Fréttablaðið - 30.04.2021, Side 12

Fréttablaðið - 30.04.2021, Side 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Dettur einhverjum það í hug, fyrir utan kannski hina nýju forystu verkalýðs- hreyfingar- innar, að fyrir þessu sé inni- stæða? Þau sem tilheyra efri stéttum íslensks samfélags láta eins og efnahagslegt óréttlæti hafi ekki raun- verulegar og hræðilegar afleiðingar fyrir sam- borgara þeirra. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Brautirnar eru fáanlegar með mjúklokun Mikið úrval rennihurðabrauta frá Þýsk gæðavara. Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is Rétta leiðin Órólegu deildinni í þingf lokki Sjálfstæðisf lokks hefur gengið ágætlega að velgja heilbrigðis- ráðherra undir uggum og draga um leið fram undirliggjandi óeiningu um sóttvarnir hjá stjórnarf lokkunum. Digur- barkaleg yfirlýsing á Twitter bendir þó til að í Sjálfstæðis- f lokknum hafi loks náðst ein- ing. Aðallega um að stæra sig af skyndilegum og blússandi gangi í bólusetningum sem ætla mætti að skrifaðist á heilbrigðisráðu- neytið eins og allir bóluefna- bömmerarnir hingað til. „Það er bjart fram undan – við erum á réttri leið,“ sagði í tísti f lokksins sem formaðurinn, Bjarni Bene- diktsson, ítrekaði í eigin færslu: „Við erum sannarlega á réttri leið.“ 100.000 rollur Sigri hrósandi tístinu fylgdi myndskreytt yfirlýsing: „100.000 Bólusettir“ að vísu með *merktum fyrirvara um a.m.k. eina sprautu. Hvorki fylgdi sögunni né tístinu hvort þingmaðurinn Brynjar Níelsson hafi verið stunguþoli númer 100.000 en hann tilkynnti í gær að hann hefði verið leiddur „eins og rolla í rétt“ í bólusetningu. Hann hafði áður þvertekið fyrir að hann myndi þiggja bóluefni en við sinnaskiptin hefur eining Sjálfstæðisf lokksins í þessum bóluefnum mögulega verið innsigluð með vænni stungu frá AstraZeneca. toti@frettabladid.is Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahóp-um og það er meiri háttar mál að lenda upp á kant við þá.“ Svo mælir seðlabankastjóri. Fyrir okkur sem tilheyrum stétt verka- og láglaunafólks er ekkert augljósara. Einnig er augljóst að vinnuaflið tilheyrir ekki þeim hagsmunahópum sem stjórna lýðveldinu. En við þekkjum vel á eigin skinni hvernig það er að lenda upp á kant við stjórana. Sjúkleiki ástandsins birtist hvergi betur en í þeirri augljósu staðreynd að ekkert vekur upp hatur þeirra sem telja sig eigendur Íslands með viðlíka hætti og lýðræðisleg barátta vinn- andi fólks fyrir efnahagslegu réttlæti. Verka- og láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu tekst á við ótrúlegar áskoranir á degi hverjum. Ekki aðeins er því ætlað að komast af á launum sem eru langt undir framfærsluviðmiðum í einni dýrustu borg veraldar eða lifa á atvinnuleysisbótum sem eru skelfi- lega lágar. Nei, því er líka boðið upp á al-gróðavæddan húsnæðismarkað forréttindafólks. Þau sem tilheyra efri stéttum íslensks samfélags láta eins og efnahags- legt óréttlæti hafi ekki raunverulegar og hræðilegar afleiðingar fyrir samborgara þeirra. Þau láta eins og þau skilji ekki að þjóðfélag sem leyfir stéttaskiptingu og misskiptingu að festast í sessi og endurframleiðast á milli kynslóða er „ógeðslegt þjóðfélag“ sem svíkur vinnuaflið og börn þess um sanngirni og réttlæti. Með þessu opinbera þau algjöran skort á veruleika- tengingu, skort sem aðeins þau sem hafa allt til alls geta leyft sér. Þau sem hafa efnahagsleg eða pólitísk völd ótt- ast breytingar meira en allt. Þau fela ótta sinn undir hótunum eða orðagjálfri. En við sem tilheyrum stétt verka- og láglaunafólks höfum ekkert að óttast. Nema óbreytt ástand. Við ætlum ekki að sætta okkur við stjórnlausa tilætlunarsemi valdastéttarinnar í okkar garð. Betra, lýðræðislegra og réttlátara Ísland sem ekki er stjórnað í þágu hinna ríku er mögulegt. Það er vissulega stórt mál að berjast við hagsmunahópana en með samstöðuna að vopni getur sigurinn orðið okkar. Sjáumst í stéttabaráttunni, gleðilegan baráttudag verkalýðsins. Nú er tími dirfsku og dáða Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar Hinn efnahagslegi veruleiki bankar nú upp á. Nýjar hagtölur sýna að verðbólgan, sem hefur farið stöðugt hækkandi, mælist 4,6 prósent – langt yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans – og hefur ekki verið hærri í átta ár. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari þróun. Fjárfestar brugðust harkalega við verðbólgutöl- unum í gær, sem reyndust mun verri en spár greinenda gerðu ráð fyrir, og ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkis- bréfa hækkaði um liðlega 0,2 til 0,3 prósent. Það mun aftur hafa bein áhrif á fjármögnunarkostnað ríkissjóðs, sem þarf að sækja sér mikið lánsfé á komandi miss- erum, og fyrirtækja sem fjármagna sig á markaði. Það þarf tæpast að koma á óvart að verðbólgan sé ekki að hjaðna. Kostnaður vegna skipaflutninga hefur stórhækkað, hrávöruverð er upp um nærri 50 prósent frá áramótum og þá hafa orðið verulegar launahækk- anir nú þegar stór hluti fyrirtækja er í engri aðstöðu til að taka þær á sig nema að velta þeim út í verðlagið. Aðaldrifkrafturinn að baki verðbólgunni í þetta sinn er stighækkandi fasteignaverð – hækkunin er 4 prósent á tveimur mánuðum – og aðeins er tímaspursmál hvenær Seðlabankinn virkjar þjóðhagsvarúðartæki sín, eins og að þrengja skilyrði um veðlánahlutföll, til að kæla eftir- spurnina á fasteignamarkaði. Undirliggjandi vandinn, skortur á framboði af byggingarlóðum á höfuðborgar- svæðinu, mun þó eftir sem áður standa óleystur. Ísland var í einstakri stöðu til að takast á við efna- hagsáhrif faraldursins með skuldlítinn ríkissjóð og myndarlegan gjaldeyrisforða. Í meginatriðum hefur þar tekist vel upp. Ríkisfjármálunum var beitt af þunga, einkum í því skyni að örva einkaneyslu, Seðlabankinn lækkaði vexti úr 3 prósentum í 0,75 prósent, sem hef ur aukið ráðstöfunartekjur heimilanna, og með gjald eyris- inngripum tókst að verja gengi krónunnar. Hættan nú er hins vegar að við séum að missa verðstöðugleikann frá okkur. Hagkerfið er að ganga í gegnum eina dýpstu kreppu lýðveldissögunnar, uppsafnaður halli ríkissjóðs verður um 1.000 milljarðar 2020 til 2025 og atvinnuleys- ið er 11 prósent, en samt er launavísitalan að rjúka upp um 10 prósent vegna kjarasamningsbundinna hækkana – hjá hinu opinbera er hækkunin enn meiri – og ríkið og sveitarfélög eru að taka á sig mill jarða kostnað við stytt- ingu vinnuvikunnar. Dettur einhverjum það í hug, fyrir utan kannski hina nýju for ystu verkalýðshreyfingar- innar, að fyrir þessu sé innistæða? Boltinn er núna hjá Seðlabankanum. Ljóst er að það sem veldur honum einkum áhyggjum er að verðbólgu- væntingar á markaði hafa rokið upp og eru nú um 3,5 prósent. Vonir eru bundnar við að gengisstyrking krón- unnar, sem nemur um 9 prósentum síðustu sex mánuði, muni hjálpa við að ná verðbólgunni niður, en á sama tíma vill bankinn ekki sjá gengið hækka of mikið og þannig skerða samkeppnishæfni útflutningsatvinnu- veganna og þá um leið hamla endurreisn ferðaþjónust- unnar. Útlit er fyrir að vextir verði nú hækkaðir fyrr en ella sem mun ekki aðeins bíta fast á fyrirtækin heldur einnig heimilin, sem eru að stórum hluta með íbúðalán sín á breytilegum, óverðtryggðum vöxtum, á tímum þegar það er enn slaki í hagkerfi. Seðlabankanum er vandi á höndum á komandi mánuðum. Fyrirsjáanlegt  3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.