Börn og menning - 01.09.2008, Page 32
30
Börn og menning
Brynja Baldursdóttir
Draugar í erli og átökum
Norræna húsið stendur í Vatnsmýrinni. Frá
árinu 2001 hefur það verið vettvangur
alþjóðlegra barna- og unglingabókahátíða
sem allar eru kenndar við mýrina. Sú fyrsta
var Köttur úti í mýri, þá kom Galdur úti í
mýri, siðan Krakkar úti í mýri og nýlega var
sú fjórða haldin í Norræna húsinu; Draugar
úti í mýri. Að hátíðunum standa félög og
stofnanir, má þar nefna Norræna húsið,
Siung, Rithöfundasamband íslands, IBBY
og Borgarbókasafn Reykjavíkur. Markmiðið
með mýrarhátíðunum er að stuðla að
aukinni þekkingu og áhuga á barna- og
unglingabókmenntum og beina augum að
mikilvægu starfi höfundanna.
Draugar úti í mýri
Hátíðin í ár var haldin dagana 19,-
23. september og þar réðu fantasíur og
draugasögur ríkjum. Bæði íslenskirog erlendir
höfundar tóku þátt og Áslaug Jónsdóttir
myndlistarmaður og rithöfundur teiknaði
drauga þá sem prýða heimasíðu hátíðarinnar,
www.myrin.is, hannaði bækling með
dagskránni og einstaklega fallega veggmynd
sem send var víða til kynningar.
í tengslum við hátfðina var haldin
smásagnasamkeppni á vegum Forlagsins.
Alls bárust 106 sögur í keppnina og valdi
dómnefnd þrjár sögur til verðlauna og aðrar
þrettán sögur sem birtust í smásagnasafninu
Atog aðrarsögur sem kom út 20. september
síðastliðinn.
íslenskir höfundar á hátíðinni voru: Kristín
Steinsdóttir, Gerður Kristný, Guðmundur
Brynjólfsson sem hlaut 1. verðlaun í
smásagnasamkeppninni fyrir söguna At?
Iðunn Steinsdóttir sem hlaut 3. verðlaun
fyrir smásögu sína Allra sálna messa, Jón
Hjartarson og Kristín Helga Gunnarsdóttir
sem hlaut 2. verðlaun fyrir sögu sína Rauð
húfa.
Átta erlendum höfundum var boðið
hátíðina. Eftir nokkra hafa komið
út bækur á íslensku
en aðrir hafa
ekki verið
þýddir. Frá
Noregi kom
Ingunn Aamodt
sem er þekktur
rithöfundur og
myndskreytir, Nina
Blazon kom frá
Þýskalandi, en hún
hefur skrifað fantasíur
fyrir börn og unglinga.
Frá Danmörku komu
tveir höfundar; Kim
Fupz Aakeson sem er
þekktur fyrir fjölbreytt
ritstörf, allt frá ögrandi teiknimyndasögum
til kvikmyndahandrita og Louis Jensen sem
skrifað hefur allmargar bækur fyrir börn og
hlotið Norrænu barnabókmenntaverðlaunin.
Pat Hancock kom frá Kanada en hún hefur
skrifað tugi barnabóka og vakið athygli víða,
Rimantas Cerniauskas kom frá Litháen en
hann skrifar jöfnum höndum fyrir börn og
fullorðna og frá Finnlandi kom Ritva Toivola
en hún hefur skrifað fyrir börn f áratugi og á
sögu í draugasögusafninu Draugurinn sem
hló, sem kom út fyrir tveimur árum. Síðastan
skal telja Ulf Nilsson frá Svíþjóð, hann er einn
þekktasti barnabókahöfundur Svía og hefur
skrifað og myndskreytt yfir hundrað
bækur fyrir eldri og yngri börn og
nýlega komu út eftir hann tvær
bækur á íslensku, Draugaröddin
og Hálfur seðill..
Hátíðin var vel sótt enda
dagskráin fjölbreytt og
vönduð. Laugardaginn 20.
september og sunnudaginn
21. september var opin
dagskrá í Norræna húsinu
þar sem allir áhugamenn
um barnabókmenntir
gátu mætt. Fyrri daginn
voru verðlaun veitt fyrir
þrjár bestu sögurnar
í smásagnasafninu
At og aðrar
sögur. Mánudag