Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 16
Kaup, sala og samruni fyrirtækja. kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferð • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Björn Víglundsson Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang markadurinn.is thorsteinn@frettabladid.is Kafli í frumvarpi til laga um gjald- eyrismál, sem kveður á um að Seðla- banka Íslands verði heimilt, með samþykki ráðherra, að setja gjaldeyr- ishöft, gæti tekið breytingum í með- ferð efnahags- og viðskiptanefndar. Þetta má lesa úr nýju minnisblaði fjármálaráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar. Lagt er til að Seðlabanka verði, með samþykki ráðherra, heimilað að beita verndunarráðstöfunum við sérstakar aðstæður sem gætu falið í sér að tak- marka eða stöðva fjármagnshreyf- ingar til að koma í veg fyrir alvarlega röskun á stöðugleika. Í umsögnum um frumvarpið hafa bæði SA og Viðskiptaráð lagst gegn því að heimildin verði í lögum og vilja að lágmarki aðkomu þingsins svo hægt sé að setja á fjármagnshöft. Hliðstæð heimild er til staðar í gild- andi lögum um gjaldeyrismál frá 1992 og hefur verið frá gildistöku. Telji nefndin samt tilefni til þess að bregðast við athugasemdum með breytingum á frumvarpinu koma einkum tveir möguleikar til greina, að mati ráðuneytisins. Annars vegar væri unnt að bæta við fyrirmælum um að reglur samkvæmt kaflanum haldi ekki gildi sínu nema Alþingi samþykki þær innan tiltekins tíma. „Með því móti gæti Seðlabankinn- Haftaákvæði gætu tekið breytingum Bjarni Bene- diktsson, efnahags- og fjármála- ráðherra. Gildi 10.100 Almenni 1.431 LIVE 1.000 Íslenski lífeyrissjóðurinn 410 Lífeyrissjóður bankamanna 400 Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 300 Brú lífeyrissjóður 159 Lífeyrissjóður tannlækna 25 Stapi Keypti, en gefur ekki upp fyrir hve mikið Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda Tók þátt, en fékk litlu úthlutað Frjálsi Tók þátt, fékk ekki úthlutað Festa Tók þátt, fékk ekki úthlutað EFÍA Tók þátt, fékk ekki úthlutað Lífeyrissjóður bænda Tók þátt, fékk ekki úthlutað LSBÍ Tók þátt, fékk ekki úthlutað Lífeyrissjóður Rangæinga Tók þátt, fékk ekki úthlutað Birta Tók ekki þátt Lífsverk Tók ekki þátt LSR Gaf ekki upp ✿ Þátttaka lífeyrissjóða í útboði SVN (Milljónir) brugðist við ef neyðaraðstæður sköp- uðust með því að setja takmarkanir með samþykki ráðherra, en þær féllu brott ef Alþingi samþykkti þær ekki innan tiltekins tíma. Þannig væri í senn tryggt að unnt væri að bregðast skjótt við neyðaraðstæðum og að Alþingi kæmi að ákvörðuninni,“ segir í minnisblaðinu Þá væri hægt að fella brott þennan kaf la frumvarpsins. Ráðuneytið segir þó mikilvægt að ekki verði gerð slík breyting nema gætt sé að öllum sjónarmiðum um áhrif þess að fella viðurkennd öryggisákvæði úr gildi. Þá verða gjaldeyrishöft ekki sett nema að undangenginni lagasetningu. „Það myndi þýða að ef þær að- stæður sköpuðust í hagkerfinu að talið væri nauðsynlegt að grípa til verndunarráðstafana af þessu tagi, til dæmis vegna bankaáhlaups, styrj- alda eða náttúruhamfara, myndi það kalla á að semja þyrfti sérstakt laga- frumvarp sem lagt yrði fyrir Alþingi til samþykktar.“ n Lífeyrissjóðurinn Gildi er með tæplega 10 prósenta hlut í Síldarvinnslunni eftir að hafa keypt um þriðjung alls þess hlutafjár sem var selt í hlutafjárútboðinu. Meira en helmingur allra lífeyrissjóða tók annað hvort ekki þátt eða bauð of lágt og var ekki úthlutað neinum bréfum. hordur@frettabladid.is helgivifill@frettabladid.is Lífeyrissjóðurinn Gildi keypti um þriðjung alls hlutafjárins sem var selt í almennu hlutafjárútboði Síld­ arvinnslunnar sem lauk um miðja síðustu viku. Eignarhlutur lífeyr­ issjóðsins í sjávarútvegsfyrirtæk­ inu eftir útboðið, samkvæmt upp­ lýsingum sem fengust frá Gildi, nemur 9,98 prósentum sem þýðir að hann fjárfesti fyrir liðlega tíu milljarða króna. Aðrir íslenskir lífeyrissjóðir keyptu fyrir miklu lægri fjárhæð­ ir – Almenni kemur næst á eftir Gildi með um 1.430 milljónir sem tryggir sjóðnum um 1,4 prósenta eignarhlut – en samanlagt fjár­ festu þeir fyrir að lágmarki um 14 milljarða króna í útboði Síldar­ vinnslunnar. Meira en helming­ ur sjóðanna tók hins vegar annað hvort ekki þátt eða, sem var í fleiri tilfellum, skráði sig fyrir bréfum en fékk ekkert úthlutað þar sem tilboð þeirra var lægra en endan­ legt útboðsgengi – 60 krónur á hlut – sem var ákvarðað í tilfelli fag­ fjárfesta, samkvæmt svörum sem Markaðurinn aflaði sér frá nærri tuttugu lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóður starfsmanna rík­ isins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, var eini sjóðurinn sem svaraði ekki fyrirspurn Markað­ arins varðandi þátttöku í hluta­ fjárútboðinu. Lífeyrissjóðurinn Stapi, sem er með skrifstofur sínar á Akureyri, staðfesti þátttöku í útboðinu, ásamt Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar en Stapi sér um rekstur sjóðsins, en vildi aftur á móti ekki gefa upp hversu stóran hlut sjóðurinn hefði keypt fyrir. Gildi, sem er þriðji stærsti líf­ eyrissjóður landsins, verður fjórði stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar þegar viðskipti með bréf í félaginu hefjast í Kauphöllinni hinn 27. maí næstkomandi. Ólíkt öðrum helstu lífeyrissjóðum fer Gildi ekki með neinn eignarhlut í Brimi, sem er í dag eina útgerðarfyrirtækið sem er skráð á hlutabréfamarkað, eftir Gildi fjárfesti fyrir um tíu milljarða í Síldarvinnslunni Eftir hlutafjárútboðið sem lauk í síðustu viku eru hluthafar Síldarvinnslunnar nærri sjö þúsund talsins. að hafa selt öll bréf sín í félaginu haustið 2019. Gildi er hins vegar næststærsti hluthafinn í laxeldis­ fyrirtækinu Arnarlaxi með 5,5 prósenta hlut en markaðsvirði þess hlutar er um þrír milljarðar króna. Í hlutafjárútboði Síldarvinnsl­ unnar, sem er eitt af umsvifa­ mestu útgerðarfyrirtækjum lands­ ins, var seldur 29,3 prósenta hlutur fyrir samtals 29,7 milljarða. Heild­ arvirði félagsins er þess vegna metið á um 101 milljarð króna. Nær 6.500 áskriftir bárust í útboð­ inu fyrir um 60 milljarða – það var því ríflega tvöföld umframeftir­ spurn – en það voru Samherji og Kjálkanes sem stóðu að sölu meg­ inþorra bréfanna. Félögin verða hins vegar eftir sem áður stærstu hluthafar Síldarvinnslunnar en þar á eftir kemur Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað. Tveir lífeyrissjóðir staðfestu í svörum sínum til Markaðarins að þeir hefðu ekki tekið þátt í útboð­ inu en það eru Birta og Lífeyris­ sjóður verkfræðinga (Lífsverk). Birta er fjórði stærsti lífeyris­ sjóður landsins með eignir upp á um 500 milljarða. Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) segist hins vegar hafa keypt fyrir um milljarð sem þýðir að sjóðurinn verður með um eins prósents eign­ arhlut í Síldarvinnslunni. Það vakti athygli í aðdraganda hlutfjárútboðs Síldarvinnslunn­ ar þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagðist vona að hvorki lífeyrissjóðir sem félags­ menn stéttarfélagsins greiða í eða almenningur myndu taka þátt í útboðinu. Velti hann því meðal annars fyrir sér hvort það væri leið til að „veiða almenning í net útgerðarfyrirtækja“ í því skyni að ná sátt um fiskveiðistjórnun­ arkerfið. VR skipar fjóra af átta stjórnarmönnum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna en stjórnend­ ur sjóðsins fóru í þetta sinn ekki að ráðum Ragnars og fjárfestu í útboðinu. Þetta var í annað sinn sem Ragn­ ar beitir sér gegn þátttöku LIVE í hlutafjárútboði en sumarið 2020 sendi stjórn VR frá sér yfirlýs­ ingu þar sem þeim tilmælum var beint til stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn lífeyrissjóðsins að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í útboði Icelandair sem fór fram í september sama ár. Yfir­ lýsingin var síðar dregin til baka. Í fjárfestakynningu vegna útboðs Síldarvinnslunnar kom fram að stjórnendur félagsins áætli að árið 2021 muni verða það besta í mörg ár og að EBITDA­ hagnaður muni nema á bilinu 9 til 10 milljörðum króna. Þá er stefnt að því að 30 prósent hagnaðar verði greidd út í arð til hluthafa á hverju ári en eiginfjárhlutfall félagsins var 68 prósent í árslok 2020. n 101 Heildarvirði Síldar­ vinnslunnar eftir niðurstöðu hlutafjár­ útboðsins er 101 milljarður króna. MARKAÐURINN2 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.