Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 12

Börn og menning - 01.09.2011, Blaðsíða 12
12 Börn og menning Við hræddum ófreskjuna burt, stóra skrímslið og ég. Þú ert SniUiM^lir litla skrímsli! - Þú ert VlCtjff. stóra skrímsli! erum hugrökkustu skrímsli í heimi. Nú er ekkert að óttast lengur. sem er einsamalt heima!"5 Litla skrímslið er hrætt við hljóðin úti, ímyndaða innbrotsþjófa, villidýr, eiturslöngur og köngulær en sem betur fer kemur stóra skrímslið í heimsókn, því litla til mikils léttis. Síðan kemur babb í bátinn því stóra skrímslið, sem er svo hugrakkt að það gleypir ánamaðka og prílar á húsþökum, reynist einnig vera dauðhrætt við ófreskjuna fyrir utan. Það geta nefnilega „allir orðið hræddir, segir stóra skrímslið" og þá er komin lausn á vandanum: Skrímslin tvö hræða einfaldlega líftóruna úr ófreskjunni þannig að hún hrökklast í burtu! Af þessari sögu má ýmislegt læra. Allir geta orðið hræddir og það er ekkert að skammast sin fyrir og óttann við ófreskjur má yfirstíga með hjálp góðs vinar. Auk þess vita lesendur svolítið sem skrímslin vita ekki en það er að þruskið og krafsið sem litla skrímslið heyrði fyrir utan var í ketti uppi á húsþaki og ófreskjan sem starði inn um gluggann var bara kisa. Nú er ekkert að óttast lengur Að sögn Stallcup tekur ein persóna myndabókar ávallt að sér hlutverk hins fullorðna sé enginn fullorðinn til staðar. Vald hinna fullorðnu er nær alltaf viðurkennt og mjög sjaldgæft er að því sé hafnað.6 7 Litla skrímslið og stóra skrímslið bregða sér í ýmis hlutverk og skiptast á hvað það varðar eins og fram kom i umfjölluninni um bækurnar tvær hér að ofan. Stóra skrímslið er í „fullorðinshlutverkinu" í Skrímsli í myrkrinu og sefar litla skrímslið, en þessu er snúið við í Stór skrimsli gráta ekki. Verkaskiptingin er þó ekki alltaf svona augljós og í Skrímsli í heimsókn átta stóra og litla skrímslið sig í sameíningu á gildi vináttu og samvinnu. í bókunum er hvorki vald foreldranna né yfirboðara samfélagsins skorað á hólm og engar samfélagsreglur eru brotnar og er það vel því þá væri úti um alla siðmenningu. Litla skrímslið og stóra skrímslið eru vel prúð og vandamálunum sem þau takast á við fylgja lausnir sem eru í takt við samfélagsnorm. Vandamálin leysa skrímslin hins vegar upp á eigin spýtur og í sameiningu. Þau hlaupa hvorki í burtu frá vandamálunum né flytja þau af eigin herðum yfir á herðar annarra. Þannig eru ungir lesendur hvattir til að taka málin í eigin hendur eins og skrímsla er siður. Skrímslabækurnar falla því ekki í þann flokk myndabóka sem Stallcup segir vinna gegn framtakssemi og sjálfstæði heldur sýna hvernig ungir einstaklingar geta þróað aðferðir til að takast á við vandamál sín, sýnt frumkvæði og borið ábyrgð á sjálfum sér.6 Eftir stendur hins vegar að aðalsöguhetjurnar eru skrímsli og þau eru samkvæmt hefðinni hræðileg, Ijót og óhugnanleg. Ekki svo skelfileg skrímsli I bókinni Off with their heads! segir Maria Tatar að þó að börn óttist skrímsli séu þau oft talin þeim nauðsynleg; börn þarfnist þeirra til að geta varðveitt hina upphöfnu ímynd af foreldrum sínum. Neikvæðir eiginleikar foreldranna, t.d. reiði, árásargirni eða annað, eru yfirfærðir á skrímslin í sögunni en þeim er svo komið fyrir kattarnef með einum eða öðrum hætti. Með þessu móti ná börnin valdi á ótta sínum án þess að ímynd foreldranna verði á nokkurn hátt fyrir hnjaski og þeir sleppa við alla gagnrýni.8 Ein frægasta myndabók síðari tíma, Where the Wild Things Are (Maurice Sendak, 1963) 5 Áslaug Jónsdóttir, Kalle Guettler og Rakel Helmsdal. 2007. Skrimsli í myrkrinu. Mál og menning, Reykjavík, án blaðsíðutals. 6 Jackie E. Stallcup. 2002:127. 7 Jackie E. Stallcup. 2002:152-153. 8 Maria Tatar. 1993. Off with their heads! Fairy tales and the culture of childhood. Princeton University Press, Bandaríkin, 38-40.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.