Fréttablaðið - 06.04.2021, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Einar er 33 ára gamall og er búsett-
ur í Reykjavík ásamt kærustu sinni
og tveimur sonum. Hann er með
BA-gráðu í tónsmíðum frá LHÍ og
mastersgráðu í kvikmyndatónlist
frá Conservatorium van Amster-
dam í Hollandi.
Óþægileg tilfinning á góðan hátt
Einar hefur samið tónlist fyrir
fjölda kvikmynda en það vekur
óneitanlega eftirtekt hversu
áberandi margar þeirra eiga það
sameiginlegt að vera hrollvekjur.
„Ég hef alltaf verið mjög hrifinn
af góðum hryllingsmyndum, en
það að semja sérstaklega fyrir þær
var svo sem aldrei einhver eiginleg
ákvörðun sem ég tók, það bara
æxlaðist svolítið þannig. En að því
sögðu, þá er eitthvað skemmtilegt
við það að semja tónlist sem lætur
fólki líða óþægilega – á góðan hátt.
Mér finnst líka svolítið eins og
hryllingsmyndir bjóði meira upp
á að gera eitthvað aðeins öðruvísi,
til dæmis að nota skrýtnari hljóð,
ómstríðari hljóma og skringilegri
stemningu en maður kæmist upp
með í rómantískri gamanmynd.“
Kröpp beygja úr MR yfir í LHÍ
Einar sleit barnsskónum að mestu
leyti á Álftanesi og hugsar hlýlega
til heimahaganna. „Það að vera
barn á Álftanesinu var stórkost-
legt, sérstaklega fyrir þessum
20–25 árum þegar byggðin var
enn þá minni og sveitatilfinningin
allsráðandi. Í minningunni voru
stór tún alls staðar og endalaust
pláss til að ærslast og leika sér með
vinum sínum.“
Þá ólst hann upp á sérlega
tónelsku heimili en faðir hans,
Tryggvi M. Baldvinsson, er einn-
ig tónskáld, tónlistarkennari og
forseti tónlistardeildar Listahá-
skólans. Móðir hans, Vilborg Rósa
Einarsdóttir, er einnig kennari og
kenndi í grunnskólanum á Álfta-
nesi um árabil.
„Pabbi minn er tónskáld og
tónlistarkennari, þannig að það
var alltaf mjög mikið um tónlist
heima hjá mér. Sjálfur byrjaði ég að
læra á píanó um 6 ára aldur og mig
minnir að ég hafi samið mitt fyrsta
lag um 9 ára. Það var svo þegar ég
byrjaði í menntaskóla að ég varð
„aðeins of kúl“ fyrir píanónámið,
en þá varð ég rosalega spenntur
fyrir tón- og lagasmíðum. Sá áhugi
jókst síðan jafnt og þétt í mennta-
skóla svo að þegar ég útskrifaðist
af eðlisfræðideild í MR tók ég ansi
krappa beygju beint inn í tón-
smíðar í LHÍ.“
Áhrifarík þögn
Einar rifjar upp augnablikið
þegar hann áttaði sig á því hversu
Einar Sverrir
Tryggvason
varð fyrir
ákveðinni hug-
ljómun um áhrif
kvikmynda-
tónlistar þegar
hann sá kvik-
myndina Cast
Away árið 2001.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@
frettabladid.is
þýðingarmiklu hlutverki honum
þótti tónlist, eða jafnvel fjarvera
hennar, gegna í kvikmyndum.
„Ég hafði alltaf verið meðvitaður
um kvikmyndatónlist sem barn
– Star Wars, Back to the Future,
Disney teiknimyndirnar og svo-
leiðis – en það var ekki fyrr en árið
2001 sem áhuginn kviknaði af ein-
hverri alvöru. Ég man alltaf ártalið
því það var ein ákveðin kvikmynd
sem kveikti þennan eld: Cast Away
með Tom Hanks,“ segir Einar
afdráttarlaust.
„Ég man bara að það sló mig
svo mikið að á meðan persóna
Tom Hanks er á eyðieyjunni er
nær engin tónlist. Hann var alveg
aleinn, og tónlistin – eða þögnin
öllu heldur – endurspeglaði það svo
vel. Það var þá sem ég fattaði hvað
tónlist getur gjörsamlega gjörbreytt
tilfinningunni og stemningunni í
kvikmyndum og upp frá því fór ég
að horfa allt öðruvísi á bíómyndir.“
Innblásturinn bara bónus
Einar er spurður hvaðan hann fái
innblástur til að semja. „Eitt fyrsta
sjokkið sem ég upplifði eftir að ég
fór að vinna við kvikmyndatón-
smíðar var að læra það að maður
gat ekki beðið eftir innblæstrinum.
Á unglingsárunum samdi ég bara
það sem ég vildi þegar ég vildi og
mér leið eins og andagiftin væri
bara greypt inn í mig.“
Svo þegar maður fór að þurfa að
mæta skilafrestum og semja tónlist
í þágu þeirrar sögu sem myndefnið
segir þurfti maður bara að gjöra
svo vel og læra að vinna þetta eins
og hvert annað verkefni og inn-
blásturinn er bara bónus,“ segir
Einar Sverrir ómyrkur í máli.
„En ég held að ég fái einna helst
innblástur úr náttúrunni – mögu-
lega einhver áhrif frá álftneska upp-
eldinu. Langir göngutúrar gera oft
rosalega góða hluti fyrir sköpunina
hjá mér, en það var einmitt í þeim
túrum sem hugmyndin að plötunni
kviknaði.“
Víðförul viðfangsefni
Einar byrjaði að vinna að plötunni
fyrir rúmu ári. „Ég átti nokkrar
gamlar hálfkláraðar hugmyndir að
verkum sem ég hafði aldrei notað
neins staðar. Ég ákvað því að safna
þeim öllum saman, klára þær og
semja nokkur ný stykki og gefa allt
saman út sem eina heild.“
Líkt og titillinn gefur til kynna,
fer platan um víðan völl. „En
það sem þessar hugmyndir eiga
allar sameiginlegt er að þær
eru allar byggðar á ákveðnum
stöðum – ýmist raunverulegum
eða ímynduðum. Þannig er eitt
verkið samið eftir dvöl í snævi
þöktum sumarbústað á Suðurlandi
í fyrravetur, annað spratt upp úr
minningu af hjólaferð í hellidembu
í Amsterdam á námsárum mínum
þar og það þriðja varð til eftir að
ég rambaði á eitthvert samansafn
geimmynda frá NASA á netinu.
Þessir staðir vekja allir mjög
sterkar minningar eða tilfinningar
og ég reyndi svo að fanga þær í
tónlist. Nafn plötunnar, „Destina-
tions“, vísar svo einfaldlega til
allra þessara staða sem mig langar
að sýna hlustendum og reyna að
leyfa þeim að upplifa það sem ég
upplifði.“
Spennandi en ógnvekjandi
Destinations markar ákveðin
tímamót á ferli Einars Sverris en
þetta er fyrsta platan sem hann
gefur út einn síns liðs, ef svo má
komast að orði.
„Það er bæði rosalega spenn-
andi, en líka ferlega ógnvekjandi.
Ég hef að vísu gefið út þrjár plötur
áður, en það var allt tónlist úr kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég gef
eitthvað út sem er 100% ég og það
bætir alveg fersku lagi af stressi
ofan á þetta allt saman.“
Þá eru fleiri verkefni á döfinni.
„Ég er nýbúinn að skila af mér
tónlist fyrir arabíska stuttmynd,
en það var afskaplega skemmtileg
og ný reynsla. Svo bíða mín
á vinnuborðinu tónlist fyrir
íslenska heimildarmynd og breska
hryllingsstuttmynd, þannig að
blessunarlega er nóg að gera þessa
dagana,“ segir Einar, sem hefur
einnig sinnt annars konar verk-
efnum samhliða tónsmíðunum.
„Ég hef líka mikið unnið við
ýmiss konar textavinnu og rit-
smíðar undanfarin ár meðfram
tónlistinni – og held meira að segja
úti minni eigin textaþjónustu
undir nafninu Tvípunktur.
Í þessum bransa, og ekki síst þessi
síðustu misseri, er alls ekki galið að
vera með einhverja smá hliðar-
vinnu, svona til að borga leiguna.“
Hvernig er að starfa sem
tónskáld á Íslandi?
„Fyrst og fremst myndi ég segja
að samkeppnin væri rosalega hörð.
Bæði er framboð verkefna ekkert
brjálæðislega mikið – þó það hafi
vissulega aukist til muna undan-
farin misseri – en stærsta „vanda-
málið“ er bara hvað við Íslendingar
eigum rosalega mikið af ferlega
góðum kvikmyndatónskáldum!“
Hvaða tónskáld hefur eða hafa
haft mest áhrif á þig?
„Það hljómar kannski eins og ég
sé að reyna að vinna mér inn stig
fyrir næsta fjölskylduboð, en ætli
ég myndi ekki segja pabbi minn,
Tryggvi M. Baldvinsson. Hann
hefur alltaf bæði verið einn minn
helsti stuðningsmaður og besti
gagnrýnandi. Mér hefur alltaf
fundist afskaplega gott að leita til
hans upp á endurgjöf og ráðlegg-
ingar.“
Áttu eitthvert draumaverkefni?
„Mig dreymir svolítið um að
semja söngleik, einhvern tímann.
Jafnvel einhvers konar söngleikja-
teiknimynd eins og Disney-mynd-
irnar sem maður ólst upp við.“
Þá segir Einar afar ánægjulegt
að hafa fengið að semja tónlist
fyrir ólíkar kvikmyndir. „Ég held
það sé varla til sú kvikmynda- eða
tónlistarstefna sem ég væri ekki
til í að prófa, þó sumar þeirra séu
kannski aðeins minna spennandi
eða meira ógnvekjandi en aðrar.
En hingað til hefur mér samt fátt
fundist skemmtilegra í þessum
bransa en að prófa nýja hluti og
stíga út fyrir þægindarammann.“
Plata Einars Sverris, Destina-
tions, kemur út á öllum helstu
tónlistarstreymisveitum 5. maí
næstkomandi.
Mér finnst líka
svolítið eins og
hryllingsmyndir bjóði
meira upp á að gera
eitthvað aðeins öðru-
vísi, til dæmis að nota
skrýtnari hljóð,
ómstríðari hljóma og
skringilegri stemningu
en maður kæmist upp
með í rómantískri
gamanmynd.
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi
EYMSLI, STIRÐLEIKI
EÐA BRAK Í LIÐUM?
2-3ja
mánaða skammtur íhverju glasi
2 kynningarblað A L LT 6. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR