Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 19
KYNNING 19DV 12. MARS 2021
F yrsta verslun Piknik var opnuð í júní árið 2019, í Hólagarði í Breiðholti, við frábærar mót-
tökur. Neytendur voru greinilega
búnir að bíða lengi eftir að komast í
alvöru nikótínvörur hvort sem um er
að ræða nikótínpúða, rafrettur eða
glerpípur. Verslunin býður einnig
upp á gott vöruúrval af vökvum fyrir
rafrettur, kveikjurum og öðrum
aukahlutum.
Ný verslun og nýjar vörulínur
Árið 2021 hefur heldur betur verið
viðburðaríkt hjá Piknik þrátt fyrir að
ekki sé lengra liðið á það. Í ársbyrjun
2021 opnaði Piknik sína aðra verslun
að Grensásvegi 16 til þess að anna
eftirspurn nikótínþyrstra neytenda.
Að auki kynnti fyrirtækið til leiks
tvær glæsilegar og nýjar vörulínur
af nikótínpokum.
10 dollur á 2.990 krónur
Um er að ræða spennandi nýjungar
sem ganga undir nafninu Snatch og
Dope. Þessar vörulínur voru kynntar
til sögunnar á áður óséðum verðum.
Sem dæmi geta neytendur nú fengið 10
dollur af Snatch nikótínpokum á 2.990
kr. eða 299 kr. dolluna, sem eru verð
sem hafa ekki sést áður á Íslandi. Að
sama skapi er hægt að fá 10 dollur af
Dope á 3.990 kr, eða 399 kr. dolluna.
Snatch kemur í þremur frískandi
bragðtegundum. Arctic mintubragðið
skellir þér beint á skíði á Tröllaskaga
Piknik býður upp á áður
óséð verð á markaðnum
Piknik er sérverslun sem sérhæfir sig í nikótínvörum fyrir kröfu-
harða neytendur sem vilja bara það besta. Markmiðið er að bjóða
upp á breitt úrval af fyrsta flokks nikótínvörum á góðu verði.
með fersku fjallabragði. Forest fruits
minnir þig á lautarferð í guðsgrænni
náttúrunni með bragðgóðum og sæt-
um ávöxtum. Og Frozen Ultra strong
er fyrir þá sem ögra sjálfum sér með
ísbaði líkt og Wim Hof sjálfur.
Dope byggir á instant kick tækni
og kemur einnig í þremur bragð-
tegundum. Freeze (Crazy Strong),
Ice Mango (Xtra Strong) og Ice Cool
(Xtra Strong).
Móttökurnar við þessum nýju vöru-
línum hafa vægast sagt farið fram
úr björtustu vonum. Þá er augljóst að
neytendur eru spenntir fyrir þessari
nýjung á markaðnum. Svo spillir ekki
fyrir hvað verðið er ótrúlega gott.
Báðar tegundirnar hafa selst í tug-
þúsunda tali síðan í byrjun árs 2021
og virðist vinsældunum hvergi vera
að linna.
Spennandi mögu-
leikar í framtíðinni
Piknik er virkilega ánægt að geta
komið til móts við óskir neytenda og
Dope kemur einnig í þremur bragðtegundum.
Freeze (Crazy Strong), Ice Mango (Xtra
Strong) og Ice Cool (Xtra Strong).
Snatch kemur í þremur frískandi bragðteg-
undum. Arctic mintubragði, Forest fruits og
Frozen Ultra strong.
Á heimasíðunni Piknik, www.piknik.is, finnur
þú hafsjó af nikótínvörum og færð þar að auki
fría heimsendingu ef verslað er fyrir meira en
5.000 krónur.
Piknik býður upp á
eitt stærsta úrval
af nikótínvörum í
Reykjavík og kynnir
nú tvær spenn-
andi vörulínur af
nikótínpokum á frá-
bæru verði.
MYND/AÐSEND
hlakkar til að bjóða upp á fleiri val-
möguleika í framtíðinni. Sem dæmi
má nefna að enn fleiri bragðtegundir
munu bætast við vöruúrvalið hjá
Piknik, ásamt enn fleiri valmögu-
leikum þegar kemur að styrkleikum
nikótínpúðanna! n
Verslunin Piknik opnaði glæsilegt útibú að Grensásvegi 16 í ársbyrjun 2021. MYND/STEFÁN