Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 27
Staðsetning: Laugavegur 20a
Týpan: Táningar, ungir háskólanemar og miðaldra
menn. Vinsæll staður meðal einhleypra.
Staðsetning: Bergstaðastræti 1
Týpan: Latte-lepjandi Vesturbæingar, fólk sem safnar
vínylplötum og MH-ingar með fölsuð skilríki.
Staðsetning: Ingólfsstræti 3
Týpan: Áfengissjúkir og þeir sem gefast upp á röðinni
fyrir utan Prikið.
Staðsetning: Óðinstorg
Týpan: Fólk sem þykist þekkja muninn á Merlot og
Shir az, landnámshænur, listamenn og fagurkerar.
Staðsetning: Bankastræti 12
Týpan: Fólk sem rakar sig ekki undir höndunum og
borðar ekki kjöt og háskólanemar sem kaupa föt í
Rauðakrossbúðinni.
Staðsetning: Aðalstræti 9
Týpan: Bjórvambir og bjórskólagengnir.
Staðsetning: Hverfisgata 12
Týpan: Virkir á Twitter og Gettu betur-nördar.
Staðsetning: Ingólfsstræti 1a
Týpan: Íslenska sauðkindin.
Staðsetning: Vegamótastígur 4
Týpan: Villi naglbítur, slúðurdrottningar og blaðamenn.
Staðsetning: Skólavörðustígur 15
Týpan: Fastagestir, ættingjar og vinir plötusnúðsins
og félagsfælnir.
Staðsetning: Austurstræti 10a
Týpan: Ráðherrar, söngvarar, leikarar og frægðar-
sleikjur.
Staðsetning: Laugavegur 30
Týpan: Rokkömmur, rokkafar, rokkmömmur og -pabbar
og rokkbörn. Líka mótorhjólagengi.
LEBOWSKI
Hér eru flestir í kringum tvítugt. Tónlistin er alls konar
og því ættu flestir að heyra eitthvað við sitt hæfi. Einn
og einn miðaldra maður sem hefði betur setið heima.
Staðurinn er stór en efri hæðin gjarnan lokuð.
KAFFIBARINN
Hipsterarnir úr Vesturbænum skipta úr latte-inu yfir
í ölið á Kaffibarnum. Þar er dansað og heimspekileg
málefni eru klofin til mergjar á reykingasvæðinu. Sal-
ernin eru fá og fólk brúkar þau gjarnan í öðrum tilgangi
en þeim er ætlað svo þú mátt búast við að þurfa að
bíða nokkuð lengi eftir að fá að létta á þér.
DEN DANSKE KRO
Vildir þú að allir dagar væru Þjóðhátíð? Þá skaltu skella
þér á Danska. Trúbadorar spila brot af því besta úr
Brekkusöngnum og gestir reyna að halda jafnvægi á
dansgólfinu sem er annað hvort klístrað eða sleipt.
BODEGA
Tapas og vínbar. Fullkomið fyrir vinahópa sem elska
vín. Staður fyrir þá sem kunna vel að meta að sitja
og ná kannski nokkrum laumumyndum af frægu fólki.
PRIKIÐ
Ef þú hættir þér upp brattan stigann eftir miðnætti á
laugardegi ertu maður með mönnum. Rétti staðurinn
fyrir flesta -ista, femínista, veganista og kommúnista.
90‘s tískan ræður för og fólk er ekki hrætt við að dansa
uppi á borðum.
SKÚLI CRAFT BAR
Ef þú elskar góðan bjór og ert tilbúinn að borga hvítuna
úr auganu fyrir hann þá er Skúli rétti staðurinn fyrir
þig. Mikið úrval af dýrindisbjór og notalegt útisvæði.
Dásemdar afdrep fyrir bjóráhugamenn.
ÍSLENSKI BARINN
Margur er knár þótt hann sé smár. Íslenski barinn
er lítill en það dregur þó ekkert úr vinsældum hans.
Strangheiðarlegur íslenskur matseðill og úrval svell-
kaldra drykkja. Var áður staðsettur á Austurvelli og
aflaði sér þar traustra fastagesta sem fylgdu honum
yfir á nýja staðsetningu. Heitasta lukkuhjól bæjarins
þar sem allir enda sem sigurvegarar.
ÖLSTOFA KORMÁKS OG SKJALDAR
Klassísk knæpa. Hæfilega subbuleg og nóg af sætum
ef þú ert snemma á ferðinni. Yfirbyggt reykingasvæðið
er þéttsetið um helgar og ættu lungnaveikir að hugsa
sig tvisvar um áður en þeir hætta sér í þann frumskóg.
12 TÓNAR
Plötubúð með sál sem er líka bar. Minna þekktir plötu-
snúðar fá gjarnan að láta ljós sitt skína þar og staður-
inn á trausta fastakúnna sem láta sig sjaldan vanta.
DILLON
Alvöru rokkarabar. Ef þú getur ekki ímyndað þér neitt
betra en að sjá rokkömmuna Andreu Jónsdóttur sitja
ofan á hátalara og matreiða ofan í þig veislu af klass-
ísku rokki þá er þetta staðurinn fyrir þig. Þangað koma
ungir sem aldnir og aðaldrykkurinn er einn svellkaldur.
FÓKUS 27DV 12. MARS 2021
LÚNA FLÓRENS Blómabarinn Lúna
Flórens er tvíburasystir vinsæla veit-
ingastaðarins Coocoo‘s Nest. Lúna
er sígaunabar þar sem einnig er hægt
að kaupa sér steina og glingur. Full-
kominn staður fyrir nornir, gyðjur og
doulur. Marglitir og rammgöldróttir
drykkir í bland við blóm og hipstera
sem afgreiða.
Staðsetning: Grandagarður 25
Týpan: Listaspírur, jógadýnur og
Rassi Prump.
MIKKI REFUR Rithöfundurinn og
uppistandarinn Dóri DNA opnaði ný-
lega vínbar beint á móti Þjóðleikhús-
inu, en hann taldi sig nauðbeygðan
eftir að hann varð ástfangin af nátt-
úruvíni. Dýrir drykkir sem leikarar
elska.
Staðsetning: Hverfisgata 18
Týpan: Uppistandarar, kokkálar og
leikhúsgestir.
TRÚNÓ TRÚNÓ er komið aftur, nú
ekki sem hinseginbar heldur sem
bleikur freyðivínsbar sem er stað-
settur í einni vinsælustu mathöll
bæjarins. Mörgum þykir furðulegt að
opna bar undir nafninu trúnó á stað
þar sem margir veitingastaðir eru
saman og sæti af skornum skammti.
En fólk hefur reyndar komist á trúnó
við meira krefjandi aðstæður en það.
Staðsetning: Hlemmur
Týpan: Búbbluelskendur, túristar og
þeir sem bíða eftir strætó.
101 HÓTEL Sumir eru bara komnir
á þann aldur að vilja fá sér fínan
drykk á hóteli. Þannig gera þeir það
í bíómyndunum. Barinn og veitinga-
staðurinn á 101 Hótel er á hraðri upp-
leið í dag eftir ládeyðu í COVID. Áður
var það Mekka fína og fræga fólksins
og hefur nú fengið góða innspýtingu
eftir að kokkurinn og léttvínslávarð-
urinn Gunnar Páll Rúnarsson tók við
barnum en hann er annálaður fyrir
góða bragðlauka.
Staðsetning: Hverfisgata 10
Týpan: Athafnafólk, léttvínsspekúl-
antar og fólk sem les Frjálsa verslun.
NO CONCEPT Ef þú hefur beðið þess
lengi að geta sameinað ást þína á
flatbökum og íþróttum ást þinni á
víni þá hefur No Concept svarað kalli
þínu. Þetta er staðurinn sem fræga
fólkið elskar og hægt er að horfa á
fótboltaleiki á.
Staðsetning: Hverfisgata 6
Týpan: Rithöfundar, viðskipta móg-
úlar og fólk sem er loðið um lófana.
HUGVELLIR Rithöfundurinn Þor-
grímur Þráinsson dásamar Hugvelli
og segir staðinn tengja fólk saman
og jafnframt vera uppsprettu nýrra
tækifæra. Það er ekkert smá! Ekki
fyrir djammþyrsta þar sem aðeins er
opið frá 9-16.
Staðsetning: Laugavegur 176
Týpan: Frumkvöðlar og co-working
týpur.
PABLO DISCOBAR Pablo er allur enda orðið disco í nafninu en þar var samt
ekki spiluð disco-tónlist. Það eru náttúrlega bara villandi viðskiptahættir.
B5 Kirkju graða fólksins hefur verið lokað. Ekki fleiri flöskuborð, ekki fleiri
V.I.P.-raðir og ekki fleiri laganemar að þykjast vita allt betur um mannrétt-
indi en dyravörðurinn.
AUSTUR Ef Íslendingar væru með þátt á borð við Jersey Shore væri hann
allur tekinn upp á Austur. Austur var bæði Sódóma og Gómorra borgar-
innar. Þangað komu Hollywood-stjörnur en einnig kókaínunnendur og menn
með vafasama fortíð.
LÍKLEGT TIL VINSÆLDA
ÞEIR SEM VAR LOKAÐ Í COVID
MYND/FACEBOOK
MYND/FACEBOOK
RÖNTGEN
Góður staður til að setjast niður til að fá sér aðeins í
glas á góðu kvöldi. Gamanið kárnar aðeins þegar líða
fer á kvöldið en þá fer fjöldi gesta yfir fjölda stóla svo
stóladansinn getur oft verið harður. Hér kemur fólk til
að hittast og spjalla, ekki til að dansa. Röðin við barinn
getur oft orðið sveitt og erfitt að bera burtu drykki án
þess að sulla úr glösunum.
VINNUSTOFA KJARVALS
Fullkominn staður fyrir þá sem vilja upplifa sig sem
yfir aðra hafna, enda þarftu að vera á listanum eða
kunna lykilorðið til að komast inn. Þarna er mikið um
pólitíkusa og aðra opinbera starfsmenn, sem og aðra
þekkta einstaklinga úr íslensku samfélagi.