Fréttablaðið - 06.04.2021, Page 24
Það þarf enginn að hafa sigrað
heiminn til að eiga skilið hrós.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingimunda Guðrún
Þorvaldsdóttir
Munda
Grænumörk 2
Selfossi
andaðist 29. mars. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 8. apríl kl. 15.00. Í ljósi aðstæðna verður
aðeins nánasta fjölskylda viðstödd. Streymt verður frá
athöfninni á vefsíðu Selfosskirkju.
Þorvaldur Nóason Anne StrØm
Jón Sólberg Nóason Steinunn Geirmundsdóttir
Hulda Björk Nóadóttir Eiríkur Jónsson
Katrín Sigmarsdóttir Örn Tryggvi Gíslason
Sólveig Sigmarsdóttir
Anna Snædís Sigmarsdóttir Snorri Þórisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erna Sveinbjörnsdóttir
Strikinu 12, Garðabæ,
lést 27. mars. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 8. apríl
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni:
https://youtu.be/dkpCjuMptak
Friðrik S. Halldórsson Bergljót Friðriksdóttir
Elínborg Halldórsdóttir
Sveinbjörn Halldórsson Ingibjörg Erna Sigurðardóttir
Margrét Halldórsdóttir Jóhann Viktor Steimann
Erna Gunnþórsdóttir Óli Rúnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Tilkynning frá Kirkju-
görðum Reykjavíkur-
prófastsdæma (KGRP)
Samningsbundin stytting vinnuvikunnar, úr 40
tímum í 36 tíma, tók gildi hjá KGRP eins og
mörgum öðrum fyrirtækjum í ársbyrjun 2021.
Frá og með föstudeginum 9. apríl munu starfsmenn
KGRP ljúka vinnudegi kl. 12:00 á hádegi og verður
það fyrirkomulag áfram á föstudögum.
Þetta fyrirkomulag hefur lítil sem engin áhrif á
útfarartímana sem verða áfram kl. 11:00; 13:00
og 15:00 alla virka daga, einnig á föstudögum.
Það sem breytist á föstudögum er þetta:
Ekki verður hægt að bóka útför í athafnarýmum
hjá KGRP í Fossvogi.
Ekki verður tekið á móti kistum til jarðsetningar
á föstudögum.
Tekið verður á móti duftkerum til jarðsetningar til
11:30 á föstudagsmorgnum og athafnarými verða
opin fyrir kistulagningarbænir til kl. 11:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 585 2700
og á slóðinni: kirkjugardar.is/fostudagur
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sendu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar systur,
mágkonu og frænku.
Viktoríu B. Viktorsdóttur
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
á deild 12E Landspítala fyrir sýndan hlýhug og
alúð við ummönnun hennar.
Haukur Arnar Viktorsson Gyða Jóhanndóttir
Jóhann Á. Helgason Þóra Einarsdóttir
Jón Ari Helgason Ingibjörg Sæmundsdóttir
og börn.
Ma r g i r g l í ma v ið k v íð a , va n l íð a n og skólaforðun og getur reynst erfitt að finna af hverju sú líðan stafar. Ein-
angrunartímar vegna COVID-19 eru
auðvitað ekki að hjálpa til,“ segir Katrín
Ósk Jóhannsdóttir, barnabókahöfundur
í Grindavík, sem rekur útgáfufyrirtækið
Óskarbrunn (oskarbrunnur.is). Gegnum
árin kveðst hún hafa lesið ógrynni af
bókum og greinum um kvíða, hlýtt
á fyrirlestra, horft á vídeó og sankað
þannig að sér hugmyndum. Hún hafi
ákveðið að gera einföld próf á sjálfri sér.
„Ég fór að skrifa á hverjum degi í stílabók
hvað ég væri þakklát fyrir – alltaf nýtt á
hverjum degi – og að tína til eigin kosti.
Byrjaði bara með þetta tvennt. Að lesa
það síðan með athygli víkkaði skilning
minn á sjálfri mér.“
Með þessa reynslu í farteskinu kveðst
Katrín hafa ákveðið að gefa út dagbók
með stuttum en skýrum leiðbeiningum
þannig að notandi þyrfti bara að skrifa
nokkrar línur. Hún talar um heilaga
þrennu: „Fyrst er að þakka fyrir eitt-
hvað og því næst finna eigin björtu hlið,
ekki er nóg að skrifa: ég er góð/ur, það
verður að kafa dýpra og rökstyðja þá
fullyrðingu. Þriðja atriðið er að hrósa
einhverjum, fjölskyldumeðlimi, vini,
kennara, afgreiðslumanneskju – það
þarf enginn að hafa sigrað heiminn til
að eiga skilið hrós.“
Efnið síast inn
Dagbókin er þannig sett upp að ekki er
lengi gert að fylla í eyðurnar en mikil-
vægt er að gefa sér tíma til að lesa yfir
svörin, að sögn Katrínar. „Efnið síast
inn. Ég er ekki að segja að dagbókin geri
kraftaverk. En þessi aðferð styrkir sjálfs-
myndina og breytir hugarfari. Er eigin-
lega eins og að skipta um stöð á sjón-
varpinu, frá neikvæðri, svarthvítri stöð
yfir á jákvæða stöð í lit. Þá koma í ljós
lausnir og allt í einu er eitthvað að stefna
að. Allir hafa kosti sem þeir geta nýtt.“
Ef vilji er til að breyta eigin hegðun
eða koma einhverju nýju af stað í eigin
lífi þarf að vinna markvisst að því í
mánuð – til tvo – svo að það verði rútína,
að mati Katrínar. „Eftir það þarf maður
ekki lengur að minna sig á, heldur verð-
ur jákvæðni partur af lífinu,“ segir þessi
hugsjónakona.
Yndisstund sem styrkir böndin
Katrín telur dagbókina fyrir fólk á öllum
aldri. „Ef fjölskylda notar þessa aðferð
býður það upp á yndisstund sem styrkir
böndin og bætir samskiptin. Á mínu
heimili höfum við stundum tekið hring
við kvöldverðarborðið og farið yfir þá
þætti sem bókin snýst um. Aðferðin er
búin að kveikja sterka ástríðu hjá mér
og ég sé hvað þessi nálgun gerir mikið
fyrir börnin mín. Því trúi ég innilega að
með snemmtækri íhlutun sé hægt að
byggja sterkan og markvissan grunn
hjá börnum og sterkari grunnur býr til
sterkara samfélag.“
Bókin fór nýlega í bekki í einum
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og
Katrín kveðst byrjuð að fá skilaboð frá
nemendum, þannig að hún viti að bókin
sé eitthvað notuð. „Píeta-samtökin eru
að berjast fyrir að geðheilbrigði verði
sett inn í skólanámskrá og ég held að
svona bók væri gott verkfæri þar.“
gunfrettabladid.is
Eins og að skipta um stöð
Að skrifa jákvæð orð um sjálfan sig og aðra daglega og lesa þau yfir getur verið lykill-
inn að bættri líðan að mati Katrínar Óskar Jóhannsdóttur. Hún er með nýja dagbók.
Dagbókin sem Katrín hannaði.
Katrín Ósk fór að skrifa hvað hún væri þakklát fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
6 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT