Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 26
Þær Valgerður Húnboga-
dóttir og Hafdís Huld Björns-
dóttir hafa gist eina nótt í
tjaldi í hverjum mánuði í
heilt ár. Þær hafa sett sér
það markmið ásamt þremur
vinkonum sínum að halda
áfram út árið.
sandragudrun@frettabladid.is
Valgerður, sem kölluð er Vala, segir
að upphaf útileguhópsins hafi verið
það að hún flutti heim til Íslands
eftir 10 ára búsetu erlendis. Hún
hafði stundað vetrarútilegur í Nor-
egi og langaði að halda því áfram.
„En þegar ég kom heim fyrir
þremur árum fann ég fyrir ein-
manatilfinningu. Það voru engir að
stunda svona útivist að mér vitandi.
Ég þótti bara skrýtin þegar ég var
að segja fólki frá þessu og reyna að
fá einhvern með mér í þetta,“ segir
hún.
„En svo skráði ég mig á námskeið
hjá Vilborgu Örnu og þá kynntist
ég stelpunum sem eru með mér í
þessum útinóttum í dag. Ég ákvað
að prófa að bjóða þeim með mér
í útilegu í apríl í fyrra og þær voru
bara til. Svo í október ákvað ég að
bjóða þeim í útilegu-afmæli og það
gekk alveg þrusuvel. Það var líka
eina leiðin til að halda upp á afmæli
í Covid. Við vorum allar bara einar
í tjaldi. Eftir þessa útilegu varð ekki
aftur snúið og fleiri og fleiri vildu
koma með.“
Vala og Hafdís hafa gist í tjaldi
eina nótt í mánuði síðan í apríl í
fyrra en í lok ársins bættust þær
Hafrún Dögg Hilmarsdóttir, Inga
Hrönn Sveinsdóttir og Rannveig
Anna Guðmundsdóttir við hópinn,
svo þær eru fimm sem stefna að því
að halda áfram út árið.
Aðspurðar að því hvernig gengur
að halda á sér hita segir Vala að það
hafi verið með ráðum gert að byrja
í apríl.
„Það var til að geta lokkað
þær smám saman með mér inn í
veturinn. Í upphafi voru flestar í
hópnum ekkert vel búnar. Ég var að
lána þeim mínar græjur og versla í
matinn og elda fyrir þær. En núna
eru þær margar komnar með miklu
flottari græjur en ég og komnar
fram úr mér á mörgum sviðum,“
segir hún.
„Það sem ég fæ kannski mest út
úr þessu er að takast á við áskoranir
og finna lausnir. Að fara kannski
fyrst í svefnpokann minn og átta
mig á að hann er of kaldur og ég
þarf að gera eitthvað. Þá þarf ég að
finna lausn. Þarf ég að hafa ullar-
teppi undir, aðra dýnu eða annan
poka? Mér er minnisstætt að Rann-
veig sem er með okkur í hópnum
sagðist oft sjóða vatn og setja í
plastflösku og hafa ofan í svefnpok-
anum. Ég hugsaði bara: Iss, ég þarf
þess ekkert, það er bara kjánalegt.
En svo prufaði ég og það var bara
allt annað líf. Allt ferlið er bara að
prufa, finna lausnir og læra og fyrir-
byggja að manni verði kalt aftur. Ég
tek til dæmis oft með mér ullar-
teppi. Þetta snýst ekkert endilega
um að kaupa nýjan búnað heldur
hugsa hvað á ég til og hvernig get
ég nýtt það,“ segir Hafdís og Vala
bætir við:
„Við förum alltaf yfir það í hverri
ferð hvernig gekk og hvað hefði
mátt fara betur. Þannig að við erum
í raun bara að læra smám saman.
Við köllum þetta útináttaverkefni,
örævintýri. Þetta er eitthvað sem
við getum gert eftir vinnu á föstu-
degi og við erum komnar heim til
fjölskyldunnar okkar um hádegi á
laugardegi. Við erum bara smám
saman að byggja upp þekkingu og
reynslu fyrir komandi, stærri ævin-
týri í framtíðinni.“
Best að byrja rólega
Þegar vinkonurnar tjalda að vetri
til keyra þær bara stuttan spöl út
fyrir borgarmörkin og reyna að
tjalda á stöðum þar sem er ekkert
netsamband.
„Þegar við erum í þessum
aðstæðum þá erum við lausar við
allt utanaðkomandi áreiti. Það
koma alltaf upp einhver vandamál
sem við þurfum bara að leysa úr
sjálfar. Við erum úti í náttúrunni,
það er ekkert net, ekkert sjónvarp,
engin börn, engin vinna eða yfir-
maður að hafa samband og biðja
mann að leysa úr verkefni. Það er
bara slökkt á símanum. Samtölin
verða þess vegna svo einlæg. Við
kynnumst á allt annan hátt en við
myndum annars,“ segir Vala.
„Það er eitthvað svo magnað við
það að vera í hlýjum og góðum
svefnpoka með vinkonum sínum
og hlusta á rigninguna. Maður
gleymir bara öllu öðru,“ bætir Haf-
dís við.
Hafdís segir að ef fólk hafi áhuga
á að prófa að gista úti í tjaldi að
vetri til þurfi alltaf að passa upp á
öryggið. Byrja til dæmis á að fara
bara eitthvað stutt eins og bara út
í garð.
„Ég var í sóttkví um daginn þegar
stelpurnar fóru í útilegu svo ég var
bara í tjaldi úti í garði á sama tíma.
Það er sniðugt að byrja úti í garði
og passa að fara aldrei eitthvert þar
sem er símasambandslaust, nema
vera með öryggisbúnað til þess. Við
erum til dæmis með GPS-tæki svo
við getum alltaf kallað til björg-
unarsveit eða vini ef við þurfum á
því að halda,“ segir hún.
Vala segir að fyrir þremur árum
síðan hafi hún ekki séð fram á
að geta stundað vetrarútilegur á
Íslandi af því hún vildi ekki gera
það ein. Núna segir hún að fólk
stoppi hana stundum á förnum vegi
og spyrji hvort hún sé ekki fjalla-
stelpan sem er alltaf í útilegu og
spyr hvort það megi vera með.
„Vala er stofnandi Fjallastelpna á
Facebook og þar er mikil umræða
um þetta,“ skýtur Hafdís inn.
„Það eru virkilega margir sem
vilja prófa þetta en það er eitthvað
sem stoppar. En ef mann virkilega
langar þá geta þetta allir,“ bætir
hún við.
„Við ákváðum að byrja að nota
myllumerkið útinætur 2021 til að
deila hugmyndum, við vildum líka
hvetja aðrar konur sem stunda
þetta til að nota myllumerkið og þá
getum við lært af þeim,“ segir Vala
og Hafdís bætir við.
„Mér finnst svo einstakt og
magnað að við höfum náð að skapa
þetta saman. Við settum okkur
markmið að gera þetta út árið og
þetta er framarlega í forgangsröð-
inni. Við ákveðum dagsetninguna
tiltölulega snemma og ef einhver
kemst ekki þá þarf að finna lausn
á því. Eins og þegar ég var í sóttkví
þá mátti ég lagalega ekki gera neitt
annað en tjalda úti í garði, svo ég
bara gerði það.“ n
Maður gleymir bara öllu öðru
Vala og Hafdís
hafa gist í tjaldi
eina nótt í
mánuði í heilt ár
eða frá því í apríl
í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Ferðirnar kalla vinkonurnar örævintýri. Þær eyða einu kvöldi saman eftir vinnu
á föstudegi og eru komnar heim í hádeginu á laugardegi. MYND/AÐSEND
Ómissandi
ferðafélagar
Þessar frábæru bækur eru komnar
aftur og eiga sannarlega erindi
með í ferðalög landans í sumar.
Á vel heima í bústaðnum
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
6 kynningarblað 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGURÚTIVIST