Fréttablaðið - 30.04.2021, Page 19
Feel Iceland framleiðir fjögur
hágæða fæðubótarefni úr
íslensku fiskroði og er að byrja
að selja áfyllingar í áskrift að
vinsælustu vörunni, Amino
Marine Collagen. Vörurnar eru
í umhverfivænum umbúðum og
lögð var áhersla á samfélagslega
ábyrgð við þróun þeirra.
„Við Hrönn Margrét Magnús
dóttir stofnuðum Feel Iceland árið
2013 í Sjávarklasanum, með það
að leiðarljósi að auka verðmæta
sköpun í íslenskum sjávarútvegi í
formi hágæða vara sem höfðu bæði
góð áhrif á heilsu og líðan fólks,
sem og umhverfið,“ segir Kristín
Ýr Pétursdóttir, vöru merkja stjóri
og annar stofnandi Feel Iceland.
„Rúmu ári seinna leit fyrsta vara
Feel Iceland dagsins ljós,
hreint hágæða kolla
gen fæðubótarefni
sem var unnið
úr íslensku fisk
roði, en engar
sambærilegar
vörur voru á
markaðnum á
þessum tíma.
Vörur Feel
Iceland hafa
notið mikilla
vinsælda vegna
virkni og hreinleika
þeirra og þær hafa
hlotið erlendar viður
kenningar fyrir sérstöðu sína
og gæði, ásamt því að vekja áhuga
erlendra fjölmiðla,“ segir Kristín.
Verðmætasköpun að leiðarljósi
„Okkar tilvist byggist upp á sjálf
bærni, nýsköpun og umhverfis
vitund og áður en vöruþróun átti
sér stað hjá fyrirtækinu var mótuð
stefna í sjálfbærni og samfélags
legri ábyrgð. Við erum líka að sjálf
sögðu aðilar í Festu – miðstöð um
samfélagsábyrgð,“ segir Kristín.
„Við leggjum mikla áherslu á
ábyrga starfshætti þar sem þrjú
meginatriði standa upp úr, en þau
eru gæði, umhverfi og samfélag.
Feel Iceland hámarkar verð
mætasköpun með því að nýta það
hráefni sem áður var hent. Með
því að nýta roðið er bæði verið
að lágmarka sóun og einnig að
skapa margfalt meiri verðmæti úr
fiskinum,“ útskýrir Kristín. „Vörur
Feel Iceland bera líka með stolti
stimpil Iceland Responsible Fish
eries, sem er einstakt.“
Vörulína í örum vexti
„Feel Iceland hefur þróað fjórar
vörur undir vörumerki sínu og
það munu fleiri bætast
við á árinu. Allar
vörurnar innihalda
hágæða kollagen
sem er unnið
úr íslenskum
fiski,“ segir
Kristín.
„Amino Mar
ine Collagen
er hreint kolla
genduft sem
gott er að blanda
út í til dæmis
drykki, grauta og
jógúrt, Age Rewind
eru hylki til inntöku fyrir
húðina og Joint Rewind eru hylki
fyrir liðina.
Drykkurinn COLLAB er sam
starfsverkefni Feel Iceland og
Ölgerðarinnar og hann fæst nú í
fimm bragðtegundum. Drykkurinn
inniheldur íslenskan fisk, er alveg
einstakur á heimsvísu og hefur
verið tilnefndur til alþjóðlegra
verðlauna,“ segir Kristín.
Áhersla á umhverfis-
vænar umbúðir
„Þegar fyrsta vara okkar kom á
markað voru flest fæðubótarefni
í plastdunkum, innihéldu ýmis
aukefni og það fengust ekki miklar
upplýsingar um uppruna inni
haldsins,“ segir Kristín. „Með
umhverfisvitund að leiðarljósi
tókum við þá ákvörðun að fara allt
aðra leið og gera mikið úr inni
haldinu og uppruna þess, að verið
væri að nýta aukaafurð sem áður
var hent og að eitthvað sem áður
var talið verðlaust gæti orðið að
hágæða vöru.
Við tókum þá ákvörðun að
nota ál í stað plasts, sem er mun
umhverfisvænna. Orkusparnaður
inn sem næst við endurvinnslu áls
er gríðarlegur, en það sparast 95%
þeirrar orku sem annars færi í að
vinna ál úr hefðbundnu hráefni
(báxíti) með endurvinnslunni og
álið má endurvinna óendanlega
oft.
Fólk á oft erfitt með að henda
umbúðunum okkar, en það er
alveg óhætt, því það má setja
málmhluti beint í tunnuna. Mót
töku og flokkunarstöðvar Sorpu
flokka svo með sjálfvirkum hætti
málma frá almennu heimilis
sorpi,“ útskýrir Kristín. „Best er
að setja setja dósirnar samt ekki í
sjálfan ruslapokann heldur beint
í tunnuna, en það má einnig skila
umbúðum Feel Iceland í málm
gáma á endurvinnslustöðvum.
Umbúðirnar voru einnig látnar
endurspegla gæði vörunnar með
því að vera vandaðar og eitthvað
sem fólk væri tilbúið til að hafa
sýnilegt á heimilinu. Við setjum
líka sérstaka límmiða sem auðvelt
er að fjarlægja á umbúðir, til að
hvetja notendur til að endurnýta
dósirnar,“ segir Kristín.
Áfyllingar í áskrift
„Nú í maí byrjar Feel Iceland
að bjóða upp á áfyllingarpoka í
áskrift að vinsælustu vöru sinni,
Amino Marine Collagen,“ segir
Kristín. „Sú lausn mun gera
föstum viðskiptavinum kleift að
fá áfyllingar sendar upp að dyrum,
sem er bæði mikið hagræði fyrir
viðskiptavini og umhverfisvæn
lausn.“
Vörur Feel Iceland fást í öllum
betri apótekum, heilsu- og mat-
vöruverslunum og á vefsíðu Feel
Iceland, feeliceland.com.
Umhverfisvæn fæðubótarefni úr íslensku hráefni
Kristín Ýr Pétursdóttir er vörumerkjastjóri og annar stofnandi Feel Iceland.
Feel Iceland hefur þróað fjórar vörur undir vörumerki sínu, sem innihalda allar hágæða kollagen úr íslenskum fiski. Amino Marine Collagen er hreint kollagenduft, Age Rewind eru hylki til inn-
töku fyrir húðina og Joint Rewind eru hylki fyrir liðina. Fjórða varan er drykkurinn COLLAB, sem er frá Feel Iceland og Ölgerðinni, en hann er fáanlegur í fimm bragðtegundum. MYND/AÐSEND
ALLT kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 30. apríl 2021