Fréttablaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 64
Bar mitsvah er afar þýðingarmikil
athöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Fermingar eru afar mikilvægur
þáttur í menningu gyðinga og
er athöfnin fyrir stúlkur kölluð
Bat mitzvah, Bar mitzvah fyrir
drengi. Fermingarathafnir drengja
eru yfirleitt fyrirferðarmeiri en
samkvæmt lögum gyðingdóms
eru 13 ára drengir orðnir ábyrgir
fyrir siðferðislegum og trúarlegum
gjörðum og ákvörðunum sínum
og þannig komnir í fullorðinna
manna tölu en fram að þeim tíma
eru foreldrar drengsins ábyrgir
fyrir honum.
Samkvæmt hefð þakkar faðir
fermingardrengsins guði fyrir það
að vera ekki lengur ábyrgur fyrir
gjörðum sonar síns í athöfninni og
eftir athöfnina getur drengurinn
jafnvel fengið það hlutverk að leiða
bænastundir og aðrar athafnir
innan fjölskyldunnar eða sam-
félagsins.
Stúlkur eru aftur á móti 12 ára
meðal strangtrúaðra gyðinga en
13 ára meðal frjálslyndari gyðinga
þegar athöfnin fer fram. Fermingar
eru oft til þess að sýna fram á efna-
hagslega stöðu fjölskyldunnar og
veislurnar stærri eftir því sem fjöl-
skyldurnar eru efnameiri.
Stór stund í
gyðingdómi
Kransakökur hafa verið borðaðar
á Íslandi í um 100 ár og fylgja oft
fermingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kransakökur eru staðalbúnaður
í öllum fermingarveislum í dag.
Bakarameistarar hófu að baka
þessar kökur hér á landi fyrir um
öld síðan en lengi vel hafði bara vel
stætt fólk efni á þeim.
Fjallað var um sögu kransa-
kökunnar í Dagblaðinu Vísi árið
1988 og þar kom fram að kakan
eigi rætur að rekja til Danmerkur
og Þýskalands. Kakan var aðeins
notuð til hátíðarbrigða eins og við
afmæli, fermingu eða brúðkaup,
en lengi vel voru það bara einstaka
bakarameistarar sem réðu við að
gera slíkar kökur og bara þeir efna-
meiri sem höfðu efni á þeim.
Algengt var að kakan væri í
formi gnægtarhorns og hún var
yfirleitt borin fram með kampa-
víni, en ekki kaffi, eins og tíðkast
í dag. Skreytingarnar voru allar
gerðar í bakaríum og það var
mikið lagt í þær og konfektgerð
fyrir kökurnar.
Það var svo fyrir rúmlega 30
árum sem fermingarkökur hættu
að vera aðeins lúxus hinna efna-
meiri og urðu staðalbúnaður í
öllum fermingum.
Kransakökur í
heila öld
Almost Famous er dæmi um frá-
bæra kvikmynd með„Coming of
age“-stefinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Fermingar hafa í gegnum tíðina
verið táknræn athöfn sem markar
þau mikilvægu umskipti sem
eiga sér stað þegar börn verða að
táningum og eru þar af leiðandi
að stíga sín fyrstu skref inn í heim
fullorðinna. Í flestum menningar-
heimum þykir þetta þroskaferli
merkilegt enda eiga allir fullorðnir
það sameiginlegt að hafa gengið í
gegnum þessa reynslu.
Það kemur því ekki á óvart að
þetta er ævafornt og endurtekið
stef í heimi bókmennta og kvik-
mynda. Í bókmenntum er gjarnan
talað um Bildungsroman en í heimi
kvikmynda er oftast talað um
„Coming of age“. Þetta stef er að
finna í fjölda sígildra kvikmynda
en meðal þeirra má nefna Stand by
me, My girl og Almost Famous.
Það er tilvalið fyrir fermingar-
börn og foreldra þeirra að eiga góða
kvöldstund og horfa á vel valda
kvikmynd þar sem þetta tímabil
kemur við sögu. Þetta er fullkomið
tækifæri til að ræða hluti sem
annars getur verið erfitt að ræða
og þannig styrkja sambandið áður
en táningsárin skella á með fullum
þunga.
Sígilt stef sem hentar vel fyrir gæðastundir
Í bókmenntum er
talað um Bildungs-
roman en í heimi kvik-
mynda er oftast talað
um „Coming of age“.
40 kynningarblað 9. mars 2021 ÞRIÐJUDAGUR FERMINGAR
Ve
rð
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tta
rv
ill
ur
o
g/
eð
a
br
ey
tin
ga
r.
ZERO
GRAVITY
HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMA
STILLANLEGT HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU, EIN ALLRA
BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
Verð frá kr. 439.900.-
PANDORA
RAFSTILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
Verð 219.900.-
VANDAÐUR RAFDRIFINN LEÐURSÓFI
Verð kr. 524.900.-BARON
Gerðu frábær kaup
Afsláttur af skiptidýnum, eldri gerðum,
sófum, hvíldarstólum, mjúkvöru og fl.
120×200 cm: Verð áður kr. 84.900
NÚ AÐEINS KR. 74.900
Fleiri stærðir og gerðir í boði
ÝMIR
7 SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNA
MEÐ BOTNI OG FÓTUM10.000 kr.
AFSLÁTTUR AF
HEILSURÚMUM
FRIGG IÐUNN MIÐGARÐUR
25%
AFSLÁTTUR AF
MJÚKVÖRU
VIÐ DÝNUKAUP
FERMINGARTILBOÐ
Í FULLUM GANGI
HÖFÐAGAFLAR
OG RÚMFÖT
VANDAÐAR SÆNGUR OG
KODDAR Í ÚRVALI
SÆNGURVER OG
NÁTTSLOPPAR
LEXON FLIP
VEKJARAKLUKKA
MARGIR LITIR
Minni gerð kr. 5.500.-
Stærri gerð kr. 6.900.-
MIKIÐ
ÚRVAL AF
FERMINGAR-
GJÖFUM
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
UM FJÓRÐUNGUR LANDS-
MANNA SEFUR Á DÝNU
FRÁ SVEFN & HEILSU*
*Samkvæmt könnun frá Gallup.
MIKIÐ
ÚRVAL
Í STÆRRI
GERÐUM
FLEIRI
STÆRÐIR,
OG GERÐIR
Í BOÐI