Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 46
Ársfundur Eftirlaunasjóðs
FÍA verður haldinn föstudaginn
3. júní kl. 13 í Hlíðarsmára 8
í Kópavogi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt
til setu á fundinum með
umræðu- og tillögurétti.
Fundargögn má nálgast á
vefsíðu sjóðsins, efia.is.
Dagskrá
á samþykktum sjóðsins
kjörnir á ársfundi og laun stjórnarmanna
1
Þeir kalla sig Eurovision-
guðspjallamennina Markús
og Jóhannes og hafa til þess
bæði nöfnin og djúpstæðan
áhuga á söngvakeppninni.
Þeir boða fagnaðarerindið á
Kex í kvöld og virkja yfir-
burðaþekkingu sína í spurn-
ingakeppni sem þeir kenna
við Barsvar.
thorarinn@frettabladid.is
Einlægur áhugi og djúp aðdáun
á Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva hefur um árabil bund-
ið sagnfræðingana Markús Þór-
hallsson fréttamann og Jóhannes
Þór Skúlason, framkvæmdastjóra
Samtaka ferðaþjónustunnar, svo
sterkum böndum að saman kenna
þeir sig við Eurovision-guðspjalla-
mennina.
Félag áhugafólks um Söngva-
keppni ev rópsk ra sjónvar ps-
stöðva, FÁSES, fékk þá því, eðlilega
kannski, til þess að stjórna Euro-
vision-spurningakeppni, Barsvari
eins og þeir kalla það, á Kex Hosteli
í kvöld.
„Það var komið að máli við okkur
og mikið um gleðihopp þegar við
fengum þessa beiðni,“ segir Markús
um Barsvarið og bætir við að þetta
verði „vítt og breitt. Erfitt og auðvelt
og allt í bland.“
Ofjarlar hvor annars
Markús fullyrðir að meðal Euro-
vision-nördum eigi að vera óhætt
að taka þátt en þó verði þyngri
spurningar inn á milli þannig að
hafrarnir verða skildir frá sauð-
unum. Þetta sé því enginn Euro-
vision-Kontrapunktur.
„Við verðum reyndar með ein-
hverjar vísbendingaspurningar til
þess að auðvelda þeim sem eiga
kannski erfiðara með þetta en
annars verður þetta bara alls konar.
Sumar spurningar eitthvað sem
allir eiga að vita en svo er auðvitað
ein og ein.“
Markús fer ekki nánar út í þyngri
sálmana en viðurkennir að þrátt
fyrir innbyggðan gagnagrunn hafi
hann gatað á sumum spurningum
Jóhannesar í sameiginlegu vinnu-
skjali þeirra.
„Við höfum nú unnið þetta hvor í
sínu lagi í dagsins önn en stundum
veit ég nú ekki svörin við spurn-
ingum Jóhannesar,“ segir Markús
glettinn og útilokar ekki að hann
hafi stundum rekið félaga sinn á gat
enda liggur sérfræðiþekking þeirra
ekki alveg saman.
„Hann er kannski mest í því sem
kemur eftir 1997 eða 1998 en ég er
meira í þessu gamla stöffi.“
Alvöru sagnfræði
Þótt allt sé þetta fyrst og fremst til
gamans gert eru guðspjallamenn-
irnir ekkert að grínast með þetta og
þar sem báðir eru sagnfræðimennt-
aðir jaðra vinnubrögðin við það að
vera vísindaleg.
„Hvort tveggja og það er náttúr-
lega líka oft gott að staðfesta hlut-
Upp úr hruninu risu
Eurovision-guðspjallamennirnir
FÁSES gleði á Kex
Stuðboltarnir í FÁSES, Félagi
áhugafólks um Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, láta
ekki sérkennilegt fyrirkomu-
lag keppninnar í ár slá sig út af
laginu og standa fyrir stans-
lausri Júró-gleði á Kex Hosteli
alla vikuna.
Í gærkvöldi kom mann-
skapurinn saman og horfði á
fyrri undankeppnina í beinni
og í kvöld brúa Eurovision-guð-
spjallamennirnir Jóhannes
og Markús bilið fram að stóru
stundinni þegar Daði og Gagna-
magnið stíga á sviðið í Rotter-
dam annað kvöld.
Þá magnast spennan og
leikurinn frá því á þriðjudags-
kvöld verður endurtekinn.
Eiríkur Hafdal spilar júrósmelli
og stýrir samsöng auk þess sem
rætt verður beint við íslensku
sendinefndina í Rotterdam.
Gleðin heldur síðan áfram
klukkan 20 á föstudagskvöldinu
þegar hitað verður upp fyrir
hápunktinn og lokakeppnina á
laugardaginn með Eurovision-
karókí að hætti FÁSES. Búninga-
keppni verður fyrir þá sem þora
og Daníel Arnarsson heldur
uppi stuðinu og tryggir vandað
lagaval.
Laugardaginn 22. maí verður
síðan öllu til tjaldað á sannkall-
aðri Eurovision-hátíð frá klukk-
an 14 þar sem boðið verður
upp á Eurovision Zumba með
Flosa, DJ Gloria Hole verður á
staðnum og Selma Björnsdóttir
og Eurobandið troða upp. Síðan
verður að sjálfsögðu horft á
úrslitin og samkvæmt dagskrá
stendur síðan til að skála fyrir
sigri Daða og Gagnamagsins.
ina,“ segir Markús þegar hann er
spurður hvort mikil heimildavinna
liggi að baki spurningunum eða
hvort hann ryðji bara einfaldlega
staðreyndunum úr hausnum á sér.
„Sumt er líka þannig að það
breytist. Tölfræðilegar staðreyndir
og þess háttar en svo er auðvitað
ýmislegt sem er bara og breytist
ekkert. Það er nú svo kannski bara
fræðimaðurinn í mér sem vill nú
samt alltaf f letta f lestu upp til þess
að vera alveg viss. Við vöndum
okkur,“ segir Markús sem tekur
enga sénsa.
„Það þýðir ekkert að ryðja út úr
sér einhverri vitleysu og standa svo
kannski á gati fyrir framan ein-
hvern sem veit meira á kvöldinu
sjálfu. Það væri frekar vandræða-
legt.“
Gleðin í Icesave
Markús segir aðspurður að þvert á
það sem ætla mætti þá hafi það ekki
verið Eurovision-aðdáunin sem
leiddi þá saman í upphafi. Heldur
Icesave-deilan. Af öllu.
„Við kynntumst í raun í gegnum
InDefence-baráttuna hans. Hann
var þar svo mikill talsmaður hóps-
ins og þeir komu iðulega í viðtöl til
mín á Útvarpi Sögu,“ segir Markús
sem var þáttastjórnandi á útvarps-
stöðinni um langt árabil áður en
hann söðlaði um og fór í fréttirnar
á RÚV.
„Ólafur Elíasson, sem var þar nú
fremstur þarna í f lokki, er gamall
skólabróðir minn og hann kom
einhvern veginn, minnir mig,
þessu saman í allri þessari Icesave-
baráttu á sínum tíma.“
Ólafur haf i því líklega leitt
Jóhannes á fund Markúsar á
Útvarpi Sögu í þessum æsilega
eftirleik hrunsins. „Það hefur síðan
ábyggilega komið upp í einhverju
spjalli þar og smám saman komið í
ljós að við deildum þessum áhuga,“
segir Markús og telst til að þeir
Jóhannes hafi fyrst stigið fram sem
Eurovision-guðspjallamennirnir
2012 í þætti hans á Sögu.
Síðan eru liðin níu ár, Markús
kominn í fréttirnar á RÚV og guð-
spjallamennirnir hafa nú fundið sér
annan vettvang á Kex.
Á valdi tilfinninganna
Markús er bjartsýnn fyrir hönd
Daða og Gagnamagnsins og telur
nánast öruggt að þau komist áfram
í seinni undankeppninni á fimmtu-
daginn. „Já, það þarf þá eitthvað
mikið út af að bera, enda riðillinn
svo sem kannski ekki sá sterkasti.
Og þó, en ég held að það sé nokk-
uð öruggt og við getum alveg farið
stolt frá þessari keppni þegar upp
er staðið en ég sé ekki alveg fyrir
mér sigur. Allavegana ekki í augna-
blikinu. Auðvitað getur allt gerst
á lokametrunum og ég er mjög
lélegur spámaður. Læt alltaf tilfinn-
ingarnar ráða.“
Markús segir að þótt tilfinn-
ingarnar séu heitar og djúpar þá
sé þetta náttúrlega fyrst og fremst
bara til gamans gert enda standi
Eurovision-gleðin alltaf fyrir sínu.
Guðspjallamennirnir taka sitt
forskot á sæluna klukkan 20 á Kex í
kvöld og Markús hvetur alla Euro-
nörda til þess að mæta og sýna hvað
í þeim býr enda Júróverðlaun i boði
fyrir Barsvarssnillinga. n
Það þýðir ekkert að
ryðja út úr sér ein-
hverri vitleysu og
standa svo kannski á
gati fyrir framan ein-
hvern sem veit meira á
kvöldinu sjálfu. Það
væri frekar vandræða-
legt.
Eurovision-guðspjallamennirnir Jóhannes og Markús dönsuðu af gleði í kringum söngvakeppnikálfinn þegar FÁSES
sóttist eftir kröftum þeirra og yfirburða þekkingu á fyrirbærinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
22 Lífið 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR