Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 16

Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 16
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Unnar Karlsdóttur Básbryggju 51, Reykjavík, fer fram í Garðakirkju laugardaginn 1. maí kl. 13.00. Vegna samkomutakmarkana verður streymt frá athöfninni. Hlekk á streymið má nálgast á Facebook-viðburðinum: Útför Unnar Karlsdóttur. Úlfur Þór Ragnarsson Karl Ágúst Úlfsson Ágústa Skúladóttir Inga Úlfsdóttir Ragnar S. Ragnarsson Linda Rán Úlfsdóttir Sigurður Ingi Jónsson barnabörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, stjúpmóðir, systir og mágkona, Sigríður Sveinsdóttir píanókennari, Espigerði 4, verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 3. maí kl. 13.00. Aðeins nánustu ættingjar og vinir verða viðstödd. Streymt verður frá athöfninni á slóð: seljakirkja.is. Kristín Guðmundsdóttir Gerður Guðmundsdóttir Jón Pétur Jónsson Helga Guðmundsdóttir Arnþór Sigurðsson Helga Sveinsdóttir Valdimar Guðnason Jón R. Sveinsson Guðrún Óskarsdóttir og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Thoroddsen flugstjóri og listflugmaður, lést fimmtudaginn 22. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Margret Linda Björnson Kristín Thoroddsen Steinarr Bragason Hrafn Thoroddsen Hrönn H. Hinriksdóttir Halla Thoroddsen Helga Thoroddsen James Roche Ásta Hallgrímsdóttir Sif Hauksdóttir Gröndal Gunnlaugur Björnsson Thoroddsen Gestur Björnsson Thoroddsen Þórdís Björnsdóttir Thoroddsen Ómar Emilsson barnabörn og barnabarnabarn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem veittu okkur styrk og sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts Brynjars Gunnarssonar Sérstakar þakkir eru til allra þeirra sem gerðu útförina að fallegri minningu um ljúfan dreng, ÍR-inga sem stóðu heiðursvörð og allra þeirra sem heiðruðu minningu Brynjars á einn eða annan hátt. Stefanía Rafnsdóttir Máni Brynjarsson og aðrir aðstandendur. Ætli ég sé ekki búinn að vera hér á Feyki í ellefu ár?“ segir Páll Friðriksson ritstjóri aðspurður. „Ég byrj-aði sem blaðamaður 2008 og tók við ritstjórn þremur árum síðar. En þreyttist og fór í sútunarverk- smiðjuna í tvö ár, þá var ég spurður hvort ég væri ekki búinn að hvíla mig nóg, það vantaði ritstjóra og ég sló til. Þó maður sé auðvitað alltaf í vinnunni ákvað ég þá að reyna að kúpla mig stundum út og hlaða batteríin.“ Það sem Páli er minnisstæðast af ferlinum á Feyki eru atburðir á fyrsta starfsárinu. Fyrst heimsókn Ólafs Ragnars og Dorritar í Skagafjörð í apríl 2008. „Ég var sendur til að taka mynd af forsetahjónunum í Fjölbrautaskól- anum en gat ekki slitið mig frá þeim og elti þau um allt hérað þar sem Dorrit fór á kostum og heillaði alla. Ólafur sinnti sínum skyldustörfum en sté svo til hliðar þar sem Dorr it lék á als oddi.“ Tveimur mánuðum síðar segir Páll tvo hvítabirni hafa gengið á land. „Sá fyrri sást í byrjun júní við Þverár- fjallsveg en hinn gekk á land á Hrauni á Skaga. Sá fyrri var felldur án nokk- urrar umhugsunar en þeim seinni átti að reyna að bjarga, í boði ríkisstjórnar- innar, en það tókst ekki.“ Bæði prent-og netmiðill Blaðið Feykir kemur út vikulega í tólf síðna prentuðu formi, svo er Feykir líka netmiðill. „Af því blaðið er áskrifenda- blað vil ég að lesendur þess sjái efnið áður en það fer á netið. Það eru þeir sem borga laun okkar starfsmanna. Auglýsingar ná ekki að halda útgáfunni uppi,“ segir Páll. „Fyrirtækið Nýprent sem gefur út Feyki heldur líka úti aug- lýsingablaðinu Sjónhorni sem fer inn á öll heimili í Skagafirði og Austur-Húna- vatnssýslu. Það er bæði galli og kostur fyrir Feyki. Stundum er hægt að fá aug- lýsingar í hann með því að auglýsa líka í Sjónhorni.“ Flestir áskrifendur Feykis eru í Skagafirði og Húnavatnssýslum að sögn Páls. „Brottf luttir halda líka tryggð við blaðið svo mörg eintök fara á höfuð- borgarsvæðið og eitt og eitt á aðra staði. Fólki þykir vænt um blaðið og við sem skrifum í það reynum að gera okkar besta. En vandi blaðamannsins er oft sá að hann fær ekki tíma til að leggja þá vinnu í efnið sem hann vildi.“ Afmælissýning Safnahúsið á Sauðárkróki er með sýn- ingu í tengslum við 40 ára afmæli Feyk- is enda geymir blaðið miklar heimildir um lífið á svæðinu. Fólk getur fengið efni í símann sinn og hlustað á hlað- vörp, að sögn Páls, meðal annars viðtal við fyrsta ritstjórann, Baldur Hafstað. „Blöð spegla samtíma sinn. Þegar Feykir var að komast á laggirnar var mikið um að vera í fjórðungnum, skóla- hald að byggjast upp, bæði í Fjölbraut og á Hólum þar sem það hafði legið niðri í tvö ár þegar Jón Bjarnason, síðar ráðherra, reif það upp. Blönduvirkjun var að fara í gang og það var tekist á um það mál,“ rifjar Páll upp. „Ritstjórar komu svolítið og fóru framan af en skólastjóri Fjölbrautaskólans, Jón F. Hjartarson, var öf lugur í útgáfunni og kennarar við skólann. Þá komu líka aðsendar greinar þar sem fólk skiptist á skoðunum um málefni byggðarlagsins. Nú sendir enginn greinar inn lengur nema fyrir kosningar. En við erum með dálk sem heitir Áskorandapenninn og hann hefur gengið furðu vel, það er sárasjaldan sem keðjan hefur rofnað.“ Skagfirðingur Páll kveðst hafa átt heima á Sauðár- króki allt sitt líf. „Foreldrar mínir eru báðir Skagfirðingar. Ég fer ekkert lengra aftur en það því þá er ég kominn í Eyja- fjörðinn!“ segir hann og kveðst þekkja f lesta Skagfirðinga. „Ég er lærður kjöt- iðnaðarmaður, vann mikið í slátur- húsinu og þar kynntist ég mörgum bændum. Það hefur nýst mér en ég fer æ minna út úr húsi í efnisöflun, sérstak- lega eftir að kófið kom.“ gun@frettabladid.is Blöð spegla samtíma sinn Fréttablaðið Feykir er fertugt um þessar mundir og er þess minnst með sýningu í Safnahúsi Skagfirðinga sem er hluti af dagskrá Sæluviku. Páll Friðriksson er ritstjóri. Páll við skrifborðið á Feyki. Meðal þess skemmtilegasta á ferlinum til þessa er að fylgja Dorrit um Skagafjörð. MYND/ÓLI ARNAR BRYNJARSSON Nú sendir enginn greinar inn lengur nema fyrir kosningar. En við erum með dálk sem heitir Áskorandapenninn og hann hefur gengið furðu vel, það er sárasjaldan sem keðjan hefur rofnað. 1948 Fyrsti Land Rover-jeppinn er sýndur á bílasýningu í Amsterdam. 1957 Norrænu skíðalandskeppninni lýkur. Þá hafa 14% Íslendinga tekið þátt og gengið fjóra kílómetra á skíðum. Á Ólafsfirði var þátttakan 67%. 1966 Hótel Loftleiðir er opnað í Reykjavík, sextán mán- uðum eftir að framkvæmdir hefjast. 1991 Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks tekur við stjórnartaumunum. Davíð Oddsson er forsætisráð- herra. 1993 Alþingi samþykkir fyrstu lög á Íslandi þar sem kveðið er á um meginreglur opinberrar stjórnsýslu. 1994 Árbæjarlaug er opnuð. Merkisatburðir 3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.