Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 22

Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 22
22 Börn og menning pabbi les Svavar Steinarr Guðmundsson „Einu sinni fyrir langa töngu", bætir strákurinn við og hefur þannig nýja sögu á meðan pabbinn situr eftir með bók i kjöltu. Upphefjast svolítil átök milli feðganna um það hvor þeirra skuli leiða frásögnina til svefns. Átökin enda þó jafnan á þann veg að pabbinn hlýðir á ævintýri sonarins til enda áður en hann lýkur við bókina og býður góða nótt. Þau eru ófá skiptin sem kvöldlesturinn dregst á langinn vegna þess að Kári Steinarr, þriggja ára sonur minn, færir okkur foreldrunum ærslafullar frásagnir af atburðum dagsins sem gerast innan landamarka leikskólans - víðsfjarri veruleika fullorðna fólksins á heimilinu. En þar eiga eins ólík ólíkindatól og uppdiktuð systkini, krókódílar og skýjaverur það til að stíga fram og verða á vegi hans. Þeir eru líka margir morgnarnir, einkum um helgar, sem hefjast í víðfeðmu ævintýralandi (hjónarúminu) þar sem prinsinn (Kári) bjargar prinsessunni (móður sinni) úr klóm drekans (pabbans). Þessi kvöld og morgnar sem ég lýsi hér að ofan eru án efa ekki svo frábrugðin þeim ævintýrum sem litlar fjölskyldur rata almennt í og bera vott um hið frjóa ímyndunarafl sem börn búa yfir. Og viðurkenni ég hér með að þessi skrif eru fyrst og fremst rómantískt hjal föður um sitt fyrsta barn en hvað sem allri rómantík líður er óhjákvæmilegt annað en að nefna þau áhrif sem bækur hafa haft á son minn frá fyrsta degi. Fyrir það fyrsta er Kári mikill bókarormur sem tekur sér bók í hönd við hvert tækifæri sem gefst og les úr þeim sínar eigin sögur sem eru samspil fyrri upplestra úr tiltekinni bók og þeirra mynda sem fyrir augu ber á hverri opnu. Við foreldrarnir furðum okkur oft á hversu heiðríkt minni hans er því hann vílar hvorki fyrir sér að nefna sögupersónur á nafn né rekja slóðir þeirra löngu eftir að upplestri er lokið. Ekki förum við foreldrarnir varhluta af því þegar Kári fetar þessar sömu slóðir. Hann hefur nefnilega tekið ástfóstri við Einar Áskel og er grallarinn sá honum fyrirmynd í svo mörgum efnum. Við vorum til dæmis algjörlega grunlaus um hvað var í vændum eftir lestur á Oóða nótt, Einar Áskell. ( sögunni finnur Einar Áskell upp á ýmsum leiðum við að fresta nætursvefninum sem verður til þess að pabbinn fær ekki stundarfrið til að reykja sina pfpu og lesa sitt blað því hann neyðist til að hlaupa eftir vatnsglösum, aðstoða við klósettferðir og

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.