Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.2000, Blaðsíða 24
H Skýrs 1 a stjdrnar SFR 1999
Trúnaðarmannaráð
og trúnaðarmannafræðsla
Trúnaðarmannaráð hefur komið
saman sjö sinnum frá síðasta að-
alfundi. Á fundunum hefur m.a.
verið fjallað um vinnuviðhorf íslend-
inga, skipuiagsform verkalýðshreyf-
ingarinnar, áhrif vinnutímatilskipun-
ar ES á íslenskan vinnumarkað,
Kjararannsóknarnefnd opinberra
starfsmanna, réttindamál (sameigin-
lega kröfugerð BSRB, BHM og KÍ),
fíkniefni og íslenskt samfélag,
skattakerfið út frá sjónarhóli launa-
fólks, úthlutunarreglur styrktar- og
sjúkrasjóðs, könnun á starfsumhverfi
ríkisstarfsmanna við aldahvörf, ráð-
stefnu launamálaráðs í Munaðar-
nesi, neytendamál, dómsmái og
hvað þrengi að lýðræði í íslensku
samfélagi. Einnig hafa fundirnir snú-
ist um almenn félagsmál, undirbún-
ing fyrir aðalfund o.fl.
Fræðslumorgnar fyrir fulltrúa í
launamálaráði hafa verið haldnir á
undan fundum ráðsins. Á þeim var
m.a. fjallað um trúnaðarmanninn
sem leiðtoga og sérstakri nýliða-
fræðslu var komið á fót fyrir ný-
kjörna trúnaðarmenn.
Síðastliðið haust fékk vinnuhóp-
ur, skipaður fulltrúum frá fræðslu-
nefnd SFR og St.Rv., það verkefni að
endurmeta trúnaðarmannanám-
skeiðið "Samstíga til framtíðar"
ásamt því að útfæra hugmynd að
framhaldsnámskeiði fyrir trúnaðar-
menn. Ekki voru gerðar miklar
breytingar á grunnnámskeiðinu þar
sem vel þótti hafa til tekist með
það, en nokkrir agnúar voru þó
sniðnir af. Ljóst var af ábendingum
þátttakenda á grunnnámskeiðinu að
full þörf var á aukinni fræðslu fyrir
trúnaðarmenn. Vinnuhópurinn vann
út frá þeim ábendingum ásamt því
að leita eftir hugmyndum þeirra
sem reynslu hafa af starfi fyrir félög-
in. Niðurstaðan varð þriggja daga
framhaldsnámskeið "Samstíga til
framtíðar II". Á námskeiðinu er lögð
áhersla á félagslega færni, samn-
ingatækni, hagnýta rökfræði, kjara-
samning, kynningu á hugtökum úr
heimi hagfræðinnar og kynningu á
lífeyrismálum.
24
Félagstfðindi mars 2000