Fréttablaðið - 30.04.2021, Síða 36
Átta listamenn eiga verk á sýningunni Fallandi trjám liggur margt á hjarta í Kling & Bang í Marshall-húsinu. Sýningar-
stjóri er Helena Aðalsteinsdóttir.
„Ég er mjög mikil áhugamann-
eskja um vísindaskáldskap, sér-
staklega femínískan vísindaskáld-
skap. Í bókmenntum er lesandinn
dreginn á ótrúlega sterkan hátt
inn í heim rithöfundarins. Ég velti
því fyrir mér hvernig væri hægt að
gera þetta sama á sýningu þannig
að áhorfandinn yrði eins og gestur
á nýrri plánetu þegar hann kæmi
inn í sýningarsalinn. Þetta var hug-
myndin á bak við sýninguna,“ segir
Helena og bætir við: „Mig langaði til
að búa til rými þar sem femínískar
frásagnir fengju að njóta sín. Þarna
er ekki verið að nota vísindaskáld-
skap til að forðast raunveruleikann
heldur frekar til að kafa dýpra inn
í hann. Sögurnar sem móta heims-
sýn okkar eru enn þann dag í dag
frásagnir feðraveldis. Femínískur
vísindaskáldskapur endurskrifar
þessar frásagnir. Sýningin skoðar
framlag kvenna og jaðarhópa og
varpar ljósi á fjölbreyttari viðhorf
til tilvistar okkar á jörðinni.“
Spurð hvort verk listamannanna
séu lík segir Helena: „Listamennirn-
ir á sýningunni koma frá mörgum
ólíkum áttum og leita í persónu-
legan reynsluheim í gerð verkanna
sinna. Hér eru þeir að varpa fram
mismunandi framtíðarsýnum, en
þegar verkin koma saman áttar
maður á sig á því að það eru mörg
líkindi á milli þeirra. Það er kannski
hægt að túlka það sem sameiginlegt
ákall um breytingar og framtíð fyrir
alla.“
Líffæri og köngulær
Elín Margot er fransk-íslenskur
hönnuður sem sýnir líffæri unnin
úr keramik. „Þarna eru stórir
kúplar tengdir við keramikskúlp-
túra. Verkið er gosbrunnur þann-
ig að það er f læði á milli kúplanna
og í þeim ræktar Elín Margot te,
sem hún vinnur úr bakteríum úr
sínu nánasta umhverfi. Hún er að
ímynda sér framtíðareldhús og
verkið kallar fram spurningar um
það hvar líkaminn endar og hvar
fæðan byrjar,“ segir Helena.
Köngulær úr stáli eftir Dýrfinnu
Benitu Basalan mæta gestum og
verða æ meira áberandi því lengra
sem farið er inn í salinn og í stærsta
rýminu er köngulóahreiður. „Dýr-
finna sér sjálfa sig í köngulónni sem
er kvenleg, hættuleg og á jaðrinum.
Hún sér fegurð og árásarhneigð í
köngulónni sem þarf að taka yfir
rými til að verða sýnileg.“
Samtal manns og náttúru
Bára Bjarnadóttir sýnir hljóðverk.
„Hún er að fjalla um samtal manns
og náttúru. Hún gerir þetta mjög
myndrænt í einlægu viðtali við
móður sína og Bára ímyndar sér
hvernig það væri að vera tré á landi
móður sinnar. Hún veltir fyrir sér
hvernig upplýsingar ferðast milli
ólíkra vitunda og hvernig við erum
í stöðugu samtali við umhverfið
okkar.“ segir Helena.
Að lokum nefnir Helena verk eftir
Tarek Lakhrissi sem hún segir tengj-
ast beint inntaki sýningarinnar.
„Þetta er stuttmynd sem fjallar um
geimveruinnrás á jörðina. Þar er
verið að kollsteypa valdapíramíd-
anum því geimverurnar stela öllum
valdamestu mönnum heimsins.
Í stað þess að fagna grípur um sig
ákveðin sorg vegna óréttlætisins
sem hefur átt sér stað í heiminum,
en eftir það er mögulegt að byggja
bjartari framtíð.“
Sýningunni lýkur 9. maí og opið
er miðvikudaga til sunnudaga.
Áhorfandinn eins og gestur á nýrri plánetu
Fallandi trjám liggur margt á hjarta er sýning í Kling & Bang. Átta listamenn eiga verk á sýningunni. Hel-
ena Aðalsteinsdóttir er sýningarstjóri. Hún vildi skapa rými þar sem femínískar frásagnir nytu sín.
Sýningin skoðar framlag kvenna og jaðarhópa, segir Helena Aðalsteinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Líffæri unnin úr keramik eftir hönnuðinn Elínu Margot.
Listamennirnir á
sýningunni eru
n Josephine van Schendel
n Þórey Björk Halldórsdóttir
n Bára Bjarnadóttir
n Dýrfinna Benita Basalan
n Tabita Rezaire
n Brokat Films
n Elín Margot
n Tarek Lakhrissi
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Barnabókaverðlaun Reykja-víkurborgar voru veitt á dög-unum.
Freydís Kristjánsdóttir hlaut
Barnabókaverðlaunin fyrir mynd-
lýsingar í bókinni Sundkýrin
Sæunn. Jón Stefán Kristjánsson var
verðlaunaður fyrir þýðingu sína á
bókinni Ótrúleg ævintýri Brjálínu
Hansen 3 eftir Finn-Ole Heinrich
og Rán Flygenring. Snæbjörn Arn-
grímsson fékk verðlaun fyrir bestu
frumsömdu bókina á liðnu ári,
Dularfullu styttuna og drenginn
sem hvarf.
Barnabókaverðlaunin veitt
Snæbjörn Arngrímsson verðlauna-
rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dimma eftir Ragnar Jónasson fær fimm stjörnur í Verdens Gang en bókin kom nýverið
út í Noregi. Gagnrýnandinn segir
að það sé auðvelt að sjá hvers vegna
Ragnar sé að verða eitt af stóru
nöfnunum í norrænum glæpa-
sögum. Dimma hefur að undan-
förnu vakið mikla athygli á Norður-
löndunum. Hún fékk meðal annars
fimm stjörnu dóma í fjölda blaða í
Danmörku fyrir skemmstu.
Gagnrýnandi Verdens Gang
segir meðal annars: „Það er sjald-
gæft að eldri konur séu aðalper-
sónur í nýlegum glæpasögum og
það er hressandi að lesa krimma
út frá því sjónarhorni. Sérstaklega
þegar maður hefur í huga tilvistar-
spurningarnar sem höfundurinn
varpar fram. ... Hinir ólíku þræðir
vefjast glæsilega saman og ég man
ekki eftir að hafa lesið glæpasögu
þar sem sögulokin eru svona óvænt
og átakanleg.
Það er auðvelt að sjá hvers vegna
Ragnar er á leið með að verða eitt
af stóru nöfnunum í norrænum
glæpasögum. Eftir að hafa gefið sig
á vald Huldu og umhverfinu sem
hún berst á móti er erfitt að slíta sig
lausan.“
Dimma fær enn meira lof
Metsöluhöfundurinn Ragnar Jónasson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Snæbjörn Arngríms-
son fékk verðlaun fyrir
bestu frumsömdu bókina á
liðnu ári, Dularfullu stytt-
una og drenginn sem hvarf.
3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING