Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Page 25
Það er mörgum unglingum mikilvægt að falla inn í hópinn og vera
ekki utangarðs. Því eru ungl
ingar sérstaklega viðkvæmir
fyrir hópþrýstingi og getur
það oft leitt til hörmunga. Þó
sjaldan með jafn hrottalegum
hætti og í Indíana í Banda
ríkjunum árið 1992.
Ást og afbrýði
Shanda Sharer var lífleg 12
ára stúlka. Árið var 1992 og
Shanda var nýbyrjuð í nýjum
skóla þegar hún kynntist
Amöndu Heavrin sem var
tveimur árum eldri. Fyrst
lenti stúlkunum saman, en
eftir að hafa lent í slagsmál
um slíðruðu þær sverðin og
urðu perluvinkonur. Fljótlega
þróaðist vináttan út í eitthvað
meira og skiptust stúlkurnar
á eldheitum ástarbréfum og
fóru saman á skólaball.
Það var á þessu skólaballi
sem Shanda hitti fyrrverandi
kærustu Amöndu, hina sex
tán ára gömlu Melindu Love
less. Melinda leit á Shöndu
sem keppinaut um hylli
Amöndu. Hún varð gífurlega
afbrýðisöm og varð heltekin
af því að gera út af við sam
keppnina. Melinda lagði fæð
á Shöndu, hótaði henni og
lýsti því yfir við Amöndu að
hún ætlaði sér að koma nýju
kærustunni fyrir kattarnef.
Hrúgald í vegarkanti
Þann 11. júní 1992 voru bræð
ur að veiðum þegar þeir komu
að hrúgaldi í vegarkanti. Við
nánari athugun reyndist um
brenndar líkamsleifar ungrar
stúlku að ræða.
Lögregla kannaði strax
hvort einhverjar tilkynn
ingar hefðu borist nýlega
um horfið barn og vaknaði
strax grunur um að hin látna
væri Shanda Sharer, en faðir
hennar hafði vaknað nóttina
áður og séð að dóttir hans var
ekki í herbergi sínu.
Áður en lögregla hafði náð
að hefja rannsókn af nokkru
viti, komu tvær unglings
stúlkur á lögreglustöðina
með foreldrum sínum og
höfðu skelfilega sögu að
segja, þær hefðu verið við
staddar þegar tvær vinkon
ur þeirra pyntuðu og myrtu
Shöndu um nóttina.
Stúlkurnar voru Hope Rip
pey og Toni Lawrance. Þær
höfðu farið á rúntinn með
17 ára vinkonu sinni, Laurie
Tackett, og töldu sig vera á
leið á tónleika. Hins vegar var
förinni heitið til fjórðu stúlk
unnar, sem reyndist vera
áðurnefnd Melinda Loveless.
Þegar Melinda bættist í hópin
var hún vopnuð eldhúshníf.
Hún gerði hinum þremur
ljóst að stúlka að nafni
Shanda hefði stungið undan
sér og því skyldu þær nema
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Shöndu á brott og hræða hana
í hefndarskyni.
Komu henni fyrir í skottinu
Fjórmenningarnir fóru að
heimili Shöndu. Þrjár þeirra
buðu Shöndu með á rúntinn
á meðan Melinda faldi sig
undir teppi í aftursætinu.
Þegar Shanda var komin inn
í bílinn stökk Melinda undan
teppinu og beindi hnífnum að
hálsi hennar, sem varð frá sér
numin af hræðslu. Melinda
heimtaði að Shanda viður
kenndi að hafa rænt Amöndu
frá sér. En fljótlega var ljóst
að Melinda ætlaði sér eitt
hvað meira en að hóta ungu
stúlkunni.
Stúlkurnar stöðvuðu bif
reiðina á fáförnum stað og
þar létu Melinda og Laurie
til skarar skríða. Þær börðu
Shöndu, spörkuðu í hana og
reyndu að skera hana á háls
með eldhúshnífnum. Þegar
hnífurinn reyndist bitlaus
greip Melinda á það ráð að
stinga Shöndu ítrekað og
þrengdu þær að hálsi hennar
með reipi þar til hún missti
meðvitund. Stúlkurnar töldu
að Shanda væri dáin, og komu
henni fyrir í skotti bifreiðar
innar. Síðan héldu þær förinni
áfram á meðan þær hugleiddu
næstu skref.
Enn lifandi
Þær afréðu loks að fara heim
til Laurie til að þrífa af sér
öll ummerki um það sem þær
höfðu gert. Þar voru þær
staddar þegar þær heyrðu óp
berast úr skotti bifreiðarinn
ar. Shanda var á lífi. Laurie
og Melinda stukku til. Og
óku burt. Þær stöðvuðu svo
bílinn þar sem enginn gat séð
til þeirra og stungu Shöndu
ítrekað þar til hún hætti að
gefa frá sér hljóð. Síðan héldu
þær aftur af stað og óku aftur
til fundar við hinar tvær.
Stúlkurnar ákváðu að
losa sig við líkið með því að
brenna það og nú var för
inni heitið að næstu bensín
stöð. Aftur heyrðist hljóð úr
skottinu. Laurie fór aftur að
skottinu og stakk Shondu enn
meira. Ekki lét hún þar við
sitja heldur nauðgaði Shöndu
með felgujárni. Aftur þagnaði
Shanda og virtist nú loks vera
látin eftir hrottalegar pynt
ingar og ofbeldi.
Brenndu líkamsleifarnar
Fjórmenningarnir komu næst
við á bensínstöð og fylltu þar
gosflösku af bensíni. Þær
óku síðan á afvikinn stað þar
sem þær vöfðu Shöndu inn í
teppi og lögðu á jörðina. Síðan
helltu þær bensíni yfir hana
og kveiktu í. Shanda var hins
vegar ekki dáin og engdist um
af sársauka. Stúlkurnar óku
nú burt, en Melinda ákvað að
þær þyrftu að snúa aftur við
og tryggja að líkamsleifarnar
myndu brenna. Aftur var
bensíni hellt yfir Shondu og
kveikt í. Loks töldu stúlkurn
ar þvínæst öruggt að Shanda
væri öll. Hvert er förinni
heitið í kjölfar svona hrotta
legs glæps? Nú á McDonald’s
SAKAMÁL auðvitað. Stúlkurnar settust niður á skyndibitastaðnum
vinsæla, þar sem þær gerðu
sér glaðan dag og gerðu grín
að glæpnum sem þær höfðu
framið, meðal annars líktu
þær pylsunum sem þær borð
uðu saman við líkama Shöndu
á meðan hann brann.
Þegar Toni og Hope voru
komnar heim til fjölskyldna
sinna var þó úr þeim allur
vindur og sögðu þær grátandi
alla söguna og fóru svo í fylgd
foreldra sinna á næstu lög
reglustöð.
Skömmu síðar voru allar
fjórar stúlkurnar hnepptar í
varðhald.
Sluppu við dauðarefsingu
Ákæruvaldið ákvað að stúlk
urnar yrðu sóttar til saka
sem fullorðnir einstaklingar,
þó engin þeirra væri lögráða.
Allar fjórar gerðu þær
dómsátt til að komast hjá
dauðarefsingu. Toni og Hope
fengu vægari refsingu þar
sem þeirra þáttur í morðinu
var minni en hinna tveggja.
Laurie tók virkan þátt og
fékk þungan dóm, sextíu ár.
Hún hafði ekki þekkt Shöndu
og ekkert átt við hana að sak
ast, en hún glímdi við andleg
veikindi, jaðarpersónuleika
röskun og þjáðist af rang
hugmyndum. Melinda var
talin höfuðpaurinn í málinu.
Við rannsókn málsins kom
í ljós að Melinda hafði alist
upp við hryllilegar aðstæður
og verið beitt grófu líkam
legu og kynferðislegu ofbeldi.
Leiddi þetta til þess að faðir
hennar var loks yfirheyrður
af lögreglu og hlaut dóm fyrir
kynferðisbrot. Í reynd kom á
daginn að allar fjórar stúlk
urnar höfðu glímt við andleg
veikindi og höfðu átt hrylli
lega æsku. En það réttlætir
þó ekki morð.
Hópþrýstingur ástæðan
Foreldrar Shöndu tóku and
lát dóttur sinnar nærri sér.
Faðir Shöndu beið þess aldr
ei bætur. Hann drakk sig í
hel og lést árið 2005. Móðir
Shöndu reyndi að láta gott
af sér leiða í nafni dóttur
sinnar. Hún gerðist ráðgjafi
fyrir þolendur ofbeldisbrota
og stofnaði sjóð í nafni dóttur
sinnar, sem styrkti ungar
konur til háskólanáms.
Stúlkurnar fjórar eru allar
frjálsar í dag, og eru orðnar
miðaldra konur. Laurie Tack
ett og Hope Rippey komu í
viðtal til Dr. Phil árið 2011 og
þar sagði Hope:
„Ég var hrædd, ég vissi
ekki hvað var að gerast, ég
vissi ekki hvað ég átti að gera.
Ég vissi ekki hvernig ég gæti
stoppað þetta. Ég veit að það
er eigingjarnt og rangt, en ég
vildi ekki gera þær reiðar.“
Laurie var á sama máli. „Ég
þekkti ekki Shöndu. Ég bjóst
ekki við að nokkuð myndi
gerast þetta kvöld og vildi
ekki að neitt sérstakt myndi
gerast. Hópþrýstingur – hann
var ástæðan. Þetta fór úr
böndunum alltof hratt, þetta
hefði aldrei átt að gerast.“ n
HÓPÞRÝSTINGURINN
VARÐ BANVÆNN
Hversu langt myndir þú ganga til að falla í hópinn? Lík-
lega ekki eins langt og fjórar unglingsstúlkur í Banda-
ríkjunum árið 1992, á örlagaríkum rúnti í bænum.
Shanda var
aðeins 12 ára
og hafði ekk-
ert unnið sér
til saka nema
að verða
ástfangin.
MYND/ÁRBÓK
HAZELWOOD-
SKÓLA
FÓKUS 25DV 12. MARS 2021