Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 4
4
Við erum svo hress!
Lilja Sigurðardóttir
„Þið eruð alltaf svo helvíti hress!“ sagði
brosandi maður við mig á hátíðarhöldum
Hinsegin daga í fyrra. Það er rétt. Við erum
alveg helvíti hress. Hjá okkur ríkir stanslaust
stuð, biturðinni er skolað niður með
regnbogalitum kokteil, kröfugangan gerir
einungis kröfu um gleði, meira að segja
baráttusöngvarnir okkar eru diskó.
Ef þið eigið í erfiðleikum með að
þekkja hina framliðnu úr á meðal okkar, þá
takið eftir því að fætur þeirra ná ekki alveg
niður á jörðina. Þau eru samt með okkur í
gleðigöngunni, félagar okkar sem dóu af
völdum alnæmis, ofbeldis eða féllu fyrir
eigin hendi. Fáir ef nokkrir samfélagshópar
á Íslandi hafa orðið fyrir þvílíkri blóðtöku.
Við hin sem erum í göngunni, þau okkar
sem snerta jörðina, erum alveg helvíti hress.
Samt hafa mörg þeirra sem ganga í dag
orðið fyrir ofbeldi vegna sérstöðu sinnar,
sum alvarlegu. Sum hafa lent í klónum á
trúarsöfnuðum og beðið varanlegan skaða
af, sum hafa misst vinnu eða húsnæði, sum
hafa misst fjölskyldur sínar, vini, virðingu.
Mörg okkar sem göngum í dag höfum lifað
tímana tvenna á Íslandi. Og það á fáum
árum.
Á dögunum var ég að tala kjark í
afríska kynsystur sem þarf að berjast fyrir
lífi sínu og sjálfsvirðingu upp á hvern
dag, og ég sagði henni að fyrir tuttugu
árum hefði heimsins besti lygari ekki einu
sinni getað sannfært mig um að veruleiki
hinsegin fólks á Íslandi yrði sá sem hann
er í dag. Fyrir tuttugu árum hefði ég ekki
trúað því að tugþúsundir ættu eftir að
mæta á hátíð Hinsegin daga til að sýna
okkur stuðning og fagna með okkur, að
ungum lesbíum þætti sjálfsagt að gifta sig
í kirkju og eignast börn, að íslenska þjóðin
ætti eftir að móðgast við fúlan færeyskan
þingmann sem neitaði að setjast til borðs
með forsætisráðherranum okkar og konunni
hennar. Fyrir tuttugu árum voru mörg
okkar bara þakklát fyrir það ef okkar eigin
fjölskyldur vildu borða með okkur. Tímarnir
hafa breyst til slíks batnaðar að tilvera okkar
er næstum því óþekkjanleg frá því sem var.
Svo auðvitað erum við hress.
Hinsegin fólk á Íslandi hefur valið
að horfa ekki um öxl, að dvelja ekki við
sársauka fyrri tíðar, heldur horfa fram á
við og búast við hinu besta af íslensku
samfélagi. Það er alveg hárrétt stefna að
mínu viti. Fortíðinni er nefnilega ekki
hægt að breyta en staðan í dag er sú að
við búum í einu besta landi í heimi hvað
varðar réttindi og félagslega stöðu hinsegin
fólks. Vissulega ekki fullkomnu – en einu
því besta sem gerist. Við búum í samfélagi
sem er tilbúið til að hlusta, samfélagi
sem gerir sér grein fyrir þeim tækifærum
og möguleikum sem hverfa með hverri
manneskju sem ekki fær að njóta sérstöðu
sinnar og hæfileika.
En þó við horfum ekki um öxl þá er
samt nauðsynlegt að muna að þau réttindi
sem við höfum í dag voru ekki ókeypis. Þau
kostuðu blóð, svita og tár. Bókstaflega.
Og þess vegna ber að þakka fyrir þau af
auðmýkt. Við erum helvíti hress, en undir
niðri erum við mörg líka dálítið angurvær,
og því valda allir framliðnu vinirnir sem eru
með okkur í göngunni. Þeim hefði líklega
þótt gaman að geta gengið almennilega
með okkur í dag, með fæturna á jörðinni.
Í dag erum við, hinsegin fólk á Íslandi,
frjáls að því að hlúa að sérstöðu okkar og
rækta hana og njóta þess að vera öðruvísi í
stað þess að gjalda fyrir það. Að hluta til er
þessi sérstaða okkar afleiðing af fyrri kúgun:
Hvernig við tengjumst hvert öðru á næstum
því yfirskilvitlegan hátt, samkenndin sem á
engan sinn líka og svo húmorinn og gleðin
sem einkennir menningu okkar, gleðin
sem við leyfum öllum að njóta með okkur
á Hinsegin dögum. Þessi óforskammaði
húmor, gleðin sem einu sinni var aðferð til
að lifa af við óbærilegar aðstæður, hún er
núna bara til að njóta.
Kæru vinir, til hamingju með
nútímann. Njótum gleðinnar til fulls!