Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 6
Bæði Kvikmyndaskóli Íslands og Listaháskóli Íslands hafa óskað eftir því að fá að bjóða upp á nám í kvikmyndagerð á háskólastigi. Mál beggja skóla eru til meðferðar hjá menntamálaráðuneytinu og lausn er í sjónmáli í báðum tilvikum. hjorvaro@frettabladid.is MENNTUN Nokkur óvissa hefur verið um framtíðarskipulag kvik- myndanáms hér á landi síðustu mánuði en bæði Kvikmyndaskóli Íslands, sem býður upp á nám fyrir einstaklinga með stúdentspróf sem getur verið metið til háskólanáms, og Listaháskóli Íslands, sem hyggst bjóða upp á nám á háskólastigi, standa á ákveðnum krossgötum. Þannig er að mál beggja aðila eru til meðferðar hjá menntamálaráðu- neytinu og ekki liggur fyrir hvort skólarnir geti boðið upp á nám á háskólastigi í haust. „Mér finnst mjög hæpið að við getum hafið nám við kvikmynda- deildina í haust þar sem ekki hefur verið gengið frá fjármögnunar- samningi við menntamálaráðu- neytið á þessum tímapunkti. Af þeim sökum finnst mér lík- legra að námið hefjist haustið 2022, þótt lokahnykkurinn á því að setja námið á laggirnar hefjist um leið og samningur verður í höfn,“ segir Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, um stöðu mála. „Boltinn er svolítið hjá ráðherra þessa stundina og þetta stendur og fellur með því hvenær samningur- inn verður undirritaður. Það er mikið tilhlökkunarefni að geta boðið upp á kvikmyndanám og þetta er mikilvægur áfangi bæði varðandi gæði kvikmyndagerðar í landinu og fyrir þá sem hyggjast leggja stund á kvikmyndagerð sem geta þá notið sambærilegrar menntunar og aðrir nemendur á háskólastigi,“ segir Fríða Björk. „Ráðherra hefur ákveðið að kvik- myndanám á háskólastigi muni hefjast hjá Listaháskóla Íslands. Kvikmyndagerð á Íslandi hefur verið í gríðarlega mikilli sókn á undanförnum árum og víða hefur verið tekið eftir árangri okkar á alþjóðavettvangi. Nám á háskólastigi er því mikil- vægt skref í áttina að enn frekari uppbyggingu, í samræmi við nýja kvikmyndastefnu Íslands til 2030. Nú er unnið að þeirri samninga- gerð við Listaháskólann, í samráði við stjórnendur, og er hún loka- metrunum. Stefnt er að því að innritun gefi hafist í haust,“ segir í svari menntamálaráðuneytisins um samningsgerð ráðuneytisins við Listaháskóla Íslands. Kvikmyndaskóli Íslands er svo með umsókn til meðferðar hjá menntamálaráðuneytinu um að færa nám skólans yfir á háskólastig. „Menntamálaráðuneytið hefur að ósk Kvikmyndaskólans skipað þriggja manna sérfræðingahóp til að veita umsögn um skólann og mun sá hópur framkvæma matið í júní og við vinnum samkvæmt því að staðfesting viðurkenningar liggi fyrir 1. ágúst næstkomandi. Við erum mjög bjartsýn á að það takist enda teljum við skólann fullnægja því að geta veitt tveggja ára diplómanám á háskólastigi og þriðja árið í BA-náminu verði svo klárað á hugvísindasviði Háskóla Íslands,“ segir Böðvar Bjarki Péturs- son, stjórnarformaður Kvikmynda- skóla Íslands. „Við höfum bent á að fjölgun stúdenta frá aldamótum hefur verið 100 prósent en fjölgun nem- enda í listnámi á háskólastigi hefur verið innan við 15 prósent. Með því að fara fyrrgreinda leið og heimila Kvikmyndaskólanum að stofna lítinn skóla á háskóla- stigi myndi nýnemum í listnámi fjölga um 30 prósent. Lítil deild við Listaháskóla Íslands er ekki nægi- legt viðbragð við stöðunni,“ segir Böðvar Bjarki um framhaldið. „Það er vert að nefna að Kvik- myndaskóli Íslands er á sínu öðru ári á fimm ára þjónustusamningi undirrituðum af menntamála- ráðherra og fjármálaráðherra en í þeim samningi kemur skýrt fram að stefnt sé að námsleið til BA gráðu í samvinnu við annan háskóla. Ekki er verið að óska eftir frekari fjárheimildum í þeirri umsókn sem er nú til meðferðar hjá mennta- málaráðuneytinu sem ætti að auð- velda aðgerðina.“ n Óvissunni um kvikmyndanám eytt Útlit er fyrir að innan tiðar muni tveir skólar bjóða upp á kvikmyndanám á háskólastigi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Boltinn er svolítið hjá ráðherra þessa stund- ina og þetta stendur og fellur með því hvenær samningurinn verður undirritaður. Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Lista­ háskóla Íslands. + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Fjölskyldupakkinn: Barnaheillum bárust fleiri en 300 umsóknir í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR thorgrimur@frettabladid.is GÓÐGERÐARMÁL Yfir þrjú hundruð umsóknir um hjól bárust til Barna- heilla í ár meðan á hjólasöfnun þeirra stóð. Elleftu reiðhjólasöfnun samtakanna á Íslandi lauk 12. maí. Barnaheill úthlutuðu hjólum til barna og ungmenna á landinu sem á þeim þurftu að halda. Hafin er hafin sala á þeim hjólum sem eftir standa. Hjólasöfnunin fór fram með þeim hætti að almenningur var beðinn að gefa hjól sem ekki voru lengur í notkun. Ýmsir aðilar komu að söfnuninni, þar á meðal sjálfboða- liðar frá Íslandsbanka, Advania og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Unnið var í samstarfi við Hjól- reiðaklúbbinn Drangey á Sauðár- króki og vonir standa til þess að hægt verði að stækka verkefnið til landsbyggðarinnar á næstu árum svo hægt verði að safna reiðhjólum fyrir börn óháð efnahag og félags- legum aðstæðum. Að lokinni úthlutun hjólanna eru afgangshjólin seld á hagstæðu verði. Söluágóðinn rennur til Barnaheilla á Íslandi og verkefna á vegum sam- takanna. Salan fer fram í dag og á morgun frá klukkan 14 til 18 að Smiðshöfða 7 í Reykjavík. n Vel heppnaðri hjólasöfnun Barnaheilla lokið birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Þau sem hafa fengið tvær tegundir af bóluefni gegn Covid-19 geta fengið bólusetningarvottorð líkt og þau sem hafa fengið tvær sprautur af sama efni eða eina sprautu af bóluefni Jansen. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir. Vegna mögulegra, alvarlegra aukaverkana býðst konum undir 55 ára sem fengið hafa eina sprautu af AstraZeneca að fá seinni skammt- inn með öðru efni. Þórólfur segir að best væri að gefa fólki báðar spraut- ur með sama bóluefni en að þessi lausn sé sú næstbesta í stöðunni. Í gær var greint frá því á vef danska ríkissjónvarpsins að ein- staklingar sem fengið hefðu eina sprautu af bóluefni gætu fengið útgefið bólusetningarvottorð að fjórtán dögum liðnum. Þórólfur segir slíkt ekki standa til hér á landi. „Það er vörn í einni sprautu en það hefur verið sýnt fram á að hún er ekki eins góð og ekki eins langvar- andi og tvær sprautur þannig að við gefum ekki út vottorð fyrr en eftir seinni sprautuna. Nema með Jansen sem er bara ein sprauta.“ Þá segir Þórólfur að ekki verði heldur tekið við bólusetningarvott- orðum hér á landi nema hjá þeim sem fengið hafa tvær sprautur. n Tvær sprautur til að fá vottorðið Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. benediktboas@frettabladid.is BREIÐHOLT Breiðhyltingar geta farið að hlakka til þjóðhátíðardagsins. Borgin okkar – hverfin mun styrkja íþróttafélög og foreldrafélög um 450 þúsund krónur hvert, eða alls um 2,7 milljónir. Hátíðarhöldin voru smá í sniðum í fyrra en nú verður blásið í alla hátíðarlúðra. n Milljónir í 17. júní Leiknismenn ætla að halda stóran þjóðhátíðardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 6 Fréttir 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.