Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Síða 40
12. mars 2021 | 10. tbl. | 112. árg.
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
MYND/ANTON BRINK
LOKI
Ég
konn
ektaði
strax!
Sóttvarnalæknir
skelfur
Í síðasta blaði DV sagði frá
því að foreldrar væru reiðir
heilbrigðisyfirvöldum vegna
vals á HPV-bóluefni. Rætt
var við fjölda heilbrigðis-
starfsmanna sem allir mæltu
með öðru og mun dýrara
bóluefni fyrir stelpurnar.
Blaðamaður hafði samband
við Þórólf Guðnason sótt-
varnalækni vegna málsins,
en hann annast val og kaup
á bóluefni hér á landi. Svör
Þórólfs voru svohljóðandi:
„Hef ekki tíma nú vegna
covid og jarðhræringa.“
Hvort jarðhræringar sé
„Nýja-Covid“ í stóru af-
sökunarorðabókinni er of
snemmt að segja til um, en
skemmst er þó frá því að
segja að fyrirspurn DV hefur
ekki enn verið svarað.
Air Iceland
Connect ei meir
Icelandair tilkynnti í vikunni
að Air Iceland Connect yrði
frá miðjum mars rekið undir
merkjum Icelandair. Air Ice-
land Connect nafnið heyrir
þá sögunni til. Karen Kjart-
ansdóttir, framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar, sagðist
leið yfir uppátækinu, „þetta
var búið að venjast svo vel“.
Glöggir fylgjendur Kar-
enar á samfélagsmiðlum
greindu þar strax kaldhæðni
í snefilmagni hið minnsta.
Reyndar áttu fjölmiðla-
menn og landsmenn allir í
stökustu vandræðum í upp-
hafi með að muna hvort
kom á undan, Connect eða
Iceland. n
Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is
20% afsláttur*
Mags sófar
Fjölbreytt úrval af
margnota einingum
svo hægt er sérsníða
sófann eftir þínum
hugmyndum, með
legubekk, horneiningum
eða viðbótarsætum til
að henta hverju rými
eða tilgangi.
Hönnun: Hay Studio
Bókaðu tíma á faeturtoga.is eða í síma 55 77 100
Fætur Toga, Kringlan 3.hæð og Höfðabakki 3
HLAUPAGREINING
Lærðu betri hlaupatækni.
Finndu veikleikana.
Minnkaðu álag.
Náðu meiri árangri.