Fréttablaðið - 06.04.2021, Side 9
Sennilega allra bestu rafhjólakaupin
á þessu vori
Rafmagnshjól ENOX EBX37 – EBX34
Fást aðeins í Húsasmiðjunni
Enox Yadea rafmagnsreiðhjól, 7 gíra borgarhjól, 36v rafhlaða undir
bögglabera, Bafang mótor að framan, hleðslutími 3-6 klst., Tektro V
bremsur. Stillanlegt framstýri, ljós að framan og aftan, bögglaberi,
bretti, bjalla, keðjuhlíf, dempari að framan, áfastur lás fylgir með.
Alvöru rafmagnshjól
frá
Umhverfisvænt - 250W
25 km hraði - Drægni 70 km
3903103, 3903104
164.9 0 kr
karlmanns-
reiðhjól
Nýtt
Væntanlegt
í lok apríl
Mest seldu rafhjólin
í Húsasmiðjunni, á ótrúlegu verði
Á síðustu árum hefur lýðræði og borgaravitund víða um heim staðið höllum fæti. The Eco-
nomist greindi frá því á dögunum
að á síðasta ári hefði staða lýðræðis
versnað í 70 prósent ríkja. Þarna
kemur einnig fram að einungis rúm
8 prósent jarðarbúa búa í algjöru lýð-
ræði (e. full democracy). Þessar tölur
eru sláandi og illt til þess að vita að
þessi veika staða lýðræðis fari enn
versnandi í COVID-19 faraldrinum.
Eitt skilvirkasta valdatæki ein-
ræðisherra er að halda fólkinu fávísu
og mata það á röngum upplýsingum.
Saka andstæðinga sína um lygar og
undirferli að tilhæfulausu en ljúga
og setja fram staðhæfingar sem enga
skoðun standast. Þessa tilhneigingu
sá heimsbyggðin hjá Hitler, Stalín
og í Suður-Afríku aðskilnaðarstefn-
unnar. Í dag beita leiðtogar eins og
Lúkashenko, Pútín og síðast en ekki
síst Trump í Bandaríkjunum slíkum
aðferðum til að ná völdum og halda
þeim. Í Evrópu höfum við því miður
einnig verið að sjá aukna tilhneig-
ingu í þessa átt hjá Victori Orban í
Ungverjalandi. Dæmin eru óteljandi
en öll bera þau að sama brunni. Til
að veikja lýðræði er dregið úr mennt-
un og röngum staðhæfingum haldið
að fólki. Staðhæfingum sem skyndi-
lega verða að viðurkenndri skoðun,
með jafnt vægi á við staðreyndir og
má í því samhengi nefna aukinn
fjölda þeirra sem halda því fram að
jörðin sé flöt.
Sögulega hefur menntun skipað
mjög stóran sess við lýðræðismótun
og virkjun borgaravitundar. Um
leið höfðu lýðræðishreyfingar áhrif
á stofnanir fullorðinsfræðsl unnar,
enda eru mörg samtök um full-
orðinsfræðslu sprottin úr jarðvegi
baráttuhreyfinga um mannréttindi.
Fullorðinsfræðslan hefur skapað
vettvang fyrir gagnrýna og opna
umræðu þar sem fólk kemur saman,
lærir um sig og aðra, eykur víðsýni
og byggir upp mennsku sína. Góð
menntun almennings er því grund-
völlur lýðræðis og gagnrýnin hugsun
er grundvöllur góðrar menntunar.
Þess vegna ráðast valdasjúk öfl fyrst
á möguleika okkar til að þróa með
okkur gagnrýna hugsun og letja
okkur til lýðræðslegrar þátttöku
með áherslu á gagnrýnilausa for-
ingjadýrkun. Aukin stafræn væðing
og aðgengi að upplýsingum hefur
greitt götu slíkra aðila á síðustu
árum. Í auknum mæli koma algo-
rythmar og ofhlæði upplýsinga í veg
fyrir að einstaklingar heyri sjónar-
mið sem eru andstæð þeirra eigin
sjónarmiðum. Þar með minnkar
hæfni þeirra til þess að meta áreið-
anleika og gildi eigin skoðana. Þessi
einhæfni upplýsinga styrkir fólk í
rangfærslum, dregur úr umburðar-
lyndi og víðsýni og leiðir til þess að
samsæriskenningar blómstra.
Fullorðinsfræðsla er tækið til
að þróa gagnrýna hugsun og vald-
ef lingu, þróa líf legt og hvetjandi
samfélag sem og þekkingu og verk-
kunnáttu. Fullorðinsfræðslan á
Íslandi hefur tök á að verða mjög
öf lugur vettvangur fyrir ræktun
gagnrýninnar hugsunar, borgara-
vitundar og eflingu lýðræðis hér á
landi. Net símenntunarmiðstöðva
og fullorðinsfræðslustofnana um
allt land vinna mjög mikilvægt
samfélagslegt starf. Hjá Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins liggja t.a.m.
vottaðar námskrár sem er ætlað að
efla grunnhæfni einstaklinga, gagn-
rýna hugsun og styrkja fólk til að lifa
og starfa í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Má þar nefna námskrár eins og
Sterkari starfsmann, Grunnmennt,
Stökkpall og Íslenska menningu og
Fullorðinsfræðslan og lýðræðið
samfélag. Til viðbótar þessu eru alls
konar námskeið í boði hjá símennt-
unardeildum háskólanna og einka-
reknum fræðsluaðilum um allt land
sem stuðla að vexti einstaklinga og
þar með betra samfélagi.
Leikn, samtök fullorðinsfræðslu-
aðila á Íslandi, tekur undir orð Evr-
ópusamtaka fullorðinsfræðslunnar
(EAEA) og telur að lýðræði, samtal
milli menningarheima, samfélags-
legt réttlæti og samvinna séu lykill-
inn að samfélagi þar sem virðing,
þátttaka og samheldni ríkir. Við
þurfum fullorðinsfræðslu til að
endurspegla samfélagsaðstæður og
áskoranir, til þess að læra af fyrir-
ferðarmiklum málefnum svo sem
aukinni róttækni, fólksflutningum
og vaxandi samfélagslegum ójöfn-
uði. Þessi málefni hafa sýnt að efla
þarf lýðræðisleg viðhorf, umburðar-
lyndi og virðingu. Það gerir fullorð-
insfræðslan með því að efla ábyrgð-
artilfinningu og þá tilfinningu að
tilheyra lýðræðislegri hefð.
Að þessu sögðu viljum við hjá
Leikn beina orðum okkar til stjórn-
valda. Ísland hefur átt því láni að
fagna að hér á landi er öflugt fullorð-
insfræðslukerfi sem að mörgu leyti
hefur verið vannýtt til verka. Við sem
þjóð verðum að minna okkur á það
hversu dýrmætt og brothætt lýðræð-
ið er. Að mörgu leyti má segja að upp-
spretta lýðræðisins liggi í fullorðins-
fræðslu þess tíma og því má draga þá
ályktun að viðhald lýðræðisins liggi í
fullorðinsfræðslu þessa tíma.
Helgi. Þ.
Svavarsson
formaður
Leiknar, sam-
taka aðila í full-
orðinsfræðslu
Fullorðinsfræðslan hefur
skapað vettvang fyrir gagn-
rýna og opna umræðu þar
sem fólk kemur saman, lærir
um sig og aðra, eykur víð-
sýni og byggir upp mennsku
sína.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 1