Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 71
Innbundin Rafbók
HAMINGJUÓSKIR!
Forlagið óskar Gerði Kristnýju til
hamingju með Fjöruverðlaunin 2021.
Úr umsögn dómnefndar:
Iðunn og afi pönk lýsir veröld ellefu ára stelpu
í Mosfellsbæ. Atburðarásin hverfist um afa
hennar, dularfullt reiðhjólshvarf og grunsamlegar
stelpur í hverfinu. ... Gerður Kristný skrifar af
leikandi húmor, með skáldlegri hrynjandi og
smitandi ást á tungumálinu.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10-18 | Um helgar 11-16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
2021
Bókmenntaverðlaun kvenna, trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi voru af hent í
gær í fimmtánda sinn. Þau nefnast
Fjöruverðlaun og eru veitt í þremur
flokkum.
Í f lokki fagurbókmennta voru
það Hetjusögur eftir Kristínu Svövu
Tómasdóttur sem hrepptu verð-
launin. Þær eru gefnar út af Bene-
dikt bókaútgáfu. Í f lokki fræðibóka
og rita almenns eðlis hlaut verð-
launin Konur sem kjósa: Aldarsaga
eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur,
Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragn-
heiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H.
Þorvaldsdóttur sem Sögufélag gefur
út. Og í f lokki barna- og unglinga-
bóka hlaut Iðunn og afi pönk, eftir
Gerði Kristnýju, Fjöruverðlaunin.
Mál og menning gefur þá bók út.
Kristín Svava hefur sérstöðu
meðal verðlaunahafa því hún
hlýtur verðlaun í tveimur flokkum.
Segir blaðamann grípa hana í svo-
lítið kaótískri stemningu þegar
hann hringir en segir svo:
„Þetta er mikill heiður fyrir mig.
Formin eru ólík í þessum tveimur
viðfangsefnum en þau eru samt
skyld og kallast á. Það er erfitt að
gera upp á milli þeirra, því bæði
eru „betri“. Dálítið gaman að hafa
verið að vinna þau samtímis og fá
svo verðlaun fyrir þau bæði sama
daginn!“
Erla Hulda Halldórsdóttir, ein
þeirra sem skrifuðu Konur sem
kjósa … sagði: „Þetta var mjög gef-
andi og skemmtilegt verkefni. Það
tók langan tíma en verðlaunin eru
merki þess að verkið hafi lukkast
hjá okkur. Þarna er sagan sögð út frá
sjónarhóli kvenna og karlarnir eru í
aukahlutverkum. Þeir eru vissulega
með formlega valdið en við sýnum
hvernig konur eru að leita leiða til
að verða fullgildir gerendur í þessu
samfélagi.“
Gerður Kristný segir það aldr-
ei verða hversdagslegt að taka við
bókmenntaverðlaunum og lýsir
lauslega inntakinu í Iðunni og afa
pönk. „Iðunn er ellefu ára stelpa
í Mosfellsbæ. Pabbi hennar og
mamma skreppa út á land og afi
hennar býr hjá henni á meðan.
Þeim kemur mjög vel saman, afinn
hlustar aðallega á Ramones og hefur
anda pönksins sér til fulltingis, pönk
sem gengur út á frelsi og að allir fái að
vera eins og þeir vilja. Ég vona að það
sé góð speki fyrir okkur öll.“ – gun
Fjöruverðlaunin
veitt á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna
Verðlaunahafarnir fengu listaverk
eftir Koggu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kristín Svava
Tómasdóttir.
Gerður Kristný.
Erla Hulda
Halldórsdóttir.
Hvað er svona heillandi við fortíðina og hvernig er best að vinna upp úr gömlum
raunveruleika og setja í samhengi
við samtímann? Þetta ætla rithöf-
undarnir Kristín Svava Tómas-
dóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og
Ófeigur Sigurðsson að ræða um á
bókakaffi í Gerðubergi annað kvöld
undir stjórn Höllu Þórlaugar Óskars-
dóttur. Öll eiga það sameiginlegt að
hafa grúskað í fornum heimildum í
leit að innblæstri og nú ætla þau að
segja frá afrakstrinum.
Öll gáfu þau út bækur fyrir síðustu
jól í kjölfar heimsókna á einhvers
konar skjalasöfn. Kristín Svava
skrifaði ljóðabókina Hetjusögur upp
úr riti um ljósmæður, Þóra Karítas
byggir skáldsögu sína, Blóðberg, að
einhverju leyti á sögu Þórdísar Hall-
dórsdóttur, fyrstu konunnar sem
var tekin af lífi í Drekkingarhyl, og
Ófeigur Sigurðsson leitaði innblást-
urs í gömlum skjölum þegar hann
skrifaði Váboða, safn smásagna.
Umræðurnar standa frá klukkan
20 til 21.30. – gun
Skáldin ætla að spjalla um skjalagrúsk í Gerðubergi annað kvöld
Ófeigur leitar
víða eftir inn-
blæstri þegar
hann fæst við
ritstörf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 9 . M A R S 2 0 2 1