Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 28

Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 28
Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is 8 kynningarblað 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGURÚTIVIST Inga segir að brjóstakrabbamein sé algengt í sinni ætt. „Fyrir þremur árum, eða þann 21. apríl 2019, lést yngsta systir mín Iðunn Geirsdótt­ ir úr þessu krabbameini, aðeins 47 ára, eftir margra ára baráttu. Iðunn hefði orðið 50 ára á þessu ári. Af því tilefni langar okkur fjöl­ skylduna hjá Skotgöngu að leggja okkar af mörkum með því að safna fé til styrktar Göngum saman, en það félag var Iðunni mjög kært,“ útskýrir Inga. „Göngum saman er styrktarfélag sem hefur það markmið að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabba­ meini – en þær eru forsenda þess að lækning finnist í framtíðinni. Félagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði til heilsueflingar og til að afla fjár í styrktarsjóð félagsins. Við ætlum því í samræmi við áherslur Göngum saman að hreyfa okkur og safna um leið fé fyrir félagið í rannsóknasjóðinn,“ segir hún. Líka gengið á Íslandi Gangan hefst á morgun, en það eru Inga, eiginmaður hennar Snorri Guðmundsson og dóttir Margrét sem leggja þá land undir fót. „Við vitum að margir hefðu viljað koma með okkur en vegna Covid þá ákváðum við að fara í þessa ferð þrjú, enda öll búsett í Skotlandi. Aftur á móti verða göngur á Íslandi líka til heiðurs Iðunni, frændfólk og vinir okkar á Hvammstanga ætla að ganga Vatnsneshringinn þessa sömu daga og eru það ca. 90 km. Eins verða Göngum saman á Akureyri með göngu á annan í hvítasunnu, en þau ætla að ganga frá Reykjahlíð að Hverfjalli sem er um 10 km ganga,“ segir Inga. Vinsælasta gönguleið Skotlands Þegar Inga er spurð hvert gangan liggur, svarar hún. „Við, Skotgöngu­ fjölskyldan, ætlum að ganga eina vinsælustu gönguleið Skotlands: West Highland Way. Þetta er 154 km gönguleið sem liggur milli Milngavie í útjaðri Glasgow og Fort William, sem er höfuðstaður úti­ vistar í hálöndum Skotlands. Við höfum gengið þessa leið margoft með hundruðum manna í okkar starfi. Með hópum höfum við gengið leiðina á 7 dögum, en í ár ætlum við til heiðurs Iðunni að ganga þessa leið á 4 dögum,“ upp­ lýsir hún. Inga hefur lengi boðið Íslend­ ingum upp á gönguferðir í Skot­ landi. Þær hafa legið niðri vegna Covid. „Við verðum með ferðir í ágúst og í haust en fylgjumst með gangi mála hvað varðar ferðatak­ markanir og ferðalög og metum stöðuna út frá leiðbeiningum sóttvarnalæknis og Embættis landlæknis. Þær ferðir sem þarf að fella niður vegna Covid munu verða færðar á nýjar dagsetningar. En við erum bjartsýn á að komast aftur af stað með aukinni bólu­ setningu. Við höfum ekki farið í neinar ferðir síðan í mars á síðasta Ganga 154 kílómetra í minningu látinnar systur Inga til vinstri ásamt systur sinni Iðunni á Tenerife árið 2015, en ferðin var farin til að byggja hana upp eftir erfiða meðferð. Merking á leiðinni þar sem fjöl- skyldan ætlar að ganga. Hluti steinanna sem verður dreift á göngunni til minningar um Iðunni. Inga ásamt Kristínu, systur sinni, og eiginmanninum Snorra árið 2018 við enda Loch Lomond á West Highland Way. „Við vorum með hóp sem kallast Skokkhópur Árna og komu þau með okkur fyrri hluta leiðarinnar og ætluðu að koma og klára árið 2020 en þá kom Covid.“ MYND/AÐSEND Inga Geirsdóttir og fjöl- skylda hennar eru búsett í Skotlandi. Þau eru að leggja af stað í áheitagöngu fyrir Göngum saman á morgun. Með því vilja þau leggja sitt af mörkum, en yngsta systir Ingu lést úr brjóstakrabba- meini aðeins 47 ára. ári svo það er hægt að segja að þetta hafi verið frekar erfitt fyrir okkur fjárhagslega séð. En þrátt fyrir það þá hefur árið verið okkur gott að mörgu leyti. Þetta hefur verið góð samvera hjá okkur fjöl­ skyldunni, fullt af hugmyndum fæðst, meðal annars þessi áheita­ ganga á West Highland Way. Með heilsu- og hamingjuklúbb Nú, síðan stofnuðum við Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur hjá Huglind og ritstjóri tímaritsins Húsfreyjunnar, Facebook­síðu sem kallast Kvennaklúbbur Ingu Geirs og Kristínar Lindu, en þetta er heilsu­ og hamingjuklúbbur fyrir konur 40 ára og eldri sem hafa áhuga á uppbyggingu, gleði, nýjum jákvæðum kynnum og ferðum okkar Ganga og sjálfsrækt til Spánar og Tenerife,“ segir Inga, sem hefur verið búsett í Skotlandi í 18 ár. „Hér líður okkur vel enda eru Skotar alveg einstaklega skemmti­ legir og hjálpsamir. Þeir eru líka afskaplega gjafmildir og það hefur verið margsannað að Skotar eru gjafmildari en restin af Bretlandi – sérstaklega þegar kemur að góð­ gerðarmálum. „Sem dæmi hafa AMS boðið okkur ókeypis farangursflutning fyrir áheitagönguna og sumir gististaðir hafa boðið okkur afslátt á þessum dögum. Þessi fyrirtæki hafa nú verið lokuð meira og minna síðan Covid skall á og með takmarkaða innkomu og kom þetta okkur því verulega á óvart. Við munum því sjálf leggja þá upp­ hæð sem safnast saman þar inn á Göngum saman.“ 50 litríkir steinar á gönguleið Fjölskyldan hefur verið að dunda við að mála 50 steina sem þau ætla að dreifa á leiðinni. „Steinarnir eru fallegir, bjartir og gleðjandi, eins og Iðunn var. Við munum dreifa steinunum með reglulegu millibili upp West Highland Way, einn steinn fyrir árin 50 sem von­ andi munu gleðja augu þeirra 85 þúsund manns sem ganga leiðina árlega.“ n Hægt er að styrkja þetta verðuga málefni með áheitum sem ganga óskipt til samtakanna. Styrktar- reikningur hjá Göngum saman er: 301-13-304524, kennitala: 650907- 1750. Hægt er að fylgjast með göngunni á West Highland Way á Facebook- síðu Skotgöngu og á Facebook-síðu Göngum saman.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.