Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 37

Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 37
Norðurlöndunum fimm, Færeyjum og Grænlandi. Frá íslandi voru myndir eftir Halldór Baldursson, Björk Bjarkadóttur, Sigrúnu Eldjárn, Ragnheiði Gestsdóttur, Áslaugu Jónsdóttur, Brian Pilkington og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur. í tengslum við sýninguna var gefinn út fallegur bæklingur, Nordiske Streger, með öllum myndunum og upplýsingum um höfunda þeirra. Fyrirlestrar og málstofur Eins og yfirskrift þingsins „Stories in History - History in Stories" gefur til kynna var fyrirlestrum ætlað að fjalla um hvernig barnabókmenntir bregða upp mynd af hinni raunverulegu sögu landa og þjóða - og hvernig vitneskja um söguna hefur haft áhrif á barnabækur. Stór hluti fyrirlestranna tengdist þessu efni en einnig buðu málstofur upp á ýmis önnur viðfangsefni, svo sem barnabækur og margmiðlun, myndskreytingar, bókmenntaverðlaun, markaðssetningu barnabóka og bóklesturs, og munnlega frásagnalist. Á ráðstefnunni voru margir áhugaverðir fyrirlestrarfluttir. Gaman er að geta þess að dr. Anna Heiða Pálsdóttir flutti fyrirlestur þar sem hún fjallaði um það hvernig íslenskt landslag hefur sett sitt mark á barnabókmenntir okkar í gegnum söguna. Eitt það eftirminnilegasta og jafnframt nýstárlegasta að mínum dómi var málstofa sem Katherine Paterson stóð fyrir. Þar voru auk hennar mættir höfundarnir Louis Jensen, Lene Kaaberbol og Peter Sís. Hver þeirra hafði valið kafla úr eigin bók og sett textann upp í samlestrarformi. Síðan lásu þessir fjórir höfundar saman, hver túlkaði sína persónu, og var þetta einstaklega áheyrilegt og skemmtilegt. Áhugasömum er bent á að á vefslóðinni www.ibby2008.dk er að finna útdrætti úr mörgum fyrirlestrum sem fluttir voru á þinginu og verða þeir þar fram að næstu áramótum. Smám saman verður líka sett inn efni frá þinginu á vef alþjóðasamtakanna, www.ibby.org. Aðalfundur IBBY-samtakanna og norrænt samstarf Að venju var aðalfundur IBBY-samtakanna haldinn á þinginu þar sem kosin var ný stjórn. Að þessu sinni treysti engin af norrænu IBBY- deildunum sér til að fjármagna setu fulltrúa í stjórninni og var því engin Norðurlandabúi í framboði. Er þetta líklega i fyrsta skipti frá upphafi sem Norðurlönd eiga ekki fulltrúa í stjórn samtakanna. Samstarf norrænu IBBY-deildanna hefur verið með daufasta móti undanfarin tvö ár en á örstuttum fundi sem haldinn var á þinginu var tekin ákvörðun um að blása í það nýju lífi. Ákveðið var að halda fund í Helsinki í vor og sömuleiðis að gefa út Nordisk blad. íslenska IBBY-deildin tók að sér að ritstýra blaðinu sem gefið verður út í rafrænu formi í sparnaðarskyni. Anna Heiða Pálsdóttir tók að sér að vera norrænn tengiliður IBBY á íslandi. Að lokum má geta þess að næsta heimsþing IBBY-samtakanna verður haldið í Santiago de Compostela á Spáni 8.-12. september árið 2010. Þemað verður „The Strength of Minorities" sem ætti að vera mjög áhugavert fyrir litla þjóð eins og okkur. Hingað til hafa íslendingar ekki látið Spánarferðir vaxa sér í augum og gaman væri ef sem flestir félagar samtakanna okkar nýttu sér þetta tækifæri til að kynnast alþjóðlega starfinu nánar. Gönguglaðir félagar gætu jafnvel slegið tvær flugur í einu höggi og gengið Pílagrímsleiðina á áfangastað. Sjálf sat ég heimsráðstefnu IBBY í Sevilla á Spáni árið 1994 og hún var í senn fróðleg og skemmtileg. Ég vænti að ráðstefnan 2010 verði ekki síðri. Iðunn Steinsdóttir

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.