Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 8

Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 8
Börn og menning Ármann Jakobsson Adda trúlofast og Beverly Gray leitar að gulli / árdaga unglingabókanna á íslandi Elsta dæmið sem ég hef rekist á um orðið „unglingasaga" í titli bókar er frá árinu 1941 og ekki er útilokað að Stefán Jónsson hafi fyrstur notað það (Vinir vorsins, 1941). Elsta íslenska dæmið sem ég fann um orðið „unglingabók" í bókartitli er hins vegar bókin Adda trúlofast, gefin út árið 1952, en höfundarnir voru Jenna og Hreiðar Stefánsson. Þau ráku á þeim tíma smábarnaskóla á Akureyri og Adda trúlofast var sjöunda og seinasta bókin í vinsælum bókaflokki þeirra um ættleiddu læknisdótturina Öddu (Agnes Þorsteinsdóttir heitir hún fullu nafni). Öddubækurnar sjö (1946-1952) voru ekki unglingabækur upphaflega heldur barnabækur en þróuðust í átt að unglingabókum með því að fylgja söguhetjunni til unglingsára og hið sama átti við um Toddubækur Margrétar Jónsdóttur sem eru nokkru yngri (1951-1955). Þær voru alls fjórar og báru undirtitilinn: Saga fyrir börn og unglinga (áður og síðar notaði Ragnheíður Jónsdóttir svipaða undirtitla fyrir bækur sínar um Dóru og Völu og síðar um Kötlu; sú fyrsta heitir raunar fullu nafni Dóra: saga fyrir unglinga og kom út árið 1945). Hvorugur bókaflokkurinn er kyngreindur sérstaklega en söguhetjurnar voru stúlkur og frekar líklegt er að stúlkur hafi verið uppistaða lesendahópsins: að minnsta kosti bendir óformleg könnun mín til þess að konur fæddar frá 1935 til 1950 séu fúsar að játa á sig lestur Öddu- og Toddubókanna en karlmenn af sömu kynslóð gera það aðeins mjög treglega. Eitthvað sannar þetta en nákvæmlega hvað ætla ég að láta liggja milli hluta. Ég vil þó játa það hér og nú að ég las Öddubækurnar þegar ég var strákur og meira að segja oft enda var ég þá í Langholtsskóla þar sem Jenna og Hreiðar kenndu bæði og því hægt að réttlæta lestur slíkra stelpubóka með heilbrigðu afbrigði af þjóðerniskennd, svokallaðri hverfiskennd. Fyrsta unglingabókin Upptalningin héraðframan hefurvæntanlega þegar minnt rækilega á þá alkunnu staðreynd að árin 1941-1960 voru tíðindamikil í sögu íslenskra unglingabókmennta (eins og fræðast má af í bók Silju Aðalsteinsdóttur, islenskar barnabækur 1780-1979). Ég ætla hins vegar að velja bókina Adda trúlofastsem dæmið mitt um íslenskar bókmenntir þessara tíma, annars vegar vegna þess að eitthvað þarf ég að takmarka mig við og hins vegar vegna þessa forvitnilega undirtitils sem ég held að hún beri fyrst bóka, „unglingabók". Það er vitaskuld áhugavert að þessi fyrsta unglingabók er ekki beinlínis sprottin af þörf höfundanna til að skrifa unglingabækur, þvert á móti er hún eðlilegt framhald af fyrrí bókum þeirra um Öddu, sem voru barnabækur. Það var eiginlega sjálfgert að Adda yxi úr grasi og lesendur fyrstu bókanna þriggja hafa eflaust átt talsverðan þátt í að Jenna og Hreiðar ákváðu að fylgja sögu hennar eftir, þau skrifuðu líka aðrar bækur á þessum tíma (Sumar í sveit og Bræðurna frá Brekku). Þau höfðu sent Öddu til Ameríku eftir að hún lærði að synda, kannski í von um að losna alfarið við hana, en svo kemur hún heim aftur og fer í kaupavinnu og síðan

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.