Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 58
Í fræðslunni hjá
okkur fá þau að
hugsa um hluti sem þau
hafa ekki fengið að velta
fyrir sér áður og það er
einhver sem hlustar á
spurningar og vanga-
veltur þeirra með fullum
áhuga.
Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.is
Fermingarbörn eru klár og þau
eru að velta fyrir sér ýmsum
stórum spurningum. Í borgara-
legri fermingarfræðslu er lögð
áhersla á að hlusta, taka mark á
börnunum og undirbúa þau fyrir
lífið.
Áslaug Guðný Unnsteinsdóttir,
leiðbeinandi í borgaralegri ferm-
ingarfræðslu Siðmenntar, segir að
það sem skiptir fermingarbörn
mestu máli sé að finna að það sé
hlustað á þau. Hún fermdist sjálf
hjá Siðmennt og er ekki trúuð en
fór í nám í guð- og trúarbragða-
fræði við Háskóla Íslands því hún
hefur alltaf haft mikinn áhuga á
trúarbrögðum.
„Ég hef sérstakan áhuga á því
hvernig trúarbrögð láta fólk gera
bæði góða og slæma hluti í nafni
trúarinnar. Mig langaði að skilja
fólk betur,“ segir Áslaug.
Hún segir að námið hjálpi henni
sem leiðbeinanda.
„Það hjálpar af því að börnin
spyrja oft um guð og eru að velta
þessu fyrir sér. Þá er skemmtilegt
að geta útskýrt hlutina með því að
gefa þeim dæmi úr ýmsum trúar-
brögðum, ekki bara kristni,“ segir
Áslaug.
Áhersla á umræður
Áslaug segir að borgaraleg ferm-
ingarfræðsla gangi út á að kenna
börnunum hluti sem muni nýtast
þeim gegnum lífið.
„Þau læra um gagnrýna hugsun
og siðfræði og það er verið að
kenna þeim eitthvað sem skóla-
kerfið kennir þeim ekki,“ segir
hún. „Fræðslan fer þannig fram að
það er kynning eða fyrirlestur og
svo umræður. Síðan taka við leikir
og verkefni sem tengjast námsefn-
inu. Í lok tímans sest ég svo niður
með krökkunum og við ræðum
daginn og veginn og tökum smá
pælingar, bæði út frá námsefninu
og ekki. Þetta snýst rosalega mikið
um samtal og heimspekilegar
umræður um efnið og pælingar og
spurningar út frá því.
Fræðslan fer fram á hóteli í
Reykjavík en svo eru líka helgar-
námskeið í SÍBS-húsinu og um
helgar er einnig boðið upp á þessa
fræðslu víða á landsbyggðinni,“
segir Áslaug.
Tekið mark á þeim
Áslaug leiðbeinir þremur hópum
og í hverjum eru 15-20 krakkar.
Hún segir að það sem brennur
helst á krökkunum sé að einhver
hlusti á þau.
„Mér finnst skólakerfið ekki
taka nægilegt tillit til þess hvað
þau eru ótrúlega klár og spekúl-
era mikið í hlutum,“ segir hún.
Börnin vilja að hlustað sé á þau
Áslaug Guðný
Unnsteinsdótt-
ir, leiðbeinandi
í borgaralegri
fermingarfræðslu
Siðmenntar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
„Í fræðslunni hjá okkur fá þau
að hugsa um hluti sem þau hafa
ekki fengið að velta fyrir sér áður
og það er einhver sem hlustar
á spurningar og vangaveltur
þeirra með fullum áhuga. Þau
eru mjög mikið að velta fyrir sér
geðheilbrigðismálum, kynjamis-
rétti, mannréttindum og öðrum
tengdum málefnum. Þau eru líka
að velta fyrir sér alls konar stórum
spurningum eins og „af hverju
trúir fólk á guð?“ og „hvers vegna
er sumt fólk með fordóma gagn-
vart múslímum?“. Þau eru mjög
klár.“
Að fræðslunni lokinni tekur svo
athöfnin sjálf við.
„Athöfnin er fyrst og fremst
viðurkenning á því að hafa sótt
námskeiðið og lokið því, að við-
komandi sé búinn að fá næga
þekkingu til að vera tilbúin(n) til
að fara út í lífið,“ segir Áslaug.
Fræðslan gaf henni mikið
„Það er mikilvægt að bjóða upp á
borgaralega fermingu vegna þess
að það eru ekki allir trúaðir og
það eru ekki allir sem eru trúaðir
kristnir,“ segir Áslaug. „Mér finnst
líka eins og efnið sem við tökum
fyrir vanti í skólakerfið og það er
rosa gott að geta boðið upp á góða
fræðslu. Kynfræðslan hjá okkur
eru til dæmis mjög fín en þau
fá ekki nógu góða kynfræðslu í
skólanum.“
Sjálf fermdist Áslaug borgara-
lega árið 2010 af því að hún trúir
ekki á guð og segir að fræðslan
hafi gefið sér mjög mikið.
„Sérstaklega þetta með gagn-
rýna hugsun. Í fyrsta sinn var
verið að biðja mig um að horfa á
eitthvað með gagnrýnum augum
og spyrja mig hvað mér fannst,“
segir hún. „Loksins var eins og
ég skipti máli og leiðbeinandinn
hafði raunverulegan áhuga á því
sem ég sagði.“
Hún ákvað svo að gerast leið-
beinandi hjá Siðmennt eftir að
hafa heyrt góða hluti frá vinum
sem eru leiðbeinendur.
„Þau sögðu að þetta væri
yndislegt og ég hef mjög gaman
af börnum, sérstaklega á þessum
aldri, og mér finnst ekki nógu
mikið hlustað á þau,“ segir Áslaug.
„Mig langaði að læra af þeim og
taka þátt í að móta huga ungs fólks
sem er að verða fullorðið.“
34 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURFERMINGAR
Í Stórkaup færðu úrval rétta á veisluborðið eins og kjúklingaspjót,
smápítsur og beikondöðlur ásamt girnilegum eftirréttum og gómsætum
bitum. Dúkarúllur, renningar, servíettur og ýmiskonar skreytingaefni.
Skoðaðu úrvalið áður en þú ferð lengra.
FERMINGARVEISLA FRAMUNDAN?
567 9585 | storkaup@storkaup.is | Faxafeni 8, 108 Reykjavík