Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 6
STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðherra
hefur samið við Jón Steinar Gunn-
laugsson, hæstaréttarlögmann og
fyrrverandi dómara við Hæstarétt
Íslands, um aðstoð við vinnu ráðu-
neytisins að styttingu málsmeð-
ferðartíma í refsivörslukerfinu.
Í samningum, sem Fréttablaðið
óskaði eftir frá ráðuneytinu, segir
að verkefnið sé enn í mótun en um
sé að ræða greiningu á málsmeð-
ferðartíma allt frá því rannsókn lög-
reglu hefst og að upphafi afplánun-
ar, auk viðbragða af ýmsu tagi sem
miða að því að stytta þennan tíma.
Réttarfarsnefnd, sem er ráðherra
til ráðgjafar í málum sem varða rétt-
arfar, hefur ekki fengið upplýsingar
um þessa vinnu ráðuneytisins né
hefur verið óskað eftir aðkomu
nefndarinnar að málinu.
„Réttarfarsnefnd hefur ekki
fengið erindi og er alveg ókunnugt
um þetta,“ segir Sigurður Tómas
Magnússon, hæstaréttardómari og
formaður réttarfarsnefndar. Hann
segir það oft hafa gerst að öðrum en
nefndinni sé falið að sinna ýmsum
verkefnum á sviði réttarfars, þótt
réttarfarsnefnd hafi yfirleitt ein-
hvern tíma í ferlinu komið að því.
„Við erum náttúrulega fyrst ráðgef-
andi gagnvart ráðherra, ýmist um
þau frumvörp sem búið er að semja
eða á eftir að semja,“ segir Sigurður.
Eins og Fréttablaðið hefur fjallað
um hefur töf á málsmeðferðartíma
ítrekað valdið því að refsing er
milduð í dæmdum málum. Lands-
réttur mildaði til dæmis refsingu í
sjö nauðgunardómum á síðasta ári
vegna tafa á málsmeðferðinni. –aá
NORÐURLAND Sveitarstjórnir fjög-
urra sveitarfélaga í Austur-Húna-
vatnssýslu hafa ákveðið að kosið
verði um sameiningu þann 5. júní
næstkomandi.
Sameiningin var kynnt á tveimur
rafrænum íbúafundum síðast-
liðinn miðvikudag og laugardag.
Va ld i ma r O. Her ma n n s s on ,
sveitarstjóri Blönduósbæjar, segir
yfirgnæfandi jákvæðni hafa ríkt á
fundunum.
Auk þessara tveggja sveitar-
félaga eru tvö minni í viðræð-
unum, Skagabyggð og Húnavatns-
hreppur. Valdimar segir að brátt
verði fundað um framkvæmdina
og hvað gerist ef sameining verður
felld einhvers staðar. Það er hvort
hin geti sameinast beint eða ferlið
verði að hefjast upp á nýtt.
Árið 2005 var sameining Aust-
ur-Húnavatnssýslu felld með
afgerandi hætti. Á Blönduósi var
hún samþykkt með 86 prósentum
atkvæða en felld í hinum þremur,
á Skagaströnd með 92 prósentum.
Valdimar telur að meiri jákvæðni
sé fyrir sameiningu nú.
„Helsti ágreiningurinn er hinn
gamalgróni hrepparígur. Kannski
sérstaklega milli Skagastrandar og
Blönduóss,“ segir Valdimar. „Það er
líka alltaf ótti við að stjórn og þjón-
usta verði of miðlæg á einum stað.“
A lex a nd r a Jóha n ne sdót t i r,
sveitarstjóri Skagastrandar, segir
ágreining hafa legið í staðsetningu
stjórnsýslunnar og starfa. „Íbúar
hafa áhyggjur af áskorunum tengd-
um skólamálum þar sem fyrirhug-
að er að sameina Húnavallaskóla og
Blönduskóla,“ segir hún. „Eðlilega
eru margir hræddir við óvissuna
sem óhjákvæmilega fylgir miklum
breytingum.“
Öl l f jö g u r s ve it a r f é l ö g i n
eru undir 1.000 íbúa lágmarki
nýs f r umvar ps Sig urðar Inga
Jóhanns sonar, samgöng u- og
sveitarstjórnar ráðherra. Valdimar
er ekki fullkomlega sannfærður um
að sá hluti frumvarpsins rati þó inn
í löggjöfina og Alexandra segir það
beinlínis ólíklegt.
„Við vildum þó láta reyna á þetta
áður en lögin taka gildi. Enginn vill
fara í lögþvingaða sameiningu frek-
ar en lögþvingað hjónaband,“ segir
Valdimar og hefur efasemdir um að
þvinguð sameining yrði farsæl.
Samanlagður íbúafjöldi er aðeins
1.900 manns og hafa sveitarfélögin
þegar mikið samstarf í gegnum
byggðasamlög.
Samkvæmt Valdimari kom fram
vilji til að binda hnútinn á þessa
sífelldu umræðu. „Fólki f innst
óþarfi að vera með fjögur sveitar-
félög á þessu svæði,“ segir hann og
bendir á að stórar sameiningar hafa
orðið bæði til austurs og vesturs,
það er í Skagafirði og Húnaþingi
vestra.
„Það er fjárhagslegur hvati í Jöfn-
unarsjóði til sameiningar, fjármun-
ir til skuldajöfnunar og endurupp-
byggingar stjórnsýslunnar. Margir
hefðu þó viljað sjá meiri hvata af
hálfu hins opinbera, svo sem sam-
göngubætur eins og oft vill verða í
sameiningum.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Réttarfarsnefnd
hefur ekki fengið
erindi og er alveg ókunnugt
um þetta.
Sigurður Tómas
Magnússon,
formaður réttar-
farsnefndar
Enginn vill fara í
lögþvingaða sam-
einingu frekar en lögþving-
að hjónaband.
Valdimar O.
Hermannsson,
sveitarstjóri
Blönduósbæjar
Snjóflóðagrindum
verður komið fyrir og land
handan varnargarða mótað.
Hrepparígur gæti flækt málin
Sameiningaráform og íbúakosning 5. júní hafa verið kynnt Austur-Húnvetningum. Boðuð lagasetning
um íbúafjölda ýtti við sveitarstjórnum fjögurra sveitarfélaga. Fyrirvarar hafa verið mestir á Skagaströnd.
Sveitastjóri Blönduósbæjar segir yfirgnæfandi jákvæðni hafa ríkt á sameiningarfundunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÍSBAND ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 18:00 • OPIÐ FÖSTUDAGA 07:45 - 17:00
VIÐURKENNT ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
FIAT HÚSBÍLAR - ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
SMURÞJÓNUSTA
Jón Steinar skoðar réttarfarsúrbætur fyrir ráðherra
FLUGSAMGÖNGUR Icelandair Group
birti f lutningatölur fyrir febrúar-
mánuð í Kauphöllinni í gær þar
sem fram kom að heildarfjöldi far-
þega í millilandaf lugi með vélum
fyrirtækisins var um 5 þúsund í
febrúarmánuði. Það er samdráttur
upp á 98 prósent á milli ára eftir því
sem fram kemur í tilkynningunni
en framboð á sætum minnkaði um
95 prósent á milli ára.
Þar kemur fram að nánast ein-
göngu sé um að ræða farþegaflug til
Íslands en farþegum sem nýttu sér
tengiflug fyrirtækisins milli Evrópu
og Norður-Ameríku fækkaði veru-
lega. Fraktf lutningar héldu sjó og
voru sambærilegir og á sama tíma
í fyrra. – kpt
Aðeins fimm
þúsund farþegar
Vélar Icelandair. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
NÁTTÚRUVÁ Bæjarstjórn Ísafjarðar
mun styrkja þau hús á Flateyri sem
eru í mestri snjóflóðahættu í sumar.
Er þetta hluti af aðgerðaáætlun sem
ráðist var í vegna snjóf lóðanna í
janúar árið 2020.
Verður meðal annars komið fyrir
skotheldu gleri fyrir gluggaop til að
snjór komist ekki inn og styrktum
hurðum, veggjum og lofti ef þarf.
Alls er um átta hús að ræða, við
Ólafstún, Goðatún og Hjallaveg.
Lagt er til að valin verði þrjú hús til
að byrja með og er heildarkostnað-
urinn 25 milljónir króna.
Snjóflóðavarnirnar sjálfar verða
einnig bættar. Komið verður upp
snjóf lóðagrindum á Eyrarfjalli til
þess að draga úr snjósöfnun. Sam-
bærilegar grindur eru til dæmis til
á Patreksfirði.
Þá verður land grafið upp og
mótað handan núverandi varnar-
garða og jarðvegsrannsók nir
framkvæmdar á hafnarsvæðinu. Í
fyrra f læddi inn í höfnina og fjöl-
margir smábátar skemmdust eða
gjöreyðilögðust. Kostnaðurinn við
grindurnar er metinn 150 milljónir
króna og landmótunina 150 til 180
milljónir. – khg
Húsin í hættu
fá skothelt gler
9 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð