratislava á sér einnig langa teiknisögu og hefur fóstrað a.m.k. tvo myndskreyta sem hafa haft áhrif langt út fyrir sína landsteina, Albin Brunovsky og Dusan Kallay, sem eru glæsilegir fulltrúar austurevrópskrar myndskreytingahefðar. Frá (slandi lagði undirrituð ásamt Sigrúnu Eldjárn land undir fót og sýndum við auk Sigurborgar Stefánsdóttur myndir úr bókum okkar. Sjá nánar um BIB á www.bibiana.sk Guðrún Hannesdóttir

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.