Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 2
Síðbúinn HönnunarMars
Banastuðið vantar ekki í Ásmundarsal þar sem undirbúningur er í fullum gangi fyrir HönnunarMars 2021. Þótt nafn hátíðarinnar, sem haldin verður 19.-23.
maí, skjóti eilítið skökku við hefur HönnunarMars fest rætur í listasamfélagi Íslands á þeim tólf árum sem hann hefur verið haldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fríkirkjan í Hafnarfirði
boðar til aðalsafnaðarfundar
miðvikudaginn 2. júní kl. 20:00 í
Safnaðarheimili kirkjunnar að Linnetsstíg 6
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Ný lög fyrir Fríkirkjuna
Önnur mál
Tillögur að lagabreytingum eru kynntar á vefsíðu kirkjunnar frikirkja.is
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
arib@frettabladid.is
NEYTENDAMÁL Neytendasamtökin
leita nú að þremur prófmálum til að
kanna lögmæti breytilegra vaxta,
þar á meðal á fasteignalánum.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir að dómar
í slíkum málum geti haft áhrif á
allt að fimmta tug þúsunda lána,
lán upp á rúmlega 1.300 milljarða
króna, eða öll lán með ákvæðum
um breytilega vexti.
„Við teljum okkur vera með mjög
sterkt mál í höndunum,“ segir Breki.
„Við teljum að skilmálar sem séu
óskýrir og byggja á huglægu mati
séu ólöglegir.“
Neytendasamtökin opnuðu í
nótt vefinn Vaxtamálið.is þar sem
einstaklingar með slík lán geta gert
kröfu á sinn lánveitanda.
„Mál sem þessi geta tekið nokkur
ár fyrir dómi, þegar niðurstaðan
liggur fyrir þá kann að vera að kröf-
urnar verði fyrndar. Þess vegna er
mikilvægt að fólk geri kröfu. Þetta
er í raun og veru bara fjórir smellir
og þá er fólk búið að tryggja sig,“
segir Breki.
Að sögn Breka verður þetta
stærsta mál sem samtökin hafa
farið í og hafa þau fengið styrk frá
VR en einnig Samtökum fjármála-
fyrirtækja.
„Fjármálafyrirtækin skilja að
það þarf að eyða óvissu í þessum
málum,“ segir Breki Karlsson. n
Vilja kanna lögmæti breytilegra vaxta
Breki Karlsson,
formaður
Neytenda-
samtakanna.
Hafist hefur verið handa við
framkvæmdir og breytingar á
þriðju hæð Kringlunnar fyrir
milljarð króna. Breytingarnar
fela meðal annars í sér nýja
mathöll, búbblublómaskála
og ýmsa afþreyingu.
birnadrofn@frettabladid.is
VERSLUN „Þetta er heljarinnar fram-
kvæmd og fjárfesting,“ segir Sigur-
jón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar. Til stendur að endur-
skipuleggja og breyta þriðju hæð
verslunarmiðstöðvarinnar.
Breytingar eru unnar í samstarfi
við David Martin frá M Worldwide
og THG Arkitekta, og leiðir arki-
tektinn Paolo Gianfrancesco verkið.
„Um er að ræða svæðið frá bíla-
stæðum austan megin Kringlunnar
við Borgarleikhúsið og að rúllustig-
unum við enda bíógangsins,“ segir
Sigurjón.
Breytingarnar munu kosta um
einn milljarð króna og taka um
18-24 mánuði. „Markmiðið með
breytingunum er að búa til nýjan
áfangastað í Kringlunni sem lifir
dálítið sjálfstæðu lífi,“ segir Sigur-
jón.
Opnunartími þriðju hæðarinnar
verður lengri en hefðbundinn opn-
unartími Kringlunnar og áhersla
verður lögð á mat, af þreyingu og
heilsu. Verslanir sem fyrir eru á
þriðju hæð munu f lytja á annan
stað í húsinu og þar verður meðal
annars opnuð ný mathöll.
„Við erum í þeim fasa núna að
færa til starfsemi til að losa um
fyrir þær framkvæmdir sem fram
undan eru,“ segir Sigurjón. „Í næsta
áfanga er uppbygging nýrrar mat-
hallar sem mun leysa Stjörnutorg af
hólmi en þó á öðrum stað og þann-
ig rýma fyrir svæði sem mun hýsa
um þúsund fermetra afþreyingar-
svæði,“ bætir hann við.
Sigurjón segir viðræður um
af þreyingu á svæðinu enn í gangi
en að hann geti fullyrt að um nýj-
ungar á Íslandi sé að ræða fyrir fólk
á öllum aldri. „Ævintýraland verður
tekið í gegn og afþreyingu bætt við
fyrir eldri hópa, frá aldrinum tíu ára
og upp úr,“ segir hann.
Framkvæmdir eru nú þegar hafn-
ar og nýlega opnaði World Class
nýja líkamsræktarstöð í Kringlunni
sem er hluti af breytingunum. Þá
verður veitingastaðurinn Finnson
Bistro opnaður von bráðar á þriðju
hæðinni. „Þar verður ýmislegt nýtt
af nálinni, meðal annars búbblu-
blómaskáli sem ætti að tikka í box
hjá vinkonu hópum til dæmis,“ segir
Sigurjón.
„Við erum líka í þeirri sérstöku
aðstöðu að hafa leikhús innangengt
í húsinu og með þessum breyting-
um getum við sinnt leikhúsgestum
betur,“ segir Sigurjón og bætir við að
breytingarnar séu einnig kærkomn-
ar fyrir fólk sem býr í nágrenni við
Kringluna. „Þarna verður hægt að
koma og fá sér kvöldverð og sækja
afþreyingu fram eftir kvöldi,“ segir
hann.
Sigurjón segist ekki gera ráð fyrir
að loka þurfi Kringlunni eða hluta
hennar vegna framkvæmdanna,
unnið verði að þeim í áföngum
svo sem minnst rask hljótist vegna
þeirra. n
Milljarðar í breytta Kringlu
Þar verður ýmislegt
nýtt af nálinni, meðal
annars búbblublóma
skáli sem ætti að tikka
í box hjá vinkonuhóp
um til dæmis.
Sigurjón Örn
Þórsson fram-
kvæmdastjóri.
Kringlunnar
Breytingar á Kringlunni eiga að taka eitt og hálft til tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
arnartomas@frettabladid.is
EUROVISION Fyrri undanúrslit Euro-
vision fóru fram í Ahoy-höllinni í
Rotterdam í gær.
Tíu lönd komust í gegnum síma-
kosninguna og munu taka þátt á
úrslitakvöldinu á laugardag. Þær
voru Noregur, Ísrael, Rússland, Aser-
baísjan, Malta, Litháen, Kýpur, Sví-
þjóð, Belgía og Úkraína.
Sem gestgjafi á Holland öruggt
sæti á úrslitakvöldinu ásamt Þýska-
landi, Englandi, Frakklandi, Ítalíu
og Spáni.
Næstu undanúrslit verða annað
kvöld þar sem Daði og Gagnamagn-
ið verða fulltrúar Íslands. n
Sextán mótherjar
Íslands staðfestir
Elena frá Kýpur komst áfram í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Atriði Íslands verður
númer átta í röðinni í
Hollandi annað kvöld.
2 Fréttir 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR