Börn og menning - 01.09.2008, Side 15
Dramadrottningar með beygluð og brotin hjörtu
13
Ko^r,knúrSa6"'r
0tn}ahðer dautt!
Eftir smá stund tekur
hann hins vegar um mjaðmir mínar
og hreyfir mig í takt við sig. Ég er
ábyggilega alveg eins og asní en reyni
eftir fremsta megni að vera með í
leiknum. Jiii, hvað á ég að gera?!
Það fer um mig þægilegur hrollur og
það er orðið líf og fjör í nærbuxunum
mínum (Er ég bara fíatbrjósta nunna?
bls. 60-61).
Danni strýkur Júlíu innan klæða, þrýstir
henni að sér og kyssir hana ákveðið. Hún
dáist að því hve Danni kyssir fagmannlega
og er alveg í sæluvímu. En eins og Klara
og Jonni eru þau skötuhjúin trufluð Júlfu til
mikillar skapraunar. Ekkí löngu síðar hittast
Júlía og Danni aftur í partíi í heimahúsi og þá
loka þau sig af tvö ein inni á baði. En þegar
leikar standa sem hæst og þau bæði komin
með buxurnar á hælana og fátt eftir annað
en ganga alla leið, eru þau trufluð. Nema
hvað? Þó löngun Júlíu sé vissulega komin á
suðupunkt verður hún samt trufluninni fegin.
Hún vill þrátt fyrir allt ekki láta afmeyja sig við
þessar aðstæður. Hún er líka miður sín þegar
þær fréttir eru látnar berast í partíinu að þau
hafi verið að gera það.
Það er þó Ijóst að hluti krakkanna í
umhverfi Júlíu lítur á það sem stöðutákn að
hafa gert það og Júlíu finnst ekkert slæmt
að þau haldi það um hana. En það eru ekki
krakkarnir sem hún virðir. Henni finnst líka
meira um vert að halda sjálfsvirðingunni
og virðingu vinkvenna sinna í þessu efni.
Og það eru einmitt vinkonurnar sem hugga
Júlíu í þessum erfiðu aðstæðum. Júlía og
vinkonur hennar ræða opinskátt saman um
kynlíf og velta fyrir sér hvenær þær vilja fara
að gera það og hvort þær vilji taka pilluna.
Niðurstaðan er sú að þó að þær langi vilja
þær ekki, segjast ekki vera tilbúnar. Þær eru
samt orðnar þreyttar á því að stoppa alltaf
leikinn og kærastarnir eru ennþá þreyttari
á því og hóta uppsögnum og málin eru því
mjög erfið. Enginn kærasti lætur samt verða
af uppsögn.
Þessi opinskáa umfjöllun um kynlíf er
nýnæmi í íslenskum unglingabókum og
skilaboðin til lesenda eru skýr: Kynlíf er
gott en maður þarf að vera tilbúinn og sá
boðskapur er útaf fyrir sig mjög jákvæður.
Það er hins vegar helsti galli bókanna um
þær Klöru og Júlíu, hve lítil áhersla er lögð
á að byggja upp tilfinningar á milli persóna
áður en kynlífsþreifingar, með þeim hita og
þunga sem þar er lýst, koma til sögunnar.
Það er tæplega við hæfi að færa andann,
kaldhæðnina og hraðsoðið viðhorf til kynlífs,
eins og það birtist í efni fyrir fullorðna í
fjölmiðlum hverskonar og kvikmyndum, inn
í unglingabækur sem mest eru lesnar af tólf
til fjórtán ára unglingum. Því fylgir líka mikil
útlitsdýrkun sem er einmitt svo áberandi í
þessum bókum, mest í Ef þú bara vissir ....
Útlitsdýrkun og lífsstílsæði
Útlit og föt fá mikla umfjöllun í bókunum
um dramadrottningarnar rétt eins og í
skvísubókunum og vinkonurnar eyða löngum
stundum fyrir framan spegilinn og þar fara
fram faglegar umræður um snyrtingu og
snyrtivörur. Lita þarf hár, farlægja óæskílegan
hárvöxt af líkamanum og plokka augabrúnir
þó maður sé bara fjórtán ára. Fyrirmyndirnar
og aðferðir eru sóttar í tfskublöð þar sem tíl
dæmis er lofað fullkominni fegurð á tveimur
tímum. Þetta er ekki alltaf tekið út með
sældinni og um það er fjallað á írónískan
hátt í fyrri bókinni um Emblu. Hún reynir
einu sínní að gera sig fína eftir forskrift úr
tískublaði en afleiðingin verður ekki alveg
eins og hún bjóst við og hún neyðist því til að
mæta með sólgleraugu á lokaballið í 9. bekk.
Embla situr nefnilega uppi með augabrúnir
sem minna suma lesendur á fræga lýsingu á
Agli Skallagrímssyni:
Nýju augabrúnirnar ollu því að ég sýndi
tvö svipbrigði í einu. Annar heimingur
andlitsins gaf til kynna mikla Vogue-
gleði en hinn meiri geðvonsku en
hægt væri að koma fyrir í dós fullri af
niðursoðnum unglingum (Ég er ekki
dramadrottning bls. 20).
Hinar dramadrottningarnar taka snyrtingu
mun alvarlegar. Brjóstaumræða er ekkert
sérstaklega fyrirferðarmikil, en lítil brjóst
valda þó Júlíu svolitlum áhyggjum. Hún notar
stærð A32 af brjóstarhaldara og hún öfundar
vinkonur sínar af B skálunum. Titillinn á
fyrstu bókinni um Júlíu Er ég bara flatbrjósta
nunna? er því ekki mjög lýsandi fyrir innihald
bókarinnar. Hins vegar er mikil umræða um
föt og vinkonurnar fara í fatakaupaleiðangra
í bæinn og í Kringluna. Og það verður að
klæða sig eftir tilefninu. Það má hvorki virka
„desperat" eða vera „overkill" í klæðaburði,
því slíkt ber „... vott um bæði stjórnleysí
og örvæntingu en það vissu auðvitað allar
viti bornar stúlkur að maður flaggar ekki
öllu si svona" (Ef þú bara vissir ... bls. 62-
63). Er þetta ekki skvísulegt? Fötum og
fatastíl draumaprinsanna er líka vel lýst. Það
á reyndar við um alla krakkana í þessum
bókum að þeir eru yfirleitt fallegir og flottir,
bæði stelpur og strákar. Sumar persónurnar
eiga mjög ríka foreldra og fulla skápa af
fötum, eins og ein vinkona Júlíu, sem fær
alltaf nýjustu Diesel gallabuxurnar. En miðað
við hve flott föt skipta miklu máli og eru
mikið til umfjöllunar er merkjavara, önnur
en Diesel, ekkert sérstaklega fyrirferðarmikil
í þessum bókum.
Útlitsdýrkunin nær líka í sumum tilvikum