Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.03.2000, Blaðsíða 21
Sky'rsla stjornar SFR 19 9 9
hugsun að menn greiði eftir efnum
en fái skilgreinda þjónustu eftir
þörfum.
Herða þarf eftirlit skattayfirvalda
verulega. Gagnrýnisvert er að innan
við 50 starfsmenn sinni almennu
skatteftirliti og einungis 15 sinni
skattrannsóknum.
Kjaramál
SFR leggur áherslu á eftirfarandi
sem grundvallaratriði í kjaramálum:
• að kaupmáttur launa á íslandi
verði sambærilegur við það sem
gerist í grannlöndum.
• að stöðugleiki í efnahagsmálum
sé ein meginforsenda árangurs [
kjaramálum
• að vinnutími á íslandi er óhóflega
langur. Vinna þarf markvisst að
því að stytta vinnutímann og leg-
gja grunn að fjölskylduvænni
kjarastefnu.
Auka þarf stöðugleika í starfs-
mannahaldi innan félags- og heil-
brigðisþjónustunnar með því að
tryggja starfsfólki mannsæmandi
laun.
Starfsmenntun
- endurmenntun
Á tímum örra þjóðfélagsbreytinga
skiptir starfs- og símenntun launa-
fólk æ meira máli. Þannig getur það
bætt sig og eflt í starfi og þar með
aukið eigin vellíðan og velferð, jafnt
í og utan vinnu.
Aðalfundur SFR vekur athygli á
því að félagið hefur á undanförnum
árum lagt mikla áherslu á menntun-
armál opinberra starfsmanna. Starf-
semi á þessu sviði hefur gefið góða
raun og félagsmenn gera sér fulla
grein fyrir mikilvægi hennar. Þeir
gera nú vaxandi kröfur á hendur
bæði vinnuveitendum og félaginu
um að meiri áhersla verði lögð á sí-
menntun. Þessum mikilvægu þörf-
um félagsmanna verður að sinna.
Markmið SFR er að launamenn
hafi tök á því alla sína starfsævi að
bæta við sig menntun og þjálfun,
samfélaginu öllu til mikilla hags-
bóta. Aukið menntunarstarf mun
skila vinnuveitendum hæfara og
ánægðara starfsfólki. Þá er Ijóst að
atvinnuöryggi veltur í æ ríkari mæli
á því að einstaklingurinn geti til-
einkað sér nýja þekkingu og hæfni
sem vinnan krefst f síbreytilegu
samfélagi tækni og nýjunga. Auk
þessa eru lífsgæði f vinnunni mun
mikilvægara baráttumál en áður var.
Það er af þessum ástæðum sem að-
gangur að símenntun og starfsþjálf-
un verður æ mikilvægari fyrir opin-
bera starfsmenn.
Þess vegna þurfa stjórnvöld að
taka upp markvissa stefnu í endur-
menntunarmálum starfsmanna
sinna og gera þeim kleift að leggja
stund á símenntun með skipulegum
hætti.
Samstarf verkalýðs-
hreyfingarinnar
Aðalfundur SFR hvetur til þess að
samtök launafólks í landinu endur-
meti skipulagsform sitt frá grunni
með það fyrir augum að efla og
bæta samstöðu launafólks. Sterk
verkalýðshreyfing er forsenda þess
að unnt sé að tryggja réttindi ein-
staklinga og verjast tilraunum at-
vinnurekenda til að bola fólki út úr
félögum og samtökum launafólks
og veikja þannig réttarstöðu starfs-
fólks.
Frá félagsmönnum SFR
Aðalfundur SFR þakkar öllum þeim
félagsmönnum sem starfað hafa á
vettvangi félagsins, í nefndum og
ráðum, sem og þeim sem lagt hafa
félaginu lið með einhverjum hætti.
Sérstakar þakkir eru færðar starfs-
mönnum félagsins fyrir gott og
mikið starf á liðnu ári.
- mars
21