Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 5
Frá ritstjóra
5
Hausthefti Barna og menningar er yfirfullt
af skrímslum. Þau slompast um blaðið á
stóru fótunum sínum, loðin eins og kettir,
og reyna að hræða lesendahópinn. Þetta
eru litla og stóra skrímslið hennar Áslaugar
Jónsdóttur, bókagerðarkonu, en sex bækur
um þau hafa þegar komið út í samstarfi við
norrænu höfundana Kalle Guettler og Rakel
Helmsdal. f greininni „Mannleg skrímsli"
fjallar Kristín Ragna Gunnarsdóttir teiknari
og bókmenntafræðingur um myndmál
í skrímslabókunum. Helga Birgisdóttir
doktorsnemi ((slenskum bókmenntum tekur
fyrir skrímsli og ótta í greininni „Og þá
mega stór skrímsli gráta". Ritstjóri ræðir við
Áslaugu Jónsdóttur um tilurð litla og stóra
skrímslisins og óvenjulegt samstarf þriggja
höfunda. Skrímslin eru á leiðinni upp á svið
Þjóðleikhússins (vetur og segir Áslaug okkur
frá því hvernig þessar loðnu verur hafa tekið
í það brölt.
Af öðru efni í blaðinu má nefna grein
Brynhildar Heíðar- og Ómarsdóttur
„Sögukerlingar heima og að heiman".
Þar er rætt um Gríshildi góðu, kvenhetju
úr íslenska sagnaarfinum, og nafnleysi
kvennanna sem héldu þeim arfi á lofti.
Fjallað er um nýútkomnar bækur í blaðinu
og má þar nefna grein Guðrúnar Elsu
Bragadóttur um Fluguna sem stöðvaði
stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur sem
hreppti Islensku barnabókaverðlaunin á
dögunum. Uppfærsla Borgarleikhússins á
Galdrakarlinum í Oz er leikrýnd en í blaðinu
eru einnig á sínum stað fastir liðir á borð við
Pabbi les og Mér finnst...
Þetta er fyrsta tölublað Barna og
menningar sem kemur út eftir að ég tók
við ritstjórninni af Þórdísi Gísladóttur. Þó
að ég hafi verið treg (taumi í fyrstu þá sé
ég ekki eftir því að hafa látið til leiðast að
taka að mér þetta krefjandi verkefni. Það er
sérstaklega skemmtilegt að vinna með öllu
því góða fólki sem kemur að útgáfu þessa
blaðs og kann ég því þakkir fyrir.
Ég vona að lesendur blaðsins kvíði ekki
haustmyrkrinu eftir viðkynnin víð litia
og stóra skrímslið í hausthefti Barna og
menningar.
Helga Ferdinandsdóttir