Börn og menning - 01.09.2011, Síða 9

Börn og menning - 01.09.2011, Síða 9
samhliða á mörgum tungumálum. í bókinni Skrímslapest birtast tvær fyrri skrímslabækur í myndum þar sem skrímslin lesa hvort fyrir annað. Áslaug bregður á það ráð að teikna texta inn á bókarkápurnar á þann hátt að vísað er í verkin án þess að titillinn sé læsilegur. Myndirnar á kápunum fá því aukið vægi og undirstrika í leiðinni hvað myndmálið er mikilvægt í alþjóðlegum tjáskiptum. Áslaug leikur sér hér líka með sjálfsöguformið (metafiction) því myndin minnir á höfundana og önnur verk þeirra. Þau eru innlimuð í þessa sögu og búa til samtal við fyrri skrímslabækurnar. Mannleg skrímsli 9 skýran hátt sem allir skilja. Það er dirfska í framsetningu efnisins og tilfinningar fá áþreifanlegt form. Myndmálið gegnir veigamiklu hlutverki og kallast vel á við textann. Vandvirkni og frásagnargáfa höfundanna skilar sér svo sannarlega alla leið til lesenda. Ég hvet ykkur til að kíkja nánar í þessar bækur og skoða myndmálið gaumgæfilega því það leynast verðlaun á hverri síðu. Höfundur er teiknari kóngulær ímyndunaraflsins um blaðsíður í skjóli myrkurs, og ýkjusögur litla skrímslisins koma því í hin mestu vandræði. Skrímslin skiptast á að vera í aðalhlutverki og á þessum tveimur opnum sem hér sjást úr bókinni Skrímsli í heimsókn er komið að stóra skrimslinu að segja frá. Myndirnar segja meira en mörg orð um líðan þess. Áslaug notar myndbyggingu, hlutföll, liti og form til að miðla atburðarásinni og tilfinningum persónanna til jafns við textann. Textinn verður oft hluti af myndinni þar sem Áslaug leikur sér með uppsetningu hans, stærð og leturtegundir út frá framvindu sögunnar hverju sinni. Stundum skapast skemmtileg víxlverkun þar sem texti og myndir skiptast á um að miðla upplýsingum. Áslaug hefur oft notað texta inn ( myndir sínar en í skrímslabókunum hefur hún þurft að taka tillit til þess að þær eru prentaðar þe8>r stóra skrimslið vaknar kvartar það strax: ~Mér ^ les ég ævintýri. - Bækur eru 'iviitieibinieifSr, h"ussar stóra skrlmslið. ’ ~ Ég vil h°rfa á hasarmynd! Svo hlustar það á alla söguna og heimtar að ég lesi meira. Tilfinningar fá áþreifanlegt form I bókinni Skrimslapest má sjá hvernig óþol litla skrímslisins stigmagnast. Litla skrímslið hefur fært stóra skrímslinu hressingu, sungið fyrir það og lesið kunnuglega bók, viðrað sængina, spilað á spil og poppað fyrir stóra skrímslið. En stóra skrímslið er vanþakklátt og þykist alltaf vilja eítthvað annað. Að lokum er litla skrímslinu nóg boðið og tilfinningar þess eru sýndar i textalausri opnu. Orð eru óþörf. Sálfræðilegt innsæi höfunda skrímsla- bókanna er mikið og þeir taka á erfiðum aðstæðum er tengjast mannlegum sam- skiptum og breyskleika. Áslaugu tekst að miðla hugmyndum þeirra á táknrænan og

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.