Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 24
MYNDIR/GETTY
SKJÁSKOT/YOUTUBE
SKJÁSKOT/YOUTUBE
24 FÓKUS
Máltíð í krukku
Hvað er betra en að byrja daginn á því að opna ísskápinn
og þar bíður þín tilbúinn morgun- eða hádegismatur? Hér
eru nokkrar uppskriftir að einföldum, hollum og góm-
sætum mat í krukku sem þú getur undirbúið kvöldið áður.
12. MARS 2021 DV
KALDUR HAFRAGRAUTUR Í KRUKKU
Grunnurinn
• Sama magn af höfrum og plöntumjólk. Til dæmis einn bolli hafrar og
einn bolli mjólk.
• Hlynsíróp (valkvætt)
• Kanill (valkvætt)
• Blandað saman og sett í ísskáp yfir nótt
Hugmyndir að hráefni til að setja ofan á grautinn: Epli, banani, jarðarber,
bláber, hnetusmjör, möndlusmjör, hampfræ, dökkt súkkulaði, valhnetur,
kókosflögur og jógúrt.
HNETUSMJÖRSGRAUTUR
• ½ bolli ósæt möndlumjólk (eða
önnur plöntumjólk)
• ¾ msk. chiafræ
• 2 msk. hnetusmjör m. salti
• 1 msk. hlynsíróp
• ½ bolli tröllahafrar
Ofan á (valkvætt): Banani, jarðar-
ber eða hindber.
Settu öll hráefni nema hafra í krukku
og hrærðu saman. Bættu höfrunum
við og hrærðu aftur saman. Geymdu
í ísskáp yfir nótt, eða í allavega sex
klukkutíma. Daginn eftir geturðu
borðað beint úr krukkunni eða bætt
við ferskum ávöxtum ofan á.
Uppskrift: YouTube/Minimalist Baker
KLASSÍSKUR
• 2 msk. chiafræ
• ½ bolli mjólk að eigin vali
• 1 tsk. hlynsíróp (valkvætt)
• ½ tsk. vanilludropar (valkvætt)
Allt sett í krukku, blandað saman
og geymt í ísskáp yfir nótt.
SÚKKULAÐI
• 2 msk. chiafræ
• ½ bolli mjólk að eigin vali
• 1 tsk. hlynsíróp (valkvætt)
• ½ tsk. vanilludropar (valkvætt)
• 1 msk. kakóduft
Allt sett í krukku, blandað saman
og geymt í ísskáp yfir nótt.
Getur toppað með frosnum hind-
berjum áður en þú lokar krukkunni.
Annað: Sniðugt er að nota frosna
berjablöndu. Ódýrara og þægi-
legra. Það er líka gott að setja
mangó og kókosflögur ofan á
grautinn. Endist allt að fimm daga
í ísskáp og nokkrar vikur í frysti.
Sniðugt að nota ílát sem eru ekki
of stór svo það komist minna loft.
GULRÓTARGRAUTUR SEM ER EINS OG KAKA
• 2 dl hafrar
• 2 dl plöntumjólk
• 1 dl rifnar gulrætur
• Hlynsíróp eftir smekk
• Kanill eftir smekk
• Pekanhnetur
• 1 msk. möndlusmjör (eða meira)
Blandaðu öllu saman í krukku og geyma í ísskáp yfir
nótt. Líka gott að strá pekanhnetunum yfir grautinn.
CHIAGRAUTAR
Salat í krukku
Það er auðvitað hægt að hafa
dressinguna í sérkrukku, en ef þú
ætlar að hafa allt innihaldið í einni
krukku þá er ákveðin formúla frá
HurryTheFoodUp sem auðvelt er
að fylgja til að tryggja að salatið
haldist ferskt og brakandi.
Formúlan
Það er gott að miða við að hafa um
700 ml krukku fyrir eitt salat.
Fyrsta lag: Dressing.
Annað lag: Grænmeti eins og tóm-
atar, gúrka, rauðlaukur, aspas, sell-
erí, gulrætur, paprika.
Þriðja lag: Eldað grænmeti eins og
sveppir, brokkolí eða kúrbítur. Hér
er líka gott að setja baunir, eins og
kjúklingabaunir eða linsubaunir, og
gular eða grænar baunir.
Fjórða lag: Soðin egg og ostur, eins
og fetaostur.
Fimmta lag: Hrísgrjón, pasta, kínóa
eða kúskús.
Sjötta lag: Hnetur og eit thvað
grænt, eins og kál, spínat eða
klettasalat.
Það þarf ekki að fylgja öllum sex
skrefunum, þú getur til að mynda
sleppt fjórða laginu ef þú ert vegan.
Þú getur líka sett vegan fetaost í
staðinn.
Aðferð
Byrjaðu á því að hafa öll hráefni til-
búin. Vertu búin/n að skera niður
og skola allt sem þarf að skera og
skola, elda það sem þarf að elda.
Útbúðu dressinguna.
Þegar allt er klárt raðarðu í krukk-
una og fylgir formúlunni hér að
framan. Settu síðan lokið ofan á og
krukkuna inn í ísskáp. Einfaldara
verður það ekki.
Annað: Þú getur leikið þér endalaust
með formúluna. Fyrir meira prótein
geturðu bætt við Oumph! eða öðru
sojapróteini eða kjúklingi.
Góð þumalputtaregla er að setja
blautu hráefnin neðst og þurru
efst.
Það fer eftir því hvað er í salatinu
hversu lengi það endist í ísskápnum.
Venjulega um fjóra til fimm daga.
SKJÁSKOT/HURRYTHEFOODUP.COM