Fréttablaðið - 06.04.2021, Page 10
Fullkomið
í veisluna
6 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
NBA „Ég held að skýrasta mæliein-
ingin um hversu margar stjörnur í
þessu liði sé að kíkja á fjölda stjörnu-
leikja hjá þessum leikmönnum. Þessi
fimm manna samsetning er ein og
sér með fjörutíu stjörnuleiki,“ segir
Kjartan Atli Kjartansson, körfu-
boltasérfræðingur á Stöð 2 Sport og
höfundur bókarinnar Hrein karfa,
aðspurður út í stjörnum prýtt lið
Brooklyn Nets. Fyrir tímabilið var
mikil spenna að fylgjast með því
hvernig Kevin Durant og Kyrie Irv-
ing tækist að stilla saman strengina
í Brooklyn og um leið var ljóst að
þeir væru líklegir til afreka ef sam-
vinnan myndi ganga vel. Síðan þá
hefur Brooklyn bætt við þremur
leikmönnum sem hafa allir á undan-
förnum árum verið í aðalhlutverki
hjá frambærilegum liðum innan
NBA-deildarinnar.
„Ég held að það séu tvö lið í sögu
NBA-deildarinnar sem hafa verið
með leikmannahóp sem taldi fleiri
stjörnuleiki en þetta Brooklyn Nets
lið er með.“
Landslagið í NBA-deildinni gjör-
breyttist þegar Brooklyn Nets nældi
í James Harden frá Houston Rockets.
Til þess þurfti Brooklyn að fórna
framtíðaráhorfum liðsins í nýliða-
valinu til næstu ára en ef það endar
með meistaratitli fara forráðamenn
liðsins ekkert að kvarta undan því.
Þetta er í raun ekki í fyrsta sinn sem
forráðamenn Nets voru tilbúnir að
tefla djarft í von um skammtíma-
gróða. Átta ár eru liðin síðan Bro-
oklyn sótti meistarakjarna Boston
Celtics í Kevin Garnett, Paul Pierce
og Jason Terry í skiptum fyrir þrjá
valrétti í fyrstu umferð nýliðavalsins
í von um að blanda sér í meistara-
baráttuna. Þegar litið er í baksýnis-
spegilinn var það hræðileg ákvörðun
hjá Brooklyn, sem átti eftir að kosta
félagið til nokkurra ára en dró ekki
úr kjarki Brooklyn þegar félagið
sendi fjóra valrétti í fyrstu umferð
nýliðavalsins til að fá Harden um
borð fyrr í vetur.
Síðan þá hefur félagið fengið Blake
Griffin og LaMarcus Aldridge til sín
til að bæta f leiri sóknarvopnum
í búrið. Fyrir vikið er komin ógn-
vænleg breidd og getur verið erfitt
fyrir ansdtæðingana að ákveða hvar
áherslurnar verða í varnarleiknum.
„Þetta hefur verið tískan undan-
farin ár, að skapa þessi ofurlið, en
það er sérkennilegt að þeir fengu
báða leikmennina. Fyrir vikið eru
fleiri stjörnuleikmenn til staðar en
það verður gaman að sjá hvernig
þeim tekst að stilla saman strengi
sína. Griffin og Aldridge gefa þeim
ekkert endilega það sem þurfti til,
þeir eru öflugir sóknarmenn sem
þurfa að hafa boltann en eru ekki
miklir varnarmenn. Þá gæti Kevin
Durant þurft að verja hringinn,
eins og hann gerði vel hjá Warriors.
Durant er að mörgu leyti vanmet-
inn varnarmaður og ég á von á því
að hann beiti sér betur á þeim enda
þegar kemur að úrslitakeppninni,“
segir Kjartan og heldur áfram:
„Tölfræðin í NBA sýnir að sóknin
gengur best með Jeff Green inni á
vellinum sem miðherja. Það eru ekki
mörg lið sem ná að verjast öllum
þessum skyttum inni á vellinum á
sama tíma en með þessu geta þeir
haldið áfram að teygja á vörn and-
stæðinganna þar sem bæði Aldridge
og Griffin geta hitt úr þriggja stiga
skotum.“
Kjartan tók undir að lykilatriðið
væri að ná að halda öllum ánægðum
enda aðeins einn bolti í boði fyrir
leikmenn sem eru vanir að vera með
lyklana í sóknarleik sinna liða.
„Þeir þurfa og virðast vera tilbúnir
að gefa afslátt á eigin egói, sem er
nauðsynlegt ef þetta lið ætlar sér
meistaratitilinn. Það eru til dæmi
um það í meistaraliðum Miami Heat
og Boston Celtics. James Harden þarf
að reka af sér þetta slyðruorð að
hann sé slakur í úrslitakeppninni
og hann virðist vera spenntur fyrir
því að vera partur af góðri liðsheild
og meistaraliði.“
Þá eru allir leikmennirnir á besta
aldri, ólíkt því þegar Brooklyn
reyndi sömu tilbrigði árið 2013 með
misheppnuðum árangri.
„Þegar félagið reyndi þetta síðast,
í eigu Mikhail Prokhorov, var það
byggt á evrópskri hugmynd að hægt
væri að reyna að kaupa titilinn.
Það er flóknara landslag en í NBA-
deildinni. Þeir settu á sínum tíma
öll eggin í sömu körfu sem reyndist
ekki burðugt en þeir nálgast þetta á
annan hátt í dag. Þeim hefur tekist
að selja leikmönnum þetta verkefni
og eru að fá þá til sín á besta aldri.“
kristinnpall@frettabladid.is
Stórstjarna í hverju horni í Brooklyn
Meistaraefnin í Brooklyn Nets halda áfram að bæta vopnum í sóknarbúr sitt en stærri spurning er hvernig gengur að fá þá til að
verjast og spila sem liðsheild. Fimm leikmenn liðsins eiga fjörutíu stjörnuleiki að baki en tveir þeirra hafa unnið meistaratitla.
James Harden og Blake Griffin eru hluti af því stjörnuliði sem Brooklyn Nets hefur sett saman í NBA-deildinni í körfubolta karla. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þetta hefur verið
tískan undanfarin
ár, að skapa þessi ofurlið, en
það er sérkennilegt að þeir
fengu báða leikmennina.
Kjartan Atli
Kjartansson