Fréttablaðið - 06.04.2021, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 1
www.hekla.is · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/volkswagensalur
Fáðu fjórhjóladrifið frítt!
Uppáhalds vinnufélagarnir
Áreiðanlegir vinnuþjarkar!
ELDGOS „Hér var fjör,“ segir Arnar
Egilsson, þjónustustjóri Háskólans
í Reykjavík, en hann var staddur í
Geldingadölum þegar nýja sprungan
lét á sér kræla í gær. „Við sátum norð
an við gíginn, þeim megin sem björg
unarsveitartjaldið og myndavél
mbl.is er staðsett þegar kom góður
skjálfti nánast beint undir rassinn á
okkur að okkur fannst. Svo fundum
við einhverja lykt og þá fórum við
aðeins að hreyfa okkur og gengum
upp hólinn þar sem nýja sprungan
blasti við okkur,“ segir Arnar.
Um hádegi í gær opnaðist ný
sprunga við gosstöðina í Geldinga
dölum og rennur úr henni hraun í
Meradali. Svæðið var rýmt og lokað
fyrir aðgengi fyrir alla aðra en vís
indamenn og Landhelgisgæsluna,
sem skoðuðu svæðið úr lofti, og var
sett á flugbann vegna vísindaflugs.
Arnar var að skoða gosið í þriðja
sinn og segir að þessi nýja sprunga
minni sig á Kröflueldana en hann
er alinn upp í Mývatnssveit og fór
ungur að skoða þá. „Þetta er opin
sprunga yfir gróið land sem minnti
mig á hvernig þetta leit út í Kröflu
eldum þegar ég var að skoða þá
10–11 ára. Það sem maður man eftir
eru þetta mikil líkindi í sjón án þess
að fara of mikið í jarðfræðina – aðrir
verða að segja til um það.“
Þorvaldur Þórðarson, jarðvís
indamaður hjá Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, segist vel skilja
samlíkinguna þó ástæðurnar á bak
við séu öðruvísi. Hann segir nýju
sprunguna vera viðbót. „Það er
magnað hraunflæði þarna. Þetta er
viðbót á öllu. Það er stöðugt og byrj
aði eiginlega nákvæmlega eins og
hitt. Kemur upp með engum látum
og hraunkvikan flæddi með stöðugu
rennsli. Þetta rennsli heldur sér.“
Hraunflæðið rennur niður í Mera
dali þar sem hægist á framrásinni en
miðað við hvað er jafn þrýstingur
er líklegt að dalirnir muni taka við
töluvert miklu hrauni næstu daga,
vikur, mánuði eða ár. „Það var lítið til
að byrja með en hefur verið stöðugt
meira og minna,“ segir Þorvaldur,
sem viðurkennir að það sé ekkert
sérstaklega leiðinlegt að vera jarð
vísindamaður þessi dægrin.
„Þetta er alltaf jafn gaman og það
hefur verið gaman að fylgjast með
þessu gosi því það hefur verið að
gera hina og þessa hluti sem maður
bjóst við og aðra sem maður bjóst
ekki við.“ – bb
Jafn þrýstingur í nýrri sprungu
Í gærdag byrjaði að gjósa á nýjum stað við gosstöðina í Geldingadölum þegar nokkur hundruð metra
sprunga opnaðist. Nokkrir fundu fyrir skjálftanum í aðdragandanum og fundu furðulega lykt í kjölfarið.
Þetta er viðbót á
öllu. Það er stöðugt
og byrjaði eiginlega ná-
kvæmlega eins og hitt.
Kemur upp með engum
látum og hraunkvikan
flæddi með stöðugu
rennsli.
Þorvaldur Þórðar-
son, jarðvísinda-
maður hjá Jarð-
vísindastofnun
Háskóla Íslands
Hraun rennur úr nýju sprungunni í Meradali þar sem hægist á framrásinni. Jafn þrýstingur er í nýju sprungunni eins og hinum kötlunum tveim. Þorvaldur Þórðarson, jarðvísindamaður hjá Jarð-
vísindastofnun Háskóla Íslands, segist vel skilja samlíkinguna við Kröfluelda. „Þetta byrjaði hægt og rólega og fann sér svo damp sem það heldur sér í,“ segir Þorvaldur. MYND/ALMANNAVARNIR
COVID-19 Sóttvarnaryfirvöld munu
fara yfir það næstu dagana hver við
brögð heilbrigðisráðherra og sótt
varnalæknis verða við úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem
reglugerð ráðherra um vistun
komufarþega af rauðum áhættu
svæðum í farsóttarhúsi var úrskurð
uð ólögmæt.
Ómar R. Valdimars son, lög maður
manns sem hefur þurft að dvelja
síðustu daga í far sóttar húsi, segir
ó lík legt að úr skurður Héraðs dóms
Reykja víkur verði kærður til Lands
réttar, tíminn til þess sé ein fald lega
of naumur.
Héraðs dómur Reykja víkur úr
skurðaði í gær í þremur málum
er snúa að lög mæti þess að skylda
komu far þega frá á hættu svæðum í
far sóttar hús.
Stjórnvöld biðla til þeirra sem
eru í sóttkví í farsóttarhúsinu að
klára sóttkvína þar þrátt fyrir fyrr
greindan úrskurð. Sjá síðu 2 og 4 / – hó
Yfirvöld ræða
um næstu skref