Fréttablaðið - 06.04.2021, Side 27
Skiltagerð og merkingar
Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á
heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna
sem er í boði.
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is
SANDBLÁSTURSFILMUR
BÍLAMERKINGAR SKILTAGERÐ
www.xprent.is
KYNNINGARSVÆÐI
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Erla Þórarinsdóttir sýnir tólf verk í Gallerí H71, Hver f isgötu 71, sem unnin voru fyrir og á tímum COVID. Þar á meðal er teppi með
útsaumuðu faðirvori. „Árið 2008
þegar allt hrundi og forsætisráð-
herra sagði Guð blessi Ísland þá
rakst ég á þetta teppi í Rauða kross
búðinni, kippti því með mér heim
og byrjaði að sauma út í það faðir-
vorið. Þegar ég var hálfnuð varð ég
leið á því, pakkaði teppinu saman
og tróð því upp í skáp. Ég fann það
aftur fyrir fimm árum þegar ég
f lutti, mundi svo eftir því í fyrstu
bylgju pestarinnar og vildi klára
það. Það er gott að sýna það núna
og dásamlegt að fá að setja það upp
hér í þessu fallega húsi,“ segir Erla.
Fyrr á þessu ári fór Erla með
teppið til Sigurgeirs Sigurjóns-
sonar ljósmyndara á Hverfisgötu
til að láta hann mynda það. „Hann
spurði hvort ég vildi ekki koma með
f leiri verk til að ljósmynda og ég
kom með silfrað verk, Ósk um nýjan
tíma. Þegar það verk var komið upp
á gamlan, svartmálaðan vegg virtist
það hreinlega eiga heima þar. Sigur-
geir spurði hvort ég vildi kannski
sýna hérna. Og það vildi ég svo
sannarlega.“
Á sýningunni eru átta litríkar
híeróglýfur. „Þær eru í mannlegri
stærð, eins og spegill sem hægt er að
máta sig við. Í yfirborðinu er silfur
sem ég leyfi að oxast og það breytist
síðan í gyllta áferð,“ segir Erla. Æsa
Sigurðardóttir listfræðingur segir
í texta sem fylgir sýningunni að
Erla leiti að sameiginlegum menn-
ingarkjarna í verkum sínum og að
hún gangi ætíð út frá andlegum
forsendum. Spurð um andlegar
forsendur segir Erla: „Ég reyni að
hlusta og skynja hvað gerist hið
innra og varpa því svo út. Ég geri
það sem kemur til mín.“
Erla hefur á fjörutíu ára ferli
haldið fjölmargar einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum á Íslandi,
Norðurlöndunum, í Evrópu, New
York, Kína og Indlandi. Hún hefur
hlotið viðurkenningar og styrki
fyrir störf sín. Verk hennar eru í
eigu einkaaðila og helstu safna hér-
lendis.
Sýning Erlu stendur til 10. apríl.
Opið er fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga frá kl. 13-17.
Ég geri það sem kemur til mín
Erla Þórarinsdóttir sýnir verk í Gallerí H71. Þar á meðal er
teppi með útsaumuðu faðirvori og átta litríkar híeróglýfur.
Nýlega var úthlutað úr Tón-listarsjóði Rótarý á Íslandi styrk til tónlistarnema sem
verið hafa í meistaranámi og þykja
skara fram úr.
Fyrsti styrkþeginn var Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleikari og
síðan hafa alls 28 tónlistarnemar
hlotið styrk úr sjóðnum, 12 karlar
og 16 konur. Flestir þeirra eru nú
orðnir þekkt nöfn í tónlistarheim-
inum hér heima og nokkrir erlendis.
Ákveðið var að veita tvo styrki í
ár og nemur hvor þeirra 800 þúsund
krónum. Stjórnin náði einróma
samstöðu um að styrkinn í ár hlytu
Bryndís Guðjónsdóttir sópran-
söngkona og Erna Vala Arnardóttir
píanóleikari.
Bryndís Guðjónsdóttir er 27 ára.
Hún hefur hlotið fjölda viðurkenn-
inga og verðlauna og hún hefur
komið fram bæði í óperusýningum
og á tónleikum í Austurríki, Þýska-
landi og Ítalíu á síðustu misserum.
Hún er komin í úrslit hinnar frægu
Belvedere söngvarakeppni sem
verður haldin síðar á þessu ári og
hefur verið boðið að syngja Nætur-
drottninguna á næsta ári bæði á
tónleikum Sinfóníunnar og í upp-
færslu í München.
Erna Vala Arnardóttir er 25 ára.
Hún vann EPTA píanókeppnina á
Íslandi og hlaut 1. verðlaun í keppn-
inni Ungir einleikarar. Árið 2018
hlaut hún heiðursorðuna Hvítu
rósina, sem forseti Finnlands veitir.
Erna Vala stundar nú doktorsnám
í píanóleik við USC Thornton tón-
listarháskólann í Los Angeles.
Bryndís og Erna Vala
hljóta Rótarýstyrkinn
Erna Vala Arnardóttir.
Bryndís Guðjónsdóttir.
Erla Þórarinsdóttir sýnir tólf verk í Gallerí H71 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÉG REYNI AÐ HLUSTA
OG SKYNJA HVAÐ
GERIST HIÐ INNRA OG VARPA
ÞVÍ SVO ÚT.
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzo-sópran, kemur fram á hádeg-istónleikum í Hafnarborg í
dag, þriðjudaginn 6. apríl, ásamt
Antoníu Hevesi píanóleikara. Á
tónleikunum, sem eru titlaðir Ljós
og skuggi, verða f luttar aríur eftir
Caccini, Menotti og Bizet.
Vegna gildandi samkomutak-
markana verða tónleikarnir haldnir
fyrir tómum sal en streymt í beinni
útsendingu á heimasíðu safnsins og
á Facebook. Upptakan verður einn-
ig aðgengileg áfram að tónleikunum
loknum.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
standa yfir í um hálfa klukkustund.
Tónleikunum er streymt beint á
netinu.
Slóðina má finna á heimasíðu
Hafnarborgar og á Facebook-síðu
safnsins.
Ingveldur Ýr á hádegistónleikum
Ingveldur Ýr. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Eðli hlutanna eftir þau Birgi Sigurðsson og Elínu Önnu Þórisdóttur stendur yf ir í
Midpunkt.
Birgir og Elín hafa talað reglu-
lega saman í nokkra mánuði, gert
tilraunir og búið til verk fyrir þessa
sýningu í Midpunkt. Verkin hafa
verið smíðuð, leiruð, sett saman,
tekin í sundur, tengd við rafmagn,
fryst, brennd og mynduð með hita-
myndavél.
Elín og Birgir hafa unnið saman
að gjörningum síðan 2010 og voru
með innsetningu, vídeó og gjörn-
ing á Plan B listahátíðinni árið 2019
í Borgarnesi. Að þessu sinni leita
þau á nýjar slóðir. Þau nota led ljós,
leir, tré og málverk til að gera ljósa-
skúlptúra.
Nú í fyrsta sinn sýna þau afrakst-
ur tilrauna með hitamyndavél þar
sem kannað er varmastreymi í
listaverkum sem birtast í vídeó-
verki. Áhorfendur geta haft áhrif á
sýninguna með því að breyta litum
ljósanna með fjarstýringu. Unnið
er út frá tilraunum með ólíka
miðla, innsæi og samtali þeirra
Elínar og Birgis.
Tilraunir með ólíka miðla
Sýningin Eðli hlutanna er í Midpunkt.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15Þ R I Ð J U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 1