Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Side 38
38 SPORT 433 UNGIR ÍSLENDINGAR Á FERÐ OG FLUGI Þrátt fyrir heimskreppu vegna kórónaveirunnar heldur íslenskt afreksfólk áfram að fá tækifæri erlendis og er oftar en ekki keypt fyrir mikla fjármuni. Sérstaklega er mikill uppgangur í kvennaknattspyrnu á Íslandi en í fyrsta sinn í langan tíma eru sterkustu og bestu lið í Evrópu að kaupa leikmenn beint frá Íslandi. 12. MARS 2021 DV ALEXANDRA JÓHANNSDÓTTIR FRANKFURT ÞÝSKALAND Stórlið Frankfurt í Þýskalandi keypti þessa öflugu knattspyrnukonu frá Breiðabliki í upphafi árs. Alex- andra Jóhannsdóttir var að klára sitt þriðja tímabil í herbúðum Breiðabliks þrátt fyrir að vera aðeins tví- tug. Hún hefur spilað yfir 100 leiki í meistaraflokki og nálgast sinn fyrsta tug í A-landsleikjum. Alexandra byrjaði 14 ára í meistaraflokki með Haukum, á síðustu mánuðum hefur hún stimplað sig inn sem algjör lykil- maður í A-landsliði kvenna. „Alexandra hefur mikla tilfinningu fyrir leiknum, les leikinn vel og pælir mikið í þessu. Hún undirbýr sig vel, skoðar andstæðinga sína vel og veit hvað hún er að fara út í. Líkamlega sterk og tæknilega góð, hún var að spila aftar á vellinum með landsliðinu en hún gerir hjá okkur,” sagði Þor- steinn Halldórsson landsliðsþjálfari þegar hann lýsti Alexöndru á dögunum en þau störfuðu saman í þrjú ár hjá Breiðabliki. BRYNJÓLFUR ANDERSEN WILLUMSSON BK KRISTANSUND NOREGUR Maðurinn með furðulegu hárgreiðslurnar er farinn út í atvinnumennsku. Norska liðið Kristiansund hefur fest kaup á sóknarmanninum frá Breiða- bliki. Brynjólfur sem er tvítugur að aldri á að baki 75 leiki með meistara- flokki Breiðabliks og hefur skorað 24 mörk í þeim leikjum. Hann á einnig 22 landsleiki að baki með yngri landsliðum Íslands. Norskir fjölmiðlar segja að Brynjólfur sé dýrasti leikmaður í sögu Kristiansunds en hann er sagður kosta um eða yfir 20 milljónir íslenskra króna. Kristiansund spilar bein- skeyttan fótbolta og stundum er leikstíl þeirra líkt við gamaldags enskan fótbolta, þeir sparka langt og eru fastir fyrir. SVEINDÍS JANE JÓNSDÓTTIR WOLFSBURG ÞÝSKALAND Vonarstjarna íslenska kvennafótboltans sló í gegn síðasta sumar þegar hún lék með Breiðabliki, þessi unga knattspyrnukona ólst upp í Keflavík. Eftir eitt ár á láni í Kópavoginum var stærsta og besta lið Þýskalands mætt á dyrnar og keypti Sveindísi frá Keflavík. Sveindís Jane Jónsdóttir er fædd árið 2001 en hún lék sína fyrstu landsleiki síðasta haust, þýska félagið festi kaup á Sveindísi en lánaði hana beint til Kristi- anstad í Svíþjóð þar sem Elísabet Gunnarsdóttir fær það verkefni að þróa leik hennar enn frekar. „Hún gæti verið góð í hvaða íþrótt sem er, hún væri frábær í frjálsum íþróttum, góð í körfubolta og handbolta. Hún gæti verið í öllu, hún hefur hrað- ann, sprengju og styrk sem kemur frá náttúrunnar hendi,” sagði Þorsteinn þegar hann lýsti Sveindísi sem íþróttakonu. VALGEIR LUNDDAL FRIÐRIKSSON HACKEN SVÍÞJÓÐ Hinn hávaxni varnarmaður var keyptur til Svíþjóðar eftir að hafa slegið rækilega í gegn í húsakynnum séra Friðriks á síðasta ári. Valsarar áttu ekki von á því að Valgeir Lunddal yrði ein af stjörnum síðasta sumars en ungi pilturinn úr Grafarvogi sló í gegn og var seldur til Svíþjóðar. Hacken og fleiri lið höfðu lagt mikið á sig til að sannfæra Val um að selja Valgeir, Valur er í sérstöðu á Íslandi þegar kemur að fjármunum og því þarf að berast gott tilboð á borð félagsins svo að það selji leikmann. Valgeir er 19 ára gamall og virðist eiga bjarta framtíð fyrir sér. KARÓLÍNA LEA VILHJÁLMSDÓTTIR FC BAYERN ÞÝSKALAND Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er líkt og Sveindís fædd árið 2001 en hún er á sínu þriðja tímabili í herbúðum Breiðabliks. Hún er frænka Gylfa Þórs Sig- urðssonar, fremsta knattspyrnumanns Íslands. Karólína ætlaði sér að spila í eitt ár á Íslandi til viðbótar en boð frá einu stærsta félagsliði í heimi var of gott til að afþakka. Karólína lék sinn fyrsta leik fyrir stórlið Bayern í síðustu viku og skoraði sitt fyrsta mark í þeim sama leik. „Hún er leikmaður sem getur gert hluti sem engum öðrum dettur í hug að gera. Tæknilega mjög góð og útsjónarsöm,” sagði landsliðsþjálfarinn um helstu kosti Karólínu. ALEX ÞÓR HAUKSSON ÖSTER SVÍÞJÓÐ Loksins fékk þessi öflugi miðjumaður úr Garðabæ tækifæri í atvinnu- mennsku, það furðuðu sig margir á því að Alex væri enn að spila á Íslandi. Alex spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Stjörnuna aðeins 17 ára gamall, eftir að hafa byrjað ferilinn á Álftanesi og vakti þar verðskuldaða athygli. Það kom kannski mörgum á óvart þegar nafnið Alex Þór Hauks- son var á leikskýrslu og jafnvel í byrjunarliði Stjörnunnar fyrir fyrsta leik í efstu deild árið 2017, enda hafði lítið heyrst af þessum öfluga pilti í Garða- bæ. Alex lék heila 17 deildarleiki það tímabil og vakti verulega athygli fyrir frammistöðu sína. Síðan þá hafði Alex átt fast sæti í liði Stjörnunnar. Öster leikur í næstefstu deild í Svíþjóð sem vonandi verður stökkpallur fyrir kauða á enn stærra svið. MYND/ANTON BRINK MYND/HELGI VIÐAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.