Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Qupperneq 34
Klikkaðasta slúðrið í Hollywood Þau ríku og frægu þurfa oft að sætta sig við að um þau sé slúðrað eins og enginn sé morgundagurinn. Orðrómur getur verið þrálátur og oft tekst ekki að kveða hann niður, þó aldrei sé hægt að sanna hann. 34 FÓKUS WALT DISNEY GEYMDUR FROSINN UNDIR DISNEYLANDI Þrálátur orðrómur er þess efnis að maðurinn að baki stórfyrirtæk- inu Disney, Walt Disney sjálfur, sé geymdur frosinn undir skemmti- garðinum Disneylandi. Þar bíði lík- amsleifar hans þess tíma að hægt verði að lífga hann við. Fjölskylda hans hefur ítrekað þvertekið fyrir að nokkur sé hæft í þessum sögu- sögnum. Hann hafi verið brenndur og ösku hans dreift í Kaliforníu. En sam- særiskenninga- sinnar eru ekki sannfærðir. KEANU REEVES ER ÓDAUÐLEGUR Leikarinn Keanu Reeves má eiga það að árin hafa farið mjúkum höndum um hann. Það er líklega ástæða þess að sumir telja að hann sé hreinlega ódauðlegur. Þeir sem trúa þessu hafa fundið málverk og ljósmyndir frá ýmsum tímum mannkynssögunnar til að styðja við kenningar sínar, en líklega er þar aðeins um líkindi að ræða. Keanu hefur tekið vel í þennan o r ð r ó m o g ekker t sér- s t a k l e g a vísað honum á bug. BEYONCÉ ÞÓTTIST VERA ÓLÉTT Ekki voru allir sannfærðir um að söngkonan Beyoncé hefði sjálf gengið með frumburð sinn, Blue Ivy, og töldu margir myndir af söngkonunni frá með- göngunni benda til þess að hún væri með gervi-óléttubumbu. Segir sagan að það hafi verið staðgöngumóðir sem gekk með barnið fyrir hana svo sönggyðjan þyrfti ekki að ganga sjálf í gegnum þær breytingar sem verða á líkamanum á meðgöngu. Önnur saga segir að Beyoncé sé ekki einu sinni móðir Blue Ivy heldur sé stúlkan framhjáhaldsbarn eiginmanns Beyoncé, Jay Z, sem þau hafi ákveðið að ala upp sem sitt eigið. KLOÉ KARDASHIAN ER RANGFEÐRUÐ Árum saman hefur sú saga gengið að ein Kardashian-systirin sé rang- feðruð. Systurnar Kim, Kourtney og Khloé eru dætur Kris Jenner og lög- mannsins Roberts Kardashian, en margir töldu Khloé of ólíka systrum sínum til að vera alsystir þeirra. Hins vegar væri hún lík íþróttamanninum O.J. Simpson, en Robert Kardashian var einmitt lögmaður Simpsons þegar hann var ákærður fyrir morð. Hins vegar hefur Khloé látið rannsaka erfða- efni sitt og þar sást að hún á sömu foreldra og systur hennar. STEVIE WONDER ER EKKI BLINDUR Tónlistarmaðurinn frægi Stevie Wonder var fyrirburi. Augu hans höfðu ekki þroskast nægilega og því hefur hann verið blindur frá fæðingu. Eða hvað? Sú kenning hefur gengið lengi að Stevie geti í raun séð, annað hvort að hluta eða fullkomlega. Margar stjörnur eru meðal þeirra sem trúa þessu, til dæmis Boy George, Lionel Richie og körfuboltastjarnan Shaquille O‘Neil. AVRIL LAVIGNE ER DÁIN Söngkonan Avril Lavigne var kornung þegar hún sló fyrst í gegn og er það líklega ástæða þess að sumir aðdáendur hennar telja að hún hafi dáið árið 2003 og verið skipt út fyrir tvífara sinn. Kenningunni til stuðn- ings vísa menn til þess að textar laga Avril hafi orðið þyngri og fatastíll hennar breyst mikið á þessum tíma. En þar gleymir fólk að reikna með því að söngkonan var að fullorðnast. J-LO TRYGGÐI AFTURENDANN Það er alveg óskiljanlegt hvaðan þessi orðrómur kemur en því er haldið fram að söngkonan Jennifer Lopez, eða J-Lo, hafi tryggt á sér afturendann fyrir gífurlegar fjárhæðir. Jennifer hefur þó bent á að jafnvel þó slíkar tryggingar væru fáanlegar, sem þær eru ekki, þá gæti hún ekki ímyndað sér hvað fælist í slíkri tryggingu. Bætur ef rassinum á henni yrði stolið? OPRAH ER SAMKYNHNEIGÐ Oprah er frægasti spjallþáttastjórnandi heims og vita nánast allir með fullu viti hver hún er. Hún hefur verið gift Stedman Graham síðan árið 1986. Sá orðrómur gekk þó um hríð að hún spilaði fyrir hitt liðið og þótti vinskapur hennar við sjónvarpskonuna Gayle King vera grunsamlega náinn. Oprah hefur þó bent á að ef hún væri samkynhneigð þá hefði hún alls enga ástæðu til að fela það. MYNDIR/GETTY 12. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.