Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 9

Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 9
Adda trúlofast og Beverly Gray leitar að gulli í menntaskóla. Sagan Adda I menntaskóla er ekki kölluð unglingabók á titilsíðunni en það er hún vitaskuld. Adda er orðin sextán ára og í þessari bók verður hún ástfangin af framtíðareiginmanni sínum (eða það vonum við að minnsta kosti, Adda glftist hefur enn ekki birst). Þrátt fyrir að Adda sé mjög heilsteypt og nánast ónæm fyrir öllum skuggahliðum unglingsáranna er hún ekki alveg laus við unglingaveikina, eins og fram kemur í einni setningu í bókinni: „Mamma hennar ávítaði hana fyrir, hve löngum tíma hún eyddi fyrir framan spegilinn, er hún greiddi hár sitt" {Adda I menntaskóla, Rvík 1951, bls. 76). Meira gerir Adda nú ekki af sér í þessari bók, hún er sannkallaður fyrirmyndareinstaklingur þegar hér er komið sögu (en öllu meira ber á glímu hennar við sjálfa sig í ýmsum fyrri bókunum). Átökin í bókinni snúast fremur um þann heim sem hún býr í, í Reykjavík verður hún til að mynda vör við allmikla stéttaskiptingu sem snertir hana djúpt. Raunar verður hún líka að horfast í augu við eigin fordóma gagnvart auðmannsdótturinni Ernu, en henni ofbýður íburðurinn á heimili hennar þegar hún kemur þangað fyrst. Þó reynist Erna henni traust og sönn vinkona og óspillt af dekrinu heima. Hugfangin af læknum Mikilvægasta persóna bókarinnar fyrir utan Öddu sjálfa er ótvírætt hinn hévaxni og dökkjarphærði Páll læknanemi sem Adda kynnist þegar hann tekur að sér afleysingakennslu í menntaskólanum. Eins og allir sem hafa lesið Öddubækurnar muna einkennast þær af taumlausri dýrkun á læknastéttinni og störfum hennar, sem ef til vill endurspeglar hug Öddu sjálfrar, hún hafði verið yfirgefin í bernsku og síðan ættleidd af lækni og hjúkrunarkonu sem hún nánast af Páli heldur einnig af læknastarfinu. Aldrei höfðar Páll meira til hennar en þegar hann býr til fatla á hana eða þegar hún aðstoðar hann við að gera við alvarlega skaddaðan fót á sjómanni. Eins og segir í sögunni: „hún varð að viðurkenna fyrir sjálfri sér, að þessi tilfinning til Páls hafði síður en svo rénað, eftir því sem hún kynntist honum betur og sá hversu heill og óskiptur hann var í hinu ábyrgðarmikla læknisstarfi" (Adda trúlofast, Rvík 1952, bls. 62). Gæti Adda elskað mann sem ekki er læknir? Kannski, en óneitanlega virðist það ekki spilla fyrir. Ofurkonan Beverly Öddubækurnar stóðu föstum rótum í íslenskum raunveruleika. Líf Öddu var á sinn hátt spennandi (eins og störf lækna gátu verið á þessum tíma) og jafnvel ævintýralegt en ekki framandi. Sögurnar um Öddu eru því raunsæjar en hafa jafnframt ýmis einkenni afþreyingabókmennta, til dæmis þau að hetjan er heldur betur gerð en venjulegt fólk, hún er manneskja sem hægt er að líta upp til og sem vinnur vel úr öllum þeim erfiðleikum sem að henni steðja. Jenna og Hreiðar skrifuðu ýmsar fleiri bækur þar sem hetjunum farnaðist ekki alveg svona vel en Öddubækurnar urðu sennilega vinsælastar vegna þess að þær höfðu eitthvað af eðli hetjusagna í sér, þó að raunsæjar væru. Miklu ýktari var flokkur ungstúlknabóka um bandarísku stúlkuna Beverly Gray (en þetta heiti finnst á baksíðu einnar þeirra, Beverly Gray I gullleit). Tólf bækur um Beverly komu út á islensku frá 1944 til 1951, á vegum bókaútgáfunnarNorðra-þettaernánastsama tímabil og Öddubækurnar komu fyrst út. Það er ástæða til að nefna það að þetta er á sama tíma og bandarísk áhrif eru að ryðja sér til rúms hér á landi og lesa má Beverly Gray sem tilbiður síðan. Fyrstu kynni Öddu og Páls eru raunar mjög óheppileg. Óknyttadrengir í bekk Öddu hafa látið lím á stól afleysingakennarans (Iff afleysingakennara hefur sem kunnugt er aldrei verið einfalt) og Adda hyggst þurrka það af stólnum þegar kennarinn kemur inn. Hann grunar hana um verknaðinn og lætur hana setjast í límið. í stuttu máli er hér strax komið upp efni í íslenskt eftirstríðsáratilbrigði af Hroka og hleypidómunum en Páll er raunar fljótur að þvo af sér Darcy-áruna sem hann kann að hafa í þessu fyrsta atriði, strax í sama kafla biður hann Öddu afsökunar. Síðan birtist hann nokkrum sinnum í bókinni og er þar mjög yfirþyrmandi, þrátt fyrir að hann sé í bakgrunninum. Það er þó fyrst í næstu bók sem Adda gerir sér grein fyrir eigin tilfinningum til hans. Þar er því lýst hvernig Páll hertekur líf hennar. Hún fjarlægist vini sína og jafnvel foreldra og að lokum játast hún Páli strax eftir stúdentspróf og hyggst halda með honum utan í nám. Lýsingin er mjög raunsæisleg og jarðbundin, eins og Adda yfirleitt. Mig minnir að ég hafi ekki kunnað neitt sérstaklega vel að meta þessa bók þegar ég var strákur en þegar hún er lesin á ný verður því ekki neitað að þetta er falleg ástarsaga og þau Jenna og Hreiðar ná vel utan um það hversu vandræðalegt hinni annars kjarkmiklu Öddu finnst allt sem tengist Páli. Það skapar svo skemmtilega tvöfeldni að Adda er ekki aðeins hugfangin

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.