Fréttablaðið - 06.04.2021, Síða 2
Farþegar áfram fluttir á Fosshótel
Kauptu næluna á blarapril.is
Einhverfa er alls konar
Mér finnst
vont að
blanda
einu grænmeti
við annað
SAMFÉLAG „Allt í einu er Húsavík
orðinn nánast miðdepill tveggja
stærstu sjónvarpsviðburða, annars
vegar Óskarsverðlaunanna í Amer-
íku og hins vegar Eurovision í Evr-
ópu. Þetta er eitthvað sem gerist bara
einu sinni fyrir lítið sveitarfélag úti á
landi,“ segir Kolbrún Ada Gunnars-
dóttir, varaformaður byggðarráðs
Norðurþings, en á fundi ráðsins
kom James Knox, fulltrúi Netflix, og
kynnti næstu skref sjónvarpsrisans
er varðar lagið Húsavík og Óskar-
stilnefningu þess.
Þeir Hinrik Wöhler, forstöðu-
maður Húsavíkurstofu, og Örlygur
Hnefill Örlygsson fóru einnig yfir
þýðingu óskarstilnefningarinnar
fyrir fyrirtæki í sveitarfélaginu og
sveitarfélagið í heild. Örlygur sá
tækifærið snemma og hefur haft veg
og vanda að þessu verkefni og náði
Netflix og nú bænum með sér í þessa
kynningarferð.
Ada segir að þegar tilnefningin
var kunngjörð hafi Netflix stokkið
af stað og fengið leyfi til að notast
við hitt og þetta til að kynna lagið
og Húsavík um leið. Knox þessi býr
í London og er að undirbúa áfram-
haldandi vinnu risans í samstarfi
við höfuðstöðvarnar í Los Angeles.
„Netflix er komin um borð í þessa
lest og við fengum Knox til að koma
og segja okkur hver væru næstu skref
Netflix. Hvað þau væru að gera og
hugsa. Þetta er svo mikil landkynn-
ing fyrir Ísland og Húsavík sem
ferðamannastað.“
Hún segir að myndin hafi klárlega
spilað inn í að fleiri ferðamenn komu
til Húsavíkur í fyrra – ekki aðeins til
að sprella vegna myndarinnar held-
ur til að njóta alls þess sem Húsavík
býður upp á. „Starfsfólk á þekkingar-
netinu, sem var pöbbinn í myndinni,
segir mér að það hafi verið fólk fyrir
utan á hverjum degi að öskra Ja ja
ding dong og taka upp á Instagram,“
segir hún og hlær.
„Kannanir sýna að það er verið
að leita töluvert meira að Húsavík
og hvað bærinn hafi upp á að bjóða.
Sérstaklega eftir að suður-kóreski
kvartettinn söng lagið,“ segir hún
en hljómsveitin Heartpresso söng
lagið í vinsælasta skemmtiþætti
landsins, Phantom Singer: All Star,
og sló í gegn. Yfir 200 þúsund manns
hafa horft á lagið á Youtube. „Ekk-
ert sveitarfélag hefur efni á að gera
eitthvað svona líkt. Þetta er alveg
ómetanlegt,“ segir Kolbrún Ada.
benediktboas@frettabladid.is
Heimurinn leitar að
og hlustar á Húsavík
Húsavík hefur hoppað um borð í Netflix-lestina til að kynna bæinn og landið
vegna komandi Óskarsverðlauna. Fulltrúi Netflix settist niður með byggðar-
ráði og ræddi þar næstu skref. Ómetanlegt, segir varaformaður byggðarráðs.
Húsavík hefur verið í fréttum eftir að samnefnt lag var tilnefnt til Óskars-
verðlauna sem afhent verða í apríl. Eurovision-keppnin tekur svo við í maí.
Líklegt er að þar verði nafni bæjarins haldið á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Við fengum Knox
til að koma og segja
okkur hver væru næstu
skref Netflix. Hvað þau
væru að gera og hugsa. Þetta
er svo mikil landkynning
fyrir Ísland og Húsavík sem
ferðamannastað
Kolbrún Ada
Gunnarsdóttir
SKÓLAMÁL Skólastarf hófst á nýjan
leik í grunnskólum landsins í morg-
un eftir lokun vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar og páskafrís.
Þeir nemendur sem hófu skóla-
árið í Fossvogsskóla og voru færðir
í Korpuskóla í lok mars munu hins
vegar ekki mæta í skólann í dag þar
sem starfsdagur er í skólanum.
Húsnæði Fossvogsskóla er óstarf-
hæft vegna myglu og var starfsemi
skólans f lutt í Korpuskóla mið-
vikudaginn 24. mars. Kom hins
vegar í ljós að rakaskemmdir eru í
Korpuskóla og var skólastarfi þar
hætt eftir einn dag. Í kjölfarið var
skólastarf bannað vegna kórónu-
veirunnar fram að páskafríi.
Unnið hef ur ver ið að við-
gerðu m, sem teng jast ra k a-
skemmdum, undir eftirliti og sér-
fræðikunnáttu starfsfólks EFLU
verkfræðistofu í kjölfar úttektar
á húsnæðinu þar sem athuga-
semdir og myndir frá fulltrúum
foreldra í skólaráði Fossvogsskóla
voru höfð til hliðsjónar. EFLA hefur
framkvæmt nánari skoðanir og
unnið að endurbótum um páskana.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun
taka út húsnæðið í dag.
Haldinn verður skipulagsdagur
í Fossvogsskóla við Korpu í dag en
foreldrar og forráðamenn nemenda
í skólanum hafa verið boðaðir á
fjarfund í hádeginu í dag með skóla-
stjórnendum og starfsmönnum
EFLU verkfræðistofu. Skóli hefst
síðan samkvæmt stundaskrá á mið-
vikudaginn. – hó
Nemendur í Korpuskóla
byrja vikuna á starfsdegi
Ekki er hægt að hefja
skólastarf í Korpuskóla í dag
en kennsla hefst þar á
morgun.
LÍFIÐ Guðmundur Felix Grétarsson
hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi
í Lyon í Frakklandi en hann undir-
gekkst aðgerð þar sem hendur voru
græddar á hann um miðjan janúar í
upphafi þessa árs.
Guðmundur Felix, sem missti
báðar hendur sínar í vinnuslysi fyrir
um það bil tveimur áratugum síðan,
greinir frá þessu í færslu á Facebook-
síðu sinni. Þar segir hann að hann sé
að fullu útskrifaður af sjúkrahúsi og
nú taki við endurhæfing til þess að
venja hendurnar við líkamann. Þann-
ig muni hann mæta í sjúkraþjálfun á
hverjum degi og halda til síns heima
að því loknu. Þessum áfanga fagnaði
hann með því að halda veglega grill-
veislu á heimili sínu í Lyon.
Aðgerðin sem framkvæmd var á
Guðmundi Felix var afar f lókin og
umfangsmikil en þetta var í fyrsta
skipti sem læknar græða hand-
leggi á mann eskju í Lyon. Læknar
frá Édou ard Herriot-spítalanum
og Cliniqu e du Park stóðu að baki
að gerðinni, sem stóð yfir í um 14
klukku stundir. – hó
Fagnaði útskrift
með grillveislu
Ferðamenn sem komu til landsins í gær frá þjóðum sem skilgreind eru sem rauð áhættusvæði voru f luttir í Fosshótel að Þórunnartúni þar sem þeir
eru skikkaðir til þess að vera í fimm daga sóttkví. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hins vegar í gær að einstaklingar, sem kærðu reglugerð
heilbrigðisráðherra og gátu sýnt fram á að þeir gætu verið í sóttkví á heimili sínu hérlendis, þurfi ekki að dvelja á hótelinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Guðmundur Felix glaðbeittur.
6 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð