Fréttablaðið - 19.05.2021, Page 29
✿ Fjöldi ferðamanna um KEF
þús. kr.
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
201
3
201
4
201
5
201
6
201
7
201
8
201
9
202
0
202
1
(sp
á)
78
1 96
9
47
9 7
00
1.
25
9
1.
76
8 2
.19
6
2.
31
6
1.
98
6
HEIMILD: MÆLABORÐ FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Atburðir eftir síðustu markaðskönnun lofa góðu
Rétt yfir 10 prósentum svarenda í síðustu markaðskönnun sem
Íslandsstofa stóð fyrir í febrúar, töldu líklegt að þau myndu ferðast
til Íslands innan næstu tólf mánaða og mestur var áhugi Bandaríkja-
manna.
„Þess má geta að þegar könnunin var framkvæmd voru ekki
komnar fréttir um eldgosið, áform um að bólusettir ættu greiðari
leið inn í landið og Húsavíkurlagið hafði ekki verið tilnefnt til
Óskarsverðlauna. Þetta eru allt hlutir sem vinna með okkur,“ sagði
Daði Guðjónsson, fagstjóri neytendamarkaðssetningar hjá Íslands-
stofu, í frétt Fréttablaðsins.
Þá mældist Ísland hæst þegar kom að trausti ferðamanna til
landa til að takast á við Covid-19. Um 33 prósent svarenda sögðust
treysta Íslandi algjörlega, en næsta land á eftir var Kanada með 26
prósent.
Áhyggjur af útbreiðslu Covid-19 voru algengasta ástæðan sem
fólk gaf fyrir því að það væri ólíklegt til að ferðast á næstunni. Um
77 prósent svarenda nefndu Covid-19 sem helstu ástæðuna.
Play stækkar kökuna
Flugfélagið Play byrjaði að
selja flugmiða til sjö áfanga-
staða í Evrópu í gær en fyrsta
flug félagsins til London
verður 24. júní. Aðrir áfanga-
staðir eru Alicante, Barce-
lona, Berlín, Kaupmanna-
höfn, París og Tenerife.
Fyrsta vél félagsins, TF-
AEW, var afhent í Texas í
Bandaríkjunum í gær en vélin
er fyrst þriggja systurvéla
sem félagið hefur tryggt sér
frá flugvélaleigusalanum
AerCap.
Egill Almar Ágústsson,
fyrrverandi forstöðumaður
leiðakerfis Icelandair, sagði
í samtali við Markaðinn um
miðjan apríl að innkoma Play
væri líkleg til að fjölga ferða-
mönnum enn frekar.
„Til og frá Íslandi, eins og
innkoma WOW air sýndi,
er líklegt að Play stækki
markaðinn. WOW air fjölgaði
ferðamönnum til Íslands
með því að höfða til mark-
hóps sem Icelandair náði ekki
eins til. Við munum væntan-
lega sjá sömu áhrif með inn-
komu Play,“ sagði Egill.
Þegar Bandaríkjamenn
gátu loksins ferðast
gerðust hlutirnir mjög
hratt og við erum
spennt að sjá það sama
gerast á öðrum mörk-
uðum.
Birna Ósk Einars-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
sölu og þjónustu
hjá Icelandair.
Það er alveg ljóst að
ákvörðunin um að
taka á móti bólu-
settum Bandaríkja-
mönnum hefur haft
mjög jákvæð áhrif.
Styrmir Þór
Bragason, for-
stjóri Arctic
Adventures.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Lúxushótelið Deplar Farm í
Fljótum hefur verið lokað frá því
að kórónufaraldurinn skall á ferða
þjónustuna, en dyr hótelsins verða
opnaðar aftur frá og með 5. júní
næstkomandi, segir Haukur B. Sig
marsson, framkvæmdastjóri Eleven
Experience, sem rekur hótelið.
„Við vorum að ráða á bilinu 50–60
manns til að undirbúa opnunina.
Það er mikið um pantanir frá Banda
ríkjunum. Þetta er allt að fara af
stað,“ segir Haukur.
Þá greindi Morgunblaðið frá
því í gær að framkvæmdastjóri RR
Hótela áætlaði að nýting gistirýma
fyrirtækisins, alls 150 talsins, yrði
um 90 prósent í júlí og ágúst. Hann
sagði að f leiri bókanir hefðu borist
núna í maí en í maí 2019. Herbergin
væru seld á svipuðu verði og því
væri ekki um útsöluáhrif að ræða.
Árangursrík herferð
Um leið og opnað var fyrir ferðalög
bólusettra Bandaríkjamanna til
landsins hóf Icelandair markaðs
setningarherferð þar í landi.
„Eftir ákvörðun ráðherra fórum
við á fullt með herferð í Bandaríkj
unum sem hefur skilað mjög góðum
árangri,“ segir Birna Ósk Einars
dóttir, framkvæmdastjóri sölu og
þjónustu hjá Icelandair.
„Viðbrögðin við öllum okkar her
ferðum á Bandaríkjamarkaði hafa
verið mjög góð og það sést í vaxandi
fjölda farþega sem koma þaðan.“
Markaðsherferðin skilaði sér ekki
einungis í aukinni sölu á flugsætum
heldur einnig í sölu á pakkaferðum
sem eru seldar í samstarfi við önnur
ferðaþjónustufyrirtæki.
„Ein af þessum pakkaferðum er
annar best seldi pakkinn hjá Ice
landair frá upphafi. Það virðist sem
fólk vilji láta skipuleggja ferðirnar
fyrir sig, og er tilbúið að borga fyrir
það, frekar en að gera allt upp á eigin
spýtur,“ segir Birna.
„Þegar Bandaríkjamenn gátu
loksins ferðast gerðust hlutirnir
mjög hratt og við erum spennt að
sjá það sama gerast á öðrum mörk
uðum. Það er aðeins byrjað í Bret
landi og við sjáum einnig jákvæð
merki í nokkrum Evrópulöndum,“
bætir hún við. Í lok maí mun Ice
landair f ljúga til sex áfangastaða í
Bandaríkjunum og 10 áfangastaða
í Evrópu.
Misskiptur ábati
Stórt hlutfall Bandaríkjamanna er
ferðaþjónustunni hagfellt að mörgu
leyti.
„Þessi hópur Bandaríkjamanna
virðist dvelja lengur og kaupa meiri
afþreyingu en við erum vön. Þetta
virðist vera fólk sem hefur ekki
varið peningum í utanlandsferðir í
töluverðan tíma og hafa ekki orðið
fyrir f járhagslegu áfalli,“ segir
Jóhannes Þór.
Einsleitni ferðamannastraumsins
veldur þó því að sum ferðaþjónustu
fyrirtæki hafa lítil tækifæri til tekju
öflunar enn sem komið er.
„Þetta skiptist misjafnt eftir því
hvort fyrirtæki þjónusti hópa eða
einstaklinga. Eins og stendur eru
þetta ferðamenn sem ferðast á eigin
vegum. Þeir ferðast með bílaleigu
bílum frekar en rútum. Og einnig
er misjafnt hvort fyrirtækin hafi
reynslu og tengsl á Bandaríkjamark
aði,“ segir Jóhannes Þór.
Styrmir hjá Arctic Adventures
tekur í sama streng. „Það er meira
að gera hjá þeim sem þjónusta ferða
menn sem ferðast á eigin vegum
enda ferðast Bandaríkjamenn síður
í hópum. Og þeir kaupa gjarnan dýr
ari hótelgistingu, betri bílaleigubíla
og meiri afþreyingu,“ segir Styrmir.
Jóhannes bendir þó á að hópferðir
gætu tekið við sér á næstunni þegar
breskar ferðaskrifstofur byrja að
bjóða upp á slíkar ferðir til Íslands.
Aðlögun fram undan
Þá tekur Jóhannes fram að þrátt
fyrir þessa jákvæðu þróun eigi
ferðaþjónustan enn langt í land.
Hann bendir á að framboð í
atvinnugreininni miði við að fjöldi
ferðamanna sé á bilinu 2 til 2,5
milljónir.
„Þegar fjöldinn er ekki nema 700
þúsund, vel innan helmings þess
sem greinin getur afkastað, er ljóst
að eitthvað þarf að gefa eftir,“ segir
Jóhannes. Atvinnugreinin mun því
þurfa að laga sig að nýjum veruleika.
„Mörg fyrirtæki munu þurfa að
leggja upp laupana, minnka við
sig eða sameinast öðrum,“ segir
Jóhannes.
„Sú aðlögun hefur legið fyrir
frá því að faraldurinn hófst en
aðgerðir stjórnvalda og fjármála
kerfisins, sem hjálpuðu greininni
að lifa af veturinn þangað til fyrir
tækin gætu byrjað að afla sér tekna
á ný, frestuðu vandanum. Það hefur
komið fram að þessar aðgerðir verði
trappaðar niður inn í næsta ár og
því kemur í ljós í vetur hvernig
aðlögunin verður.“
Samtök ferðaþjónustunnar settu
nýlega fram aðgerðir til að hraða
viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Á
meðal þess sem samtökin leggja
til er að virðisaukaskattur í ferða
þjónustu verði lækkaður í sjö pró
sent til 2025 og tryggingagjaldið
lækkað frá ársbyrjun 2022. Þá
þurfi að auka verulega við framlag
ríkisins til neytendamarkaðssetn
ingar Íslandsstofu á ferðaþjónustu
erlendis. Framlagið verði um 1 til 1,5
milljarðar króna á ári til að halda í
við samanburðarlönd. n
MARKAÐURINN 7MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2021