Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 20

Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 20
18 í Reykjavík og þá dvelur besta vinkona Lillu frá Austurfirði, Kata, í höfuðborginni auk ömmu og afa sem þarf að leita sér lækninga. Hér skiptist sjónarhornið milli vinkvennanna, ýmist er sögumaður við hlið Kötu eða Lillu. Sagan er látin gerast í Þingholtunum og svæðið öðlast líf í meðförum höfundar því götuheiti eins og Skeggjagata og Baldursgata koma fyrir og þekktir staðir eru með, styttan af Leifi heppna sem prýðir Skólavörðuholtið og Listasafn Einars Jónssonar. Hér má spyrja hvers vegna höfundur notar raunveruleg götunöfn í Reykjavík en lætur þorpið sem ætla má að eigi sér fyrirmynd í Seyðisfirði vera við Austurfjörð. Kannski er það nándin við æskustöðvarnar þar sem allir þekkja alla sem gerir það að verkum að Kristín býr til nafn á staðinn. Aðrir höfundar sem byggt hafa skáldsögur á endurminningum sínum hafa oft notað þessa aðferð, nefna má þríleik Guðrúnar Helgadóttur (Sitji Guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni) sem gerist augljóslega í Hafnarfirði á stríðsárunum þó að bærinn sé hvergi nefndur á nafn. Hrekkjusvínin eru í borginni eins og annars staðar og Lilla á í stöðugurrr erjum við þau. Hormónarnir láta á sér kræla í þessari bók, roði f kinnum Kötu ber vitni um hrifningu hennar á Krumma og Lillu finnst Jonni Ifka vera bara nokkuð sætur. En hugsunin um að verða fullorðin skelfir Lillu. Hún leitar ráða hjá afa á sjúkrahúsinu: „Er ekki alveg agalega leiðinlegt að verða fullorðinn afi?" Og afi svarar: „Ojæja, lambið mitt, það fer nú eftir ýmsu." (91) Það er gott að sitja hjá afa og þiggja góð ráð hans og hlusta á sögur. Rokkið gerir víðreist, fyrr en varir knýr það dyra á íslandi og rokka Billi er mættur á svæðið. Lilla og Kata þurfa að læra sporin en fyrst og fremst að fá sér rokkpils sem er hringskorið og getur staðið lárétt út frá kroppnum. Amman frá Austurfirði nýtur lífsins í borginni en afa líður illa og kann ekki á borgarlífið. Líf Lillu fer þó nokkuð á skjön þegar afi veikist og þarf að fara á sjúkrahús og enginn virðist geta læknað hann, ekki einu sinni pabbi sem er þó læknir! Lilla reynir að treysta á Guð og forsjónina eins og amma hafði svo oft kennt henni. Guð virðist vera heyrnarlaus en forsjónin réttir henni fjögurralaufa smára á síðustu stundu og nú hlýtur afa að batna. Lesandi er skilinn eftir með spurn í augum en vissulega getur hann lesið í þau tákn sem finna má í lok síðustu bókar. Að loknum lestri Hvað fær lesandi í sinn hlut við lestur á umræddum bókum Kristínar Steinsdóttur? Hann fær svo sannarlega margt. Bækurnar veita innsýn í heim kotroskinnar stelpu sem lætur engan eiga neitt hjá sér. Skilaboðin eru þau að stelpur þurfa ekki að gefa endalaust eftir, þær geti með kjarki og orðavali ráðið við freka og fyrirferðarmikla stráka. Það er líka í lagi að gráta þegar mikið liggur við. Lesanda er boðið í áhugavert ferðalag til fortíðar þar sem fylgst er með börnum í skemmtilegum útileikjum og hugsanlega uppgötvar nútímabarnið að það er hægt að gera fleira en að sitja inni í við tölvuna. Einu sinni var til veröld án sjónvarps og tölvu og þá var bara gaman og margt hægt að gera. Ef ekki var veður til að vera úti var hlustað á útvarp, reyndar bara gömlu gufuna en þar leyndust víða gullkorn svo sem spennandi leikrit og óskalög sjúklinga. Lilla er einlæg og skemmtileg stelpa sem segir það sem hún meinar. Líkt og Lína langsokkur á hún það til að skrökva sig út úr vandræðum. Einu sinni sem oftar fer Lilla í sendiferð fyrir ömmu og liggur leiðin í bakaríið hennar Línu stuttu. Hrekkjusvín situr fyrir henni og til að bjarga sér slær hún strákinn með innkaupatöskunni. Þegar heim er komið spyr amma: „Af hverju er brauðið svona kramið?" Þá svarar Lilla: „Það var svo þröngt í bakaríinu." En stundum gætir misskilnings og þá koma fyndnir orðaleikir sem ekki er hægt annað en að hlæja að. Lilla spyr ömmu sína um staðsetningu Rassgatshóla á landinu - þetta orð heyrir hún í veðurfregnum útvarpsins. Amma reynir að leiðrétta hana en Lilla neitar að hlusta á svoleiðis. Henni finnst þetta orð fyndið og við það situr. Stelpurnar syngja um rokka Billa þegar þær læra nýju danssporin. Ein þeirra spyr í einlægni hver hann sé þessi rokka Billi. Þá svarar Lilla kotroskin: „Það er ægilega frægur rokkari í Amríku," (Stjörnur og strákapör, bls. 52) Svo láta þær sig dreyma um að Billi komi til landsins og jafnvel sveifli þeim gegnum klofið eins og Bjarni rokk gerir við Erlu í Gúttó (Stjörnur, bls. 52). Margir á Austurfirði hafa viðurnefni sem er landlægur siður þótt ekki séu allir sáttir við hann. Dóri á Her býr í húsi sem einu sinni tilheyrði Hjálpræðishernum, Lína stutta er lágvaxin kona sem á bakaríið þar sem franskbrauðin eru bökuð, þessi sem eru svo góð með sultu. Og svo er það Bíó

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.