Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 31
Eyrir Invest leggur til 1,5
milljarða króna. Sjóðurinn
mun fjárfesta í fyrirtækjum
sem komin eru af klakstigi og
vilja vaxa hratt alþjóðlega.
helgivifill@frettabladid.is
Eyrir Venture Management (EVM)
er við það að loka rúmlega sex
milljarða vísisjóði sem ber nafnið
Eyrir Vöxtur. Eyrir Invest, sem á
EVM og er kjölfestufjárfestir Marel
frá árinu 2004, leggur sjóðnum
til 1,5 milljarða króna. Aðrir fjár-
festar eru lífeyrissjóðir, trygginga-
félög og Ingvar Pétursson sem hefur
meðal annars verið fjármálastjóri
hjá Nint endo og tæknistjóri hjá
Expedia og AT&T Wireless.
Þetta segir Stefanía Guðrún
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
sjóðsins, í samtali við Markaðinn.
Hún hefur meðal annars verið
framkvæmdastjóri CCP á Íslandi,
stýrt þróunarteymi CCP í Kína og
verið framkvæmdastjóri markaðs-
og viðskiptaþróunar hjá Lands-
virkjun.
EVM rekur fyrir vísisjóðinn Eyri
Sprota sem er fullfjárfestur og er 4,5
milljarðar að stærð. Eyrir Invest á
46 prósent í honum og Arion banki
26 prósent. „Hluthafahópur Eyris
Vaxtar er mun breiðari en Eyris
Sprota sem er af hinu góða,“ segir
hún. Sá sjóður á meðal annars í
Saga Natura og Activity Stream.
Eyrir Invest fjárfesti fyrst í sprota-
fyrirtæki árið 2007 með kaupum á
fjórðungshlut í Calidris sem selt var
til bandaríska hugbúnaðarfyrir-
tækisins Sabre árið 2010.
Eyrir Vöxtur mun fjárfesta í
nýsköpu na r f y r ir t æk ju m sem
komin eru af klakstigi og horfa til
þess að vaxa hratt alþjóðlega. „Fyr-
irtækin eru komin með vöru eða
þjónustu og ljóst er í hverju sam-
keppnisforskot þeirra er fólgið. Á
þessu stigi þurfa fyrirtæki mikinn
stuðning til að sækja fram á alþjóð-
legum mörkuðum sem getur verið
í formi öflugs tengslanets og fjár-
magns,“ segir Stefanía.
Horft er til þess að fjárfesta í sjö
til tíu fyrirtækjum á fjórum árum
og slíta sjóðnum eftir tíu ár í því
skyni að greiða fjárfestum fram-
lag sitt til baka með góðri ávöxtun.
Sjóðurinn mun leggja hverju fyrir-
tæki 300-500 milljónir króna í upp-
hafi og getur fylgt fjárfestingum
eftir. Samanlagt má hann leggja allt
að einn milljarð í eitt fyrirtæki. „Við
fjárfestum oftar í sama fyrirtækinu
ef því gengur vel,“ segir hún.
Ávöxtunarkrafa Eyris Vaxtar
er 20 prósent á ári. „Hvert og eitt
fyrirtæki þarf að eiga möguleika á
að tvöfalda verðmæti sitt á þremur
árum frá fjárfestingu og tífalda sig á
sjö til tíu árum. Það er vegna þess að
miklar líkur eru á að einhver fyrir-
tækjanna muni misstíga sig og því
þurfa önnur fyrirtæki að hífa upp
ávöxtunina,“ segir Stefanía.
Til að fyrirtækin í eignasafn-
inu séu betur undirbúin fyrir
vöxt erlendis hefur Eyrir Vöxtur
samið við viðskiptahraðalinn
MIT DesignX sem háskólinn MIT
í Boston stendur fyrir. Að hennar
sögn komu einnig fyrirtæki á borð
við Google, Autodesk og Gensler,
eitt stærsta hönnunarfyrirtæki í
heimi, að stofnun hraðalsins.
Stefanía segir að þau fyrir-
tæki sem fari í gegnum hraðalinn
verði betur í stakk búin til að afla
erlendrar fjármögnunar og sækja
á erlenda markaði. „Þarna læra
þau að kynna fyrirtækið, betrum-
bæta viðskiptalíkanið, setja saman
áætlanir um vöxt og hvernig eigi
að fjármagna þá vegferð. Eftir að
hafa farið í gegnum þetta ferli eru
frumkvöðlarnir reiðubúnir að
kynna fyrirtækið fyrir erlendum
fjárfestum. Að hafa farið í gegnum
þekktan viðskiptahraðal eins og
MIT DesignX er, skapar trúverðug-
leika,“ segir Stefanía.
Hún segir að EVM leggi áherslu
á að fá erlenda fjárfesta til liðs við
fyrirtækin því við það fái fyrir-
tækin aðgang að mikilli þekkingu
og tengslaneti, og við það opnist oft
dreifileiðir.
Háskólinn í Reykjavík mun ann-
ast utanumhald á hraðlinum hér
á landi og því munu önnur íslensk
fyrirtæki en þau sem eru í eigna-
safni Eyris Vaxtar geta tekið þátt.
Samstarfið verður fyrst um sinn til
þriggja ára. Svafa Grönfeldt veitir
MIT DesignX hraðlinum í Boston
forstöðu. Hún situr einnig í stjórn
Icelandair, Marel og Össurar. n
Eyrir að loka sex milljarða vísisjóði
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar, hefur meðal annars verið framkvæmdastjóri CCP
á Íslandi, stýrt þróunarteymi CCP í Kína og verið framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þrír vísisjóðir í ár
Á skömmum tíma hefur
þremur vísisjóðum verið
hleypt af stokkunum. Til
viðbótar við Eyri Vöxt lokaði
Brunnur Ventures nýlega 8,3
milljarða króna sjóði og Kvika
eignastýring 6,7 milljarða
sjóði. Markaðurinn hefur
heimildir fyrir því að Crow-
berry Capital sé langt kominn
með að safna í nýjan sjóð.
Stjórn með reynslu af
störfum erlendis
Þrír sitja í stjórn Eyris Vaxtar.
Þau eru Sigurlína Valgerður
Ingvadóttur, fyrrverandi
yfirframleiðandi tölvuleiks-
ins FIFA sem þróaður er af
Electronic Arts, en hún stýrði
áður framleiðslu tölvuleiks-
ins Star Wars Battlefront og
hefur unnið fyrir CCP.
Fyrrnefndur Ingvar
Pétursson. „Hann er öflugur
frumkvöðull sem hefur búið
nánast alla ævi í Banda-
ríkjunum. Ingvar var fyrsti
Íslendingurinn sem seldi
fyrirtæki til Microsoft og er
afar vel tengdur í fjárfest-
ingasenuna á vesturströnd
Bandaríkjanna. Fyrirtækin
í eignasafninu munu njóta
góðs af því,“ segir Stefanía.
Þórður Magnússon,
stofnandi Eyris Invest, situr
einnig í stjórninni en hann
hefur setið í fjölda stjórna
hjá nýsköpunarfyrirtækjum,
þar á meðal Carbon Recycling
International.
Hvert og eitt fyrirtæki
þarf að eiga möguleika
á að tvöfalda verðmæti
sitt á þremur árum frá
fjárfestingu og tífalda
sig á sjö til tíu árum.
9MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2021 MARKAÐURINN