Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.2000, Side 15
Skýrsla sljómar SFR 1 9 9 9 H1
Þróunar- og
símenntunarsjóður SFR
Rétt er að rifja aðeins upp tilgang
og markmiðið með þróunar- og
símenntunarsjóðnum þar sem um
tiltölulega nýjan sjóð er að ræða.
I kjarasamningunum 1997 var
samið um að komið yrði á laggirnar
sjóði sem fékk nafnið þróunar- og
símenntunarsjóður SFR. Atvinnurek-
endur skulu greiða til sjóðsins sem
svarar til 0,28% af heildarlaunum
starfsmanna. Markmiðið með sjóðn-
um kemur best fram í upplýsinga-
bæklingi sem stjórn sjóðsins gaf út
og sendur var til allra þeirra stofn-
ana sem SFR félagar starfa hjá. Þar
segir:
„Markmiðið með sjóðnum er að
styrkja stofnanir og starfsmenn þeirra
með auknum möguleikum á mark-
vissri sí- og endurmenntun.
Með tilkomu sjóðsins opnast
leiðir fyrir stjórnendur stofnana til
að sníða námskeið og starfsnám að
þörfum starfsmanna sinna og stofn-
unar. Sjóðurinn gefur aukna mögu-
leika fyrir stjórnendur til að vinna
markvisst að framtíðarsýn og settum
markmiðum. Með því að skipuleggja
nám starfsmanna er hægt að undir-
búa starfshópinn fyrir breytingar í
vinnuumhverfinu og hægt að auka
færni hans og þekkingu á markviss-
an hátt. Eða með öðrum orðum;
það er hægt að vera samstíga þeirri
öru þróun sem á sér stað í hinu sí-
breytilega starfsumhverfi samtím-
ans."
Á árinu voru veittir styrkir til alls
16 verkefna og má þar m.a. nefna
styrki vegna námskeiða Ríkisspítal-
anna, Fangavarðafélags fslands, Fé-
lags umsjónarmanna, Háskóla fs-
lands og Þjóðleikhússins.
í stjórn sjóðsins eru Guðmundur
H. Guðmundsson og Ásgeir Kristins-
son sem skipaðir eru af hálfu ríkisins
og Lára Hansdóttir og Árni St. Jóns-
son skipuð af hálfu SFR.
Genfarskólinn
Genfarskólann er vettvangur norrænna
verkalýðsfélaga til þess að efla félags-
menn sína í alþjóðlegu samstarfi. Á síðast-
liðnu ári sótti gjaldkeri SFR, Birna Karlsdóttir,
þennan skóla sem er starfræktur í nánu
samstarfi við ILO (Alþjóðlegu vinnumála-
stofnunina) sem er ein af stofnunum Sam-
einu þjóðanna. Ásamt því að efla og styrkja
norrænt samstarf á þessu sviði, er alþjóð-
lega vinnumálaráðstefnan, sem haldin er í
Genf í Sviss í þrjár vikur á hverju ári, aðal-
viðfangsefni skólans.
Einn liður í starfi skólans er heimsókn til
PSI, en það eru alþjóðasamtök opinberra
starfsmanna sem hafa höfuðstöðvar sínar í
Ferney í Frakklandi. Þar tók á móti hópnum
fulltrúi PSI, Hans Engelberts, General Secret-
ary PSI, og sagði frá ýmsum þáttum í starf-
semi PSI; þ.á.m. baráttu gegn barnaþrælkun
en það málefni var einmitt eitt af þeim mál-
um sem efst voru á baugi á ILO ráðstefn-
unni.
Hans Engelberts og Birna Karlsdóttir sýna
nemendum við Genfarskólann veggspjald
sem PSI hefur gefið út til styrktar baráttu
gegn barnaþrælkun.
Félagstfðindi - mars 2000
15