Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 22

Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Vottunarstofan Tún: Gunnar Á. Gunnarsson, Friðrik Steinar Svavarsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Ragnar Þórðarson og hundurinn Fróði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Söfnun villtra jurta, t.d. geithvann- ar, er hæf til lífrænnar vottunar. Umfeðmingsgras, villt jurt af ertu- blómaætt, bindur köfnunarefni. innleiddu svo líftæknifyrirtæki erfðabreyttar plöntur, með fyrir- heitum sem aldrei rættust. Ræktun þeirra jók notkun illgresis- og skordýraeiturs og fyrirheit um aukna uppskeru og næringargildi, svo og mótvægi við þurrka og flóð, hafa reynst vísindalega ómöguleg. Nú er hins vegar hvarvetna litið á lífræna ræktun sem leið til alhliða framfara, betra umhverfis og lífs- hátta,“ greinir Gunnar frá. Gervikjöt ræktað í tönkum Gunnar er spurður hvort lífræn búfjárrækt sé betri en önnur búfjárrækt, en áform hafa verið um að leggja hana niður og fram- leiða í staðinn kjöt í verksmiðjum. „Jú, vísindamenn hafa nýlega fleygt fram tillögum um að flytja skuli framleiðslu búfjárafurða yfir á tilraunastofur. Dæmi um það eru gervikjöt, til dæmis hamborgar- inn óborganlegi (e. Impossible Burger) og frumuræktað kjöt þar sem dýrafrumur eru ræktaðar í tönkum á tilraunastofum. Hvoru tveggja inniheldur erfðabreytt efni og blöndu úr mikið unnum íblöndunarefnum, en án þess að nokkrar rannsóknir hafi verið lagðar fram um næringargildi þeirra. Umhverfiskostnaður og neikvæð áhrif slíkra afurða á heil- brigði neytenda kunna því að vega þyngra en mögulegir kostir þess fyrir umhverfið að leggja niður búfjárrækt. Hér er því verið að skapa ný vandamál í stað þess að leysa þau,“ svarar Gunnar. Ef útkoman yrði í reynd erfða- breytt kjötlíki, sem á Evrópu- markaði yrði að merkja sem erfðabreytt matvæli, yrði þá líklegt að neytendur slægjust um aðgang að vörunni? „Nei, þvert á móti,“ svarar Gunn- ar. „Í Bandaríkjunum er rekið öflugt vottunarkerfi, sem vottar matvæli sem EKKI innihalda erfðabreytt hráefni. Neytendur vilja ekki erfðabreytt ef þeir eiga kost á öðru.“ Mannkyn mettað með lífrænu Stundum er haldið fram að lífræn ræktun sé gamaldags aðferð til að framleiða matvæli, en Gunnar segir tímana nú breytast ört. „Áður bar mikið á slíkum við- horfum en nú verðum við vör við mun meiri áherslu á fæðu- framleiðsluna sjálfa. Almenn- ingur tengir heilsufar sitt í mun ríkari mæli beint við það hvernig matvæli eru framleidd, hvernig grænmeti og ávextir eru ræktuð, og hvernig búfé er fóðrað og hver aðbúnaður þess er. Sú hugsun er aðeins hænufeti frá meðvitaðri kröfu um sjálf bæran landbúnað, fæðuframleiðslu sem mengar ekki, ræktun sem verndar og eykur gróðurmoldina, landnýt- ingu sem eykur kolefnisbindingu, og svo framvegis.“ Heimurinn sé að vakna til vitundar um að lífrænar aðferðir séu öruggasta og besta leiðin til að uppfylla þessar kröfur. „Neytendur átta sig á að líf- rænar aðferðir eru hvorki gamal- dags né óhagkvæmar, heldur nútímalegar og spennandi. Lífræn ræktun er besta vörn okkar gegn hættum sem að umhverfi okkar og heilsu stafar frá verk- smiðjubúskap, eiturefnanotkun og erfðabreyttum lífverum. Við þurfum að endurmynda það besta úr fortíðinni og í landbúnaði er brýnast að endurmynda og varð- veita gróðurmoldina (e. regenera- tive agriculture) og auka lífræna ræktun.“ Sumir hafa áhyggjur af því að uppskera lífrænnar ræktunar sé minni og hvort hún geti brauðfætt vaxandi mannfjölda í heiminum. „Í fyrsta lagi er rétt að hafa hug- fast að hungur meðal jarðarbúa stafar ekki af fæðuskorti heldur fátækt, í sambland við vald stór- fyrirtækja á talsverðum hluta matvælaframleiðslunnar,“ svarar Gunnar því. Samanburður á uppskeru- og framleiðnitölum sé oft mjög vill- andi hvað þetta varðar. „Samanborið við tún, kornakur eða grænmetisræktun, sem fær ríkulegan skammt af tilbúnum áburði, er uppskera á f latar- einingu oftast minni í lífrænni ræktun, einkum í byrjun aðlög- unar, en eykst síðan þegar frá líður. En þá gleymist yfirleitt að taka mið af þeim gríðarlega (oft dulda/óbeina) kostnaði, sem hefð- bundinn landbúnaður, byggður á mikilli efna- og orkunotkun, hefur í för með sér. Og oftast gleymist að nefna hvernig slíkur landbúnaður dregur smám saman úr frjósemi gróðurmoldarinnar og stuðlar að jarðvegseyðingu. Lífræn ræktun stefnir í allt aðra átt; hún byggir upp jarðveginn, eykur kolefnis- bindingu hans og nýtir hann um leið til framleiðslu á næringarrík- um matvælum án efnanotkunar.“ Lífræn vottun nú talin sjálfsögð Gildi vottunar hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og á eftir að aukast enn frekar eftir því sem framleiðsla og við- skipti aukast. Um þann þátt eiga Vottunarstofan Tún og Matvæla- stofnun gott samstarf. „Vottun lífrænnar framleiðslu er trygging neytenda og þeirra sem nota hráefni til vinnslu fyrir því að grunnkröfur um aðferðir og aðföng séu uppfylltar. Íslenskir framleiðendur voru lengi vel ekkert sérstaklega áhugasamir um vottun og litu á hana sem afskiptasemi, óþarfa kostnað og jafnvel ósanngjarnar kröfur vegna þess hve íslenskur landbúnaður sé hreinn og ómengaður. Nú er öldin önnur og flestir líta á þetta sem sjálfsagðan þátt í því að efla traust í viðskiptum og auka verðgildi vörunnar. Mikilvægi vottunar verður seint ofmetið og eftirlitið þarf að uppfylla kröfur um vinnu- brögð og óhlutdrægni,“ útskýrir Gunnar. Þótt ekki fari það alltaf hátt er margt mjög ánægjulegt að gerast á sviði lífrænnar ræktunar hér á landi. „Á síðustu árum hafa til dæmis komið fram nýir framleiðendur á lífrænum matjurtum og búfjár- afurðum í Skagafirði, Eyjafirði, Breiðdal, Berufirði, í Flóanum og víðar. Þá hafa tvö öflug fiskeldis- fyrirtæki hafið lífræna aðlögun í laxeldi og nýr framleiðandi á þang- og þaraafurðum bættist við á liðnu ári. Nokkur gróin fyrirtæki halda áfram öflugu vöruþróunar- starfi í þurrvöru, mjólkurafurðum, unnum matvörum og kjötfram- leiðslu. Nýverið bættist sælgætis- framleiðandi í hóp vottaðra og sömuleiðis fyrirtæki sem annast dreifingu á vottuðum afurðum frá löndum utan Evrópusvæðisins. Allt endurspeglar þetta aukinn áhuga almennings á lífrænum afurðum og virðingu fyrir vott- unarkröfum,“ segir Gunnar. Í samanburði við grannþjóðir okkar erum við þó enn eftirbátar. „Við erum vissulega langt á eftir grannþjóðum okkar, en okkur finnst almennt viðhorf hér á landi vera jákvæðara en áður. Það er mjög eftirtektarvert að fylgjast með framvindu mála á vettvangi Evrópusambandsins, en á undanförnum áratug hefur vottað lífrænt nytjaland í aðildar- löndum þess aukist um tvo þriðju upp í 8,5 prósent, og verðmæti vöruveltu lífrænna afurða hefur á sama tíma tvöfaldast í 41 milljarð evra. ESB birti fyrir mánuði síðan aðgerðaáætlun til næstu tíu ára um þreföldun vottaðs lands í 25 prósent árið 2030! Þessi metn- aðarfulla áætlun tekur á flestum meginþáttum framleiðslu- og neyslukeðjunnar, meðal annars með sérstakri áherslu á eftirspurn og traust neytenda, hlut lífrænna matvæla í opinberum innkaupum og matreiðslu, og stuðning við aðlögun í landbúnaði og fiskeldi.“ Gunnar segir að á kosningaári ætti það að vera keppikefli íslenskra stjórnmálamanna að kynna sér þessa stefnumörkun ESB og taka sér hana rækilega til fyrirmyndar í stefnuskrám og við næstu stjórnarmyndun. „Að sama skapi þurfa kjósendur að halda málinu á lofti þegar nær dregur kosningum.“ Vottunarstofan Tún er á Þarabakka 3 í Reykjavík. Sími 511 1330. Net- fang: tun@tun.is. Nánar á tun.is Á kosningaári ætti það að vera keppi- kefli íslenskra stjórn- málamanna að kynna sér stefnumörkun ESB og taka sér hana ræki- lega til fyrirmyndar í stefnuskrám og við næstu stjórnarmyndun. Gunnar Á. Gunnarsson Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Melabúðin, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin, Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju, Akranesi. 2 kynningarblað 30. apríl 2021 FÖSTUDAGURLÍFR ÆN VOTTUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.