Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2013, Síða 42
42
Gleðigangan
Viltu vera með atriði?
Í gleðigöngu Hinsegin daga staðfestir
hinsegin fólk tilveru sína, sýnileika og
gleði. Þar sameinast lesbíur, hommar,
tvíkynhneigðir og transfólk í einum hópi
ásamt fjölskyldum sínum og vinum.
Gleðigangan er hápunktur og stolt
hátíðarinnar. Hinsegin dagar skipuleggja
hana og ráða alfarið hvaða atriði fá aðgang
að henni. Gangan er engu að síður sprottin
úr grasrótinni og það eru einstaklingar og
hópar sem móta og setja saman einstök
atriði hennar. Eins og fyrri ár stillum við upp
á Vatnsmýrarvegi, göngum Sóleyjargötu,
Fríkirkjuveg og Lækjargötu og framhjá
Arnarhóli þar sem útitónleikarnir eru haldnir
(sjá kort).
Mikilvægt er að þátttakendur vandi
skreytingar á vögnum sínum. Atriðum í
gleðigöngunni fjölgar ár frá ári og mörg
hver hafa verið einstaklega glæsileg.
Hinsegin dagar leggja áherslu á það að
hvert atriði miðli skilaboðum sem varða
veruleika hinsegin fólks á einn eða annan
hátt. Skilaboðin geta verið með óteljandi
móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda
miklu máli. Bestu atriðin kosta oftar en ekki
litla peninga. Í fyrra var besta atriðið heiðrað
með fjárstyrk fyrir framlag sitt, og sama
hætti verður haldið í ár, að heiðra besta
atriðið með eilitlum styrk eftir hátíðina.
Það er algjörlega óheimilt að auglýsa
fyrirtæki eða þjónustu í göngunni án
samráðs við stjórn Hinsegin daga. Athugið
að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum
og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer
af stað. Brot á þessum reglum geta leitt til
þess að atriði verði hafnað.
Leikstjórar til aðstoðar
Hinsegin dagar bjóða aðstoð leikstjóra
sem gefa góð ráð til göngufólks. Ræðið
hugmyndir ykkar við ráðgjafa okkar og
þau benda á leiðir sem kosta lítið en setja
flottan svip á atriðin ykkar. Sendið póst til
Hinsegin daga í tæka tíð og við aðstoðum
ykkur við að komast í samband við leikstjóra
sem hafa langa reynslu af götuleikhúsi og
uppákomum af öllu tagi.
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með formleg
atriði í gleðigöngunni verða að sækja
um það til Hinsegin daga eigi síðar en
fimmtudaginn 1. ágúst. Nauðsynlegt er
að skrá atriði með því að fylla út rafrænt
umsóknareyðublað sem finna má á
vefsíðunni www.reykjavikpride.com Nánari
upplýsingar veita göngustjórarnir Ásta,
Helga, Setta og Steina, en hægt er að
senda þeim póst á gongustjori@gmail.com.
Athugið að ekki er hægt að veita fólki með
atriði aðgang að göngunni nema það hafi
verið tilkynnt skilmerkilega til göngustjóra.
Öllum er velkomið að ganga í göngunni
en Hinsegin dagar leggja áherslu á að það
fólk sem vill taka þátt í göngunni án þess
að vera með sérstakt atriði fylgi henni frá
upphafi. Aðrir eru vinsamlega beðnir um
að bíða með að slást í hópinn þar til síðasti
vagninn hefur farið framhjá. Við minnum
einnig á að ætlast er til að skráð gönguatriði
varpi ljósi á menningu og mannréttindi
hinsegin fólks.
Uppstilling
Byrjað verður að raða göngunni upp á
Vatnsmýrarvegi, ofan við Læknagarð, kl. 12,
laugardaginn 10. ágúst og þeir þátttakendur
sem eru með atriði verða skilyrðislaust að
mæta á þeim tíma til að fá sitt númer og
fara í röð. Gangan leggur stundvíslega af
stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum.
Göngustyrkir
Hinsegin dagar veita minni háttar fjárstyrki
til gönguatriða. Umsóknir um þá skulu
berast Gunnlaugi Braga Björnssyni,
fjármálastjóra hátíðarinnar, um leið og sótt
er um þátttöku. Netfang hans er gjaldkeri@
reykjavikpride.com Styrkir eru einungis
veittir gegn framvísun reikninga og skulu
þeir hafa borist Gunnlaugi Braga Björnssyni,
Hinsegin dagar, Laugavegi 3, 101 Reykjavík,
fyrir 31. ágúst. Ekki er veittur styrkur til
að fjármagna leigu á farartækjum. Gæði
atriðanna skipta hér máli en dómnefnd
starfar á göngudaginn og metur bestu
atriðin. Hinsegin dagar áskilja sér rétt til að
samþykkja eða hafna öllum beiðnum um
styrki í samræmi við fjárhag hátíðarinnar.
The Pride Parade
People who wish to perform a number in
the parade must register before 1 August.
You can register by filling out a form
which can be found on the website, www.
reykjavikpride.com, from the link “Parade
Application” on the English version of
the website. For any further information
about the parade, please contact the
parade directors Ásta, Helga, Setta and
Steina by e-mail, gongustjori@gmail.com.
The parade leaves from Vatnsmýrarvegur,
close to the Bus Terminal BSI (see map),
and ends in front of the concert stage at
Arnarhóll. All participants are asked to
meet at 12:00 on Saturday, 10 August at
the starting point. The parade starts at
2 p.m. sharp.
Að gefnu tilefni minnum við á að
ófiðraðir steggir og fjaðralausar
gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu
Hinsegin daga. Finnið ykkur
vinsamlegast annan vettvang fyrir
steggja- og gæsapartí dagsins. Við
göngum í þágu mannréttinda og
mannvirðingar, ekki niðurlægingar!